Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1967, Page 126

Andvari - 01.10.1967, Page 126
228 BERGSTEINN JÓNSSON ANDVARI í öðrum löndum Danakonungs. Afnám einveldisins greiddi þeim fyrst götu, og frá og með þjóðfundinum 1851 er algengt að tala um tvo flokka þingmanna, þó að hvergi geti fastra eða varanlegra samtaka með þeim á því skeiði. Yfirleitt voru menn taldir meirihlutamenn eða minni- hlutamenn, og voru hinir fyrrtöldu flestir eða allir þjóðkjörnir þingmenn, en hinir voru konungkjörnu fulltrúarnir. Hér var eingöngu miðað við afstöðuna til stjórn- armálsins, en það mál setti ekki teljandi svip á þingin 1855—1865. Á þingunum 1857—1863 skiptust þingmenn eins og aðrir landsmenn í niðurslmrðarmenn og lækningarmenn eftir því hvernig þeir vildu snúast við fjárkláðanum, sem þá gerði hvað mestan usla. Næstu árin eftir þingið, sem fyrst fjall- aði um fjárhagslegan aðskilnað fslands og Danmerkur, var stundum talað um meirihluta- eða minnihlutamenn frá 1865, en þá höfðu hinir gömlu flokkar riðlazt verulega í fyrsta sinni eftir 1851. Á þinginu 1869, þegar stigin voru fyrstu sporin til stofnunar Þjóðvinafé- lagsins, voru flokkarnir í þinginu orðnir þrír heldur en tveir. Fjölmennastur var eins og fyrri daginn stjórnarbótaflokkur- inn eða gamli meirihlutaflokkurinn, flokkur Jóns Sigurðssonar. Þá var gamli minnihlutaflokkurinn, stjórnarflokkurinn eða hinir konungkjörnu, sem að þessu sinni nutu yfirleitt stuðnings Gríms Thomsens þingmanns Rangárvallasýslu; loks var sá hópur, sem Jón Sigurðsson orðaði fyrst við Benedikt Sveinsson, eins konar milli- eða miðlunarflokkur, sem fór bil beggja. Auk Benedikts var þar að finna Þórarin Böðvarsson, sem var ein- mitt að hefja langan og merkan feril á þingi, en sama máli gegndi raunar um Grím Thomsen og sr. Helga Hálfdanar- son síðar lektor. Nálægt þessum þriðja flokki stóðu að því er virðist prestarnir Guðmundur Einarsson og Páll Pálsson. Frá og með þinginu 1871 hvarf Benedikt Sveinsson alveg inn í raðir meirihlutans. Á þingunum 1871 og 1873, síðustu rað- gjafarþingunum, gætir Þjóðvinafélagsins sjáanlega, þótt aldrei sé það nefnt á nafn. En frá 1875 verður ekki séð, að það sé lengur pólitískt afl á þingi. Þá er í blöð- unum helzt farið að tala um bændaflokk og enibættismannaflokk og þá einkum miðað við afstöðu þingmanna til útgjalda- hliðar fjárlaganna og launa embættis- manna. Á þinginu 1885 skiptust menn í endur- skoðunarmenn (þá sem fylgdu Benedikt Sveinssyni og vildu endurskoða stjórnar- skrá) og andstæðinga endurskoðunar. A þingunum 1889 og 1891 voru menn ýmist miðlunarmenn eða endurskoðunar- menn í anda Benedikts. Miðlunin var úr sögunni 1893, en 1895 kemur Valtýskan til sögunnar, og rétt fyrir aldamót eru loks stofnaðir reglulegir stjórnmálaflokk- ar, sem í orði kveðnu fóru eftir við- horfum til stjórnarfyrirkomulagsins, en í raun réttri snerust um flokksleiðtogana dr. Valtý Guðmundsson og Hannes Haf- stein, hvor betur væri til forystu fallinn. Það er ekki fyrr en árið 1916 og þar á eftir, sem íslendingar fara að skiptast í flokka svipaða þeim, er skipt hafa öðrum Evrópumönnum, og hægt er að tala um hægri og vinstri, borgaralega flokka og verkalýðsflokka, en allt slíkt er önnur saga. Óhætt er því að fullyrða, að Þjóðvina- félagið átti upphaflega að verða stjórn- málaflokkur, og sem slíkt beitti það sér fyrir hinum sögulega Þingvallafundi 1873. En stjórnarskráin 1874, óvænt ánægja Islendinga með hana fyrstu árin á eftir og skyndileg heilsubilun Jóns
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.