Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1967, Page 38

Andvari - 01.10.1967, Page 38
140 JÓHANN HAFSTEIN ANDVARI Það eru tveir atburðir í stjórnmálalífi þjóSarinnar og samshiptum viS aSrar þjóSir, sem vert er aS minnast á þessum tíma. Hinn fyrri er hinn mikli viðburður, er ísland binn 19. nóvember 1946 öðlaðist inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar. Þetta mátti teljast síðasta sporið í okkar pólitísku sjálfstæðisbaráttu, því að með þessari eldskírn höfunr við hlotið viðurkenningu alheims á því, að litla þjóðin, sem byggir landið með kalda nafninu, var einnig í tölu sjálfstæðra þjóða. A vettvangi Sameinuðu þjóðanna hefir ísland reynt að sjá fótum sínum forráð og koma frarn með hófsemd og raunsæi. A stundum hefir málflutningur okkar vakið athygli og verið til framdráttar okkar helztu hagsmunamálum. Eink- urn var þetta ljóst í sambandi við ákvörðun íslenzkrar landhelgi, því að okkur tókst að ákalla athygli alheims i þessu nauðsynja- og réttlætismáli okkar. Það, að ísland á sæti meðal Sameinuðu þjóðanna og atkvæðisrétt til jafns við stór- veldi heimsins, rninnir þjóðirnar á tilveru okkar. Stefna okkar er mörkuð innan Sameinuðu þjóðanna. Við erum lýðræðisþjóð, og einn þáttur hins frjálsa, vest- ræna heims. Framkoma okkar markast af þessari staðreynd, og hefir ætíð verið tákn sjálfstæðrar og frjálslyndrar umhótastefnu. Hinn annar rnikli viðhurður er þátttaka okkar í bandalagi frjálsra vest- rænna þjóða gegn yfirgangi einstakra stórvelda. Þetta bandalag — Atlants- hafsbandalagið — var stofnað fyrir 15 árum, á þeim tírna, er hver smáþjóð Evrópu á fætur annarri var svipt sjálfstæði, og þegar Ijóst var orðið, að frjálsar þjóðir lýðræðis yrðu annaðhvort að standa saman í þéttri varnarfylking eða verða rændar frelsi, ein og ein, unz engri yrði bjargað. íslandi er mikil vernd í félagsskap stórvelda hins frjálsa heims og án umhyggju og vináttu þeirra ættum við fallvalt öryggi og lítið athvarf. Hlutverki þessa bandalags kann þó að ljúka og að sjálfsögðu ber okkur að ástunda vinsamlega sambúð við allar þjóðir, án tillits til stjórnmálastefnu þcirra og keppa að aukinni verzlun og viðskiptum. Ég get ekki látið hjá líða að skýra ykkur frá því, að við hjónin erum ný- komin úr ferðalagi til þess að heimsækja fólk af íslenzkum ætturn, sem við nefnum Vestur-Islendinga, í byggðum þeirra á vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada. Alls staðar voru þar fjölmennar samkomur og okkur var fagnað af vin- áttu og hlýju. Tryggðin við Island er aðdáunarverð og einn hinn snarasti þáttur í eðli þessa fólks. I hópi þeirra eru margir afreksmenn og almennt hefir fólkinu vegnað vel og verið ætt sinni og fósturjörð til sórna. Það má með stolti taka undir orð skáldsins og segja um þessa landa vora: „Þeir sýndu það svart á hvítu með sönnun, er stendur gild,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.