Andvari - 01.10.1967, Side 60
162
SELMA JÓNSDÓTTIR
ANDVAIU
liturinn notaður sem útlína, og litur bók-
fellsins gefur skrautinu lit, en þar er ekki
notuð svört útlína til að teikna skrautið.
I Landsbókasafni er annað blað, Lbs.
fragm. 51, sem er sýnilega úr sarna hand-
riti, en það kom úr safni Valdimars As-
mundssonar árið 1911 (3. mynd). Skinn-
bókarblað þetta er 29 X19 cm að stærð, en
blaðið er mjög illa farið, hefur verið notað
utan um bók, svo að öðrum megin er það
gjörsamlega ólæsilegt. En þeim megin á
blaðinu, sem skriftin hefur varðveitzt, er
Daviðs sálmur XVII, 26—35, ásamt línu-
fyllingum með manna-, dýra- og fiska-
myndum, allt með langa hala af laufa-
skrauti, eins og á blaði því, sem lýst hefur
verið hér að framan. Sama rithönd er á
báðum blöðum. Þrátt fyrir ýtarlega leit í
Landsbókasafni og í Arnasafni, hefur mér
ekki tekizt að finna fleiri skinnblöð af
þessu tagi.
1 Þjóðminjasafni Islands eru nokkur
skinnblöð og brot, og athugaði ég þau öll
vandlega. Á meðal þeirra fann ég heil-
síðumynd á skinnbókarblaði, nr. 4678 í
skrá safnsins (4. mynd). Blað þetta kom
til Þjóðminjasafnsins árið 1900 frá Bæ
í Hrútafirði, selt úr dánarbúi Sigurðar
Sverrisen, sýslumanns í Strandasýslu (1).
Stærð blaðsins er 30,7X19,6 crn. og hef-
ur þó eitthvað verið skorið. Blaðið er
greinilega úr glæsilegu erlendu handriti
með gyllingu. Myndin er af Kristi kross-
festum, og stendur María honum til hægri
handar, en Jóhannes postuli honum til
vinstri handar. Bakgrunnurinn í mynd-
inni er köflóttur í bláum og rósbleikum
litum, og skiptast litirnir í fjóra reiti um
krossinn, þannig að blái liturinn er vinstra
megin og bleiki liturinn hægra megin að
neðanverðu, en ofan við þvertréð er bleiki
liturinn vinstra megin og blái liturinn
hægra megin. Krossinn er gylltur með
bleikri rönd í miðju. María er í blágræn-
um kjól og bleikum kyrtli, fóðruðum með
hermilíni, sem hefur tekið á sig Ijósbláan
lit. Mynda litir klæðanna skemmtilegar
andstæður við bláan grunnlitinn. Jó-
hannes er aftur á móti í dökkgrænum
kyrtli og ljósblárri skikkju með rósbleiku
fóðri á móti rósbleikum bakgrunninum
og heldur á rósbleikri bók. Kristur er með
blágrænt lendaklæði. Utan um krossfest-
ingarmyndina er tvöfaldur rammi, sá
innri er bleikur vinstra rnegin og blár
hægra megin, er hann með ferns konar
skreytingum, en gylltir ferhyrndir reitir
á öllum hornum. Ytri ramminn er allur
gylltur og með laufaskrauti út frá öllum
fjórum hornurn.
Krossfestingarmyndin ásamt skreyting-
um utan um hana líkjast um margt til-
beiðslumyndinni og línufyllingunum á
Í.B. 363 og Lbs. fragm. 51. Helztu sam-
eiginleg einkenni eru: Köflóttur bak-
grunnur, byggður upp af jafnarma kross-
um með hvelfdum örmum, sem mynda
munstrið. Augun eru möndlulaga, skýrt
dregin, og er dökkur, stór augasteinninn
alveg úti í augnkrókunum, eins og horft
sé á eitthvað til hliðar, án þess að hreyfa
höfuðið. Munnarnir eru mjög smáir.
Hendurnar eru langar og grannar og
fingurnir oft hálfkrepptir. Vinstri hönd
Maríu í tilbeiðslumyndinni og vinstri
hönd Jóhannesar í krossfestingarmynd-
inni eru alveg eins. Auðsætt er, að litirnir
eru þeir sömu í báðum myndum, þó að
litirnir í krossfestingarmyndinni hafi
nokkuð fölnað. Auk þess sem sjálfar
myndimar eru að svo mörgu leyti líkar,
þá er laufamunstrið á neðstu brún kross-
festingarmyndarinnar eins og laufa-
munstrið í línufyllingunum. Af þessu er
augljóst, að framantalin skinnbókar'olöð
eru öll úr sama handriti, saltara.
Saltarinn hefur verið 35—37 cm á hæð