Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1967, Page 34

Andvari - 01.10.1967, Page 34
136 JÓHANN HAFSTEIN ANDVARI Inn í þetta þóf blandaðist sendiherra Islands í Washington af eðlilegum ástæðum. Um það liefir Thor Thors skýrt svo frá sjálfur: „Haustið 1942 fól þáverandi forsætisráðherra, Ólafur Thors, mér að leita fulltingis stjórnar Bandaríkjanna til stofnunar íslenzka lýðveldisins. Ég átti langar viðræður um það mál við Cordell Hull, er hafði gjörkynnt sér málið. Hann liét algjörri viðurkenningu Bandaríkjastjórnar á lýðveldi Islands, eftir að sambandssáttmálinn við Dani væri útrunninn. Með þessi skilaboð flaug ég heim í októbermánuði 1942. Eins og kunnugt er urðu Bandaríkin fyrst til að viðurkenna íslenzka lýðveldið og útnefndi Roosevelt forseti sérstakan ambassa- dor til að koma fram fyrir sína hönd á Þingvöllum 17. júní 1944.“ Það er auðvelt að gera sér í hugarlund gleði íslenzka sendiherrans, Thors Thors, þegar hann flýgur heim til íslands yfir Atlants-ála í miðri heimsstyrjöld- inni með framangreindan boðskap. Fátt hefir honum verið liugstæðara og hjartfólgnara en vera beinn þátttakandi í farsælum undirbúningi lýðveldis- stofnunar á íslandi. Þegar lýðveldið var stofnað þann 17. júní 1944, hélt sendiherra Islands í Washington og kona hans síðdegisboð að Statler-Hotel og komu þangað um 500 manns. Meðal gesta voru ýmsir ráðherrar, senatorar og þingmenn, dómarar í hæstarétti, fulltrúar í ntanríkisráðuneyti og aðrir stjórnarfulltrúar, auk blaða- manna helztu blaða, útvarpsstöðva og fréttastofnana. Loks komu til boðsins sendiherrar flestra ríkja í Washington, þ. á m. Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs og allir íslendingar og Vestur-íslendingar í Washington og nágrenni. Um kvöldið tlugu svo sendiherrahjónin til New York til þess að sækja þar mikinn Islendingafagnað í boði aðalræðismannshjónanna Helga P. Briem og konu hans. Við þau hátíðahöld hélt Thor Thors ræðu, sem lauk þannig: „Það er oft sagt um okkur Islendinga, að við séum sundurlyndir og kunn- um ekki að standa saman. En athugum það, að um 98 af hundraði af kjós- endum þjóðarinnar greiddu atkvæði um sambandsslitin við Danmörku og nær því allir voru sammála um þau. Þetta sýnir, að íslenzka þjóðin stendur saman, þegar skyldan kallar. I dag höfum vér Islendingar kastað teningunum. Vér höfum lýst því yfir, að vér viljum standa einir, er vér stofnum lýðveldi vort. Það hlýtur þó að vera Ijóst, að lítil þjóð getur því aðeins staðið ein, að réttur lítilmagnans sé viður- kenndur í þeim heimi, er upp rís úr ölduróti núverandi styrjaldar. Fái minnsta þjóð heimsins ekki að lifa í friði, þá verður lítið úr vígorðum iillum og loforð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.