Andvari - 01.10.1967, Page 41
ANDVARI
THOR THORS
143
minnisstæð. Framkoma senator Austins, fulltrúa Bandaríkjanna hjá S. Þ.,
og einnig talsmanns Breta, Hector McNeils, varautanríkisráðherra Bret-
lands og Sir Hartley Shawcross, hefir oft vakið hrifningu mína. Enn-
fremur hefi ég oft dáðst að mælsku Vishinskys, varautanríkisráðherra
Rússa og Mannuilskys, utanríkisráðherra Úkraínu. En þessir hafa verið
aðalbardagamennirnir á þingum S. Þ.“
Þannig talaði Thor árið 1948, en hann átti þá enn eftir að kynnast stór-
mennum heimsins um 16 ára skeið. Við vitum, að Thor Thors gat heilsað
hverjum sem var með reisn, talað við hvern sem var af kunnáttu og með kynn-
ingu sinni gert lítið land að stóru.
*
Þau Thor og Ágústa áttu þrjú börn, öll fædd á íslandi, Margréti, Ingólf
og Thor Harald. Margrét lézt fyrir vestan fyrir aldur fram og var þeirn hjón-
um mikill harmdauði. Bræðurnir, Ingólfur og Thor, eru báðir búsettir og
kvæntir vestan hafs, Ingólfur verzlunarmaður í Washington, en Thor aðstoðar
vice-president í National City-bank í New York.
Hvemig var sendiherrann okkar? Persónulýsing er ætíð nokkuð erfið og
gæti verið umdeild. Þetta skal þó sagt: Thor Thors var glæsimenni í sjón og
framkomu. Hann var fríður sýnum, hárið dökkt og liðað og fór vel, gránaði
með ámm. Augun grá og dökkar brúnir. Gat verið þungur á brún, en augun
glettin, þegar hann var í léttu skapi. Hann var vel meðalmaður á hæð, en
sýndist hærri, bar sig vel og var virðulegur í framkomu. Röddin var sterk með
fögrum hljómblæ. Ræðumaður var hann ágætur og eftirsóttur, — hann var
rökfastur og gagnorður í málafylgju, en tilfinninganæmur í tækifærisræðum.
Flarmafregnin um andlát Thors Thors barst hingað síðdegis þann 11.
janúar 1965. Sendiherrann hafði látizt skyndilega af óvæntri innvortis blæð-
ingu í svefni að heimili sínu í Washington.
Ríkisstjórn Islands ákvað á fundi daginn eftir, að einn ráðherranna skyldi
vera fulltrúi landsins við greftmn Thors, sem ráðið var að yrði í rnold Banda-
ríkja Norður-Ameríku, þar sem sendiherrann hafði varið lífsorku sinni í aldar-
fjórðung og niðjar hans nú em búsettir.1)
1) Jarðarför Thors Thors var gerð frá Washington National Cathedral að viðstöddu miklu
fjölmenni, ambassadorum, stjórnarerindrekum og embættismönnum. Fyrir hönd stjómar Banda-
ríkjanna var viðstaddur utanríkisráðherra, Dean Rusk, en fulltrúi íslenzku ríkisstjómarinnar
var dómsmálaráðherra, Jóhann Hafstein, ásamt konu sinni. Fjöldi annarra persónulegra vina
sendiherrahjónanna höfðu komið um lengri eða skemmri veg til jarðarfararinnar. Sendiherrann
er jarðsettur í Rock Creek kirkjugarði og er gröf hans andspænis gröf dóttur hans, Margrétar.