Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1967, Side 33

Andvari - 01.10.1967, Side 33
ANDVARI THOR THORS 135 ingurinn heimilaði, og að ákvörðunin um stofnun lýðveldis hefði að baki sér ekki aðeins alla flokka, heldur og alla þingmenn. Ennfremur, að það sé skoðun íslenzkra fræðimanna, studd af heimsfrægum erlendum fræðimönnum, að Islendingar hafi nú, vegna vanefnda Dana á samningnum, tvímælalausan rétt til þ ess að slíta öllu sambandi við Dani nú þegar. Þar segir ennfremur: „Vakin skal athygli á því, að 17. maí 1941, lýsti Alþingi því yfir einróma, að það teldi ísland hafa öðlazt rétt til fullra sambandsslita við Danmörku og það vildi, að stofnað yrði lýðveldi á íslandi, jafnskjótt og sambandinu við Dan- mörku verði formlega slitið. Þessar ályktanir höfðu þannig verið gerðar og birtar opinberlega áður en hervernd LT.S.A. á Islandi kom til tals. Þessar ályktanir voru tilkynntar stjórn Dana formlega stjórnarleiðis/' Og loks segir, að það sé: „Enda frumréttur viðurkenndrar fullvalda þjóðar að ákveða sjálf stjórnar- fyrirkomulag sitt.“ Ég skal geta þess, að höfuðrök Bandaríkjanna fyrir þeirri ósk, að við frest- uðum lokasporinu þar til eftir árslok 1943 var sú, að Bandaríkin óttuðust, að það yrði notað til árása á Bandaríkin, að þau hefðu knúið okkur til að stíga lokasporið, meðan herliðið var hér á landi, en með þessari skýrslugjörð sönn- uðu íslendingar, að þessar ákvarðanir voru teknar löngu áður en Bandaríkja- her kom hingað. Mér barst svo svar Bandaríkjanna dagsett 20. ágúst 1942. Þar segir meðal annars: „Ríkisstjórn Bandaríkjanna viðurkennir, að ógilding samningsins og sam- bandsins og hinar fyrirhuguðu breytingar á grundvallar-atriðum í stjómarfari íslands, sé mál, sem íslenzka þjóðin ætti ein á friðartíma að taka ákvörðun um, eftir óskum sínum og þörfum." Og þar segir ennfremur: „Vill Bandaríkjastjórn endurtaka þá ábendingu, að rétt sé að fresta að taka ákvörðun um sambandsslitin þangað til betur stendur á, ekki aðeins vegna Bandaríkjanna og íslands sjálfs, heldur og í þágu heimsskipulagsins og skiln- ings milli þjóða yfirleitt." I þessari nótu var enn lögð höfuðáherzla á, eins og getur í öllurn þessum tilfærðu orðum, að við frestuðum að stíga lokasporið. Alþingi íslendinga ákvað nær einróma, að verða við þeirri beiðni, og tilkynnti Bandaríkjunum það, en þau tilkynntu okkur hinsvegar með sérstakri nótu, að frá þeirra sjónarmiði væri alls ekkert því til fyrirstöðu, að ísland yrði lýðveldi eftir árslok 1943,“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.