Andvari - 01.10.1967, Qupperneq 26
128
JÓHANN HAFSTEIN
ANDVARI
ingar og fórnir milljóna manna, einstaklinga og fjölskyldna, saklausra barna, —
opinberun helvítis á jörðu.
í viðhorfi sínu til Smeinuðu þjóðanna var Thor Thors bæði raunsær og
hugsjónakenndur. Hann benti réttilega á, að Sameinuðu þjóðirnar urðu til í
þeirn tilgangi að varðveita frið á jörðu, en ekki að skapa frið á jörðu. En for-
sendan fyrir þessari stofnun eða þessum friðarsamtökum, ef við viljum orða
það svo, var í raun og veru brostin, áður en átti til að taka, — það var aldrei
friður á jörðu.
Samt sem áður var enginn okkar þjóðar, þess dvergríkis, sem ekki gat ráðið
sköpum, þolinmóðari að berja í brestina og viðhalda voninni urn samhug og
kærleika milli þjóðanna en Thor Thors. Segja mætti næstum, að „Héðinn stóð
einn“ oft og einatt. I alvöruleysi hafa Islendingar ornað sér við þá hugsun, að
allt væri í lagi, og heil samtök manna hafa stundað þá iðju, að okkur væri bezt
að láta okkur ekki detta í hug, að friður gæti verið rofinn, enda þótt við sjáum
eldana brenna allt í kringum okkur, að vísu langt í fjarska samkvæmt heims-
mynd gamla tímans, — í frumskógum Afríku, í fenjum Asíu og fyrir botni
Miðjarðarhafs, þar sem heimurinn upphófst í hugskoti margra á þessari út-
hafseyju. Það er eins og menn muni ekki Kóreu-stríðið og viti ekki hvað nú
er á seyði.
Á veikleikana var Thor Thors stöðugt að minna, um leið og hann reyndi
að berja í brestina. Hann var ekki hinn þögli sendiherra okkar hjá Sameinuðu
þjóðunum. En hann vissi, að hann var sendiherra hinnar minnstu þjóðar. Á
því baðst hann ekki afsökunar, en kvaddi sér hljóðs, þegar honum þótti við
eiga. Og á hinu mikla þjóðaþingi var hlustað á Thor Thors. Hvort nokkur
Islendingur á enn eftir að standa í sömu sporum, eða feta framar, er enn óvitað.
Tvisvar sinnum átti höfundur þessara skrifa þess kost að sitja sem fulltrúi á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og vinna þar með Thor. Nú eru þeir
orðnir margir Islendingar, sem þar hafa setið og starfað undir handleiðslu Thors.
Það mun tæpast ofmælt, að allir þeir beri hlýtt orð til sendiherra Islands á
þessum vettvangi. Mundi vera ofmælt, að okkur, sem með honum unnu í
sendinefndum landsins, hafi ekki fundizt ísland eins lítið og það var, af því að
við áttum Thor?
Thor Thors komst til mikilla virðinga og metorða hjá Sameinuðu þjóð-
unum. Hann var þrisvar sinnum, sem mun einstætt, framsögumaður fyrstu
nefndarinnar, eða pólitísku nefndar samtakanna, sem er hin þýðingarmesta,
hann var formaður sérstöku pólitísku nefndarinnar, hann var einn af vara-
forsetum allsherjarþingsins, og hann var ein af þeim ,,persónum“ allsherjar-
þingsins, sem voru þekktar og virtar. Það er með öllu útilokað að gera sér grein