Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1967, Síða 127

Andvari - 01.10.1967, Síða 127
ANDVARI FYRSTI í SLENZKI STJÓRNMÁLAFLOKKURINN 229 Sigurðssonar, varð allt til þess, að félagið hvarf frá stjómmálum, og Tryggva Gunnarssyni tókst að beina því að megin- hugðarefnum sínum, þegar þar var komið, alþýðufræðslu og áróðri fyrir framförum í hvers konar verklegum efnum — og dýraverndun. Nú væri vissulega forvitnilegt að vita, hversu Jón SigurÖsson hefur hugsað sér að beita slíku vopni sem skipulagÖur stjórnmálaflokkur með almennri þátttöku landsmanna og verulegum fjárráðum hefði getað orðið. En sá er hér hængur á, að engin reynsla fékkst á þessu, til þess var fjörsprettur félagsins of skamm- vinnur og fjárhagurinn tæpur. Ekki verður þeirri hugsun varizt, að fyrir Jóni hafi vakaö fyrirkomulag svipað því, sem nú mundi helzt kallað eins flokks kerfi. Má þá ekki gleyma, að Jón var barn sinnar aldar; þar á ofan var hann viljasterkur mjög og ráðríkur, svo að hann þoldi ekki meira en miðlungi vel mótmæli í hópi samherja sinna. Má þar ef til vill finna skýringu á sviplegum vin- slitum hans og Arnljóts Ólafssonar og Gísla Brynjúlfssonar, þótt eigi sé óhætt að fullyrða slíkt. Fullvíst má telja að Jón hafi átt mestan þátt í að semja lög félagsins í öndverðu, en um tilgang þess segir svo í 1. grein laganna frá 1873: „Það er tilgangur fé- lagsins að reyna með sameiginlegum kröftum að halda uppi þjóðarréttindum Islendinga, efla samheldi og stuðla til framfara landsins og þjóðarinnar í öllum greinum. Einkanlega vill félagið kapp- kosta að vekja og lífga meðvitund Islend- inga um að þeir sé sjálfstætt þjóðfélag og hafi því samboðin réttindi. Nú sem stendur liggur næst að fylgja því fram að vér fáum þá stjómarskrá, er veiti oss fullt stjórnfrelsi í öllum íslenzkum mál- um, alþing með löggjafarvaldi og fullu sjálfforræði og landstjórn í landinu sjálfu með fullri lagalegri ábyrgð fyrir alþingi." Þegar þessi stefnuskrá er samin, grúfir skuggi stöðulaganna og þráteflisins við dönsku stjórnina yfir íslenzkum stjóm- málum. Engan varði þá, að í næstu andrá mundu Danir höggva svo snilldarlega á hnútinn sem þeir gerðu, er þeir gáfu ís- lendingum stjórnarskrána 1874. Viðbrögð Jóns Sigurðssonar og nánustu samverkamanna hans í Kaupmannahöfn við stjórnarskránni voru slík, að þeim virð- ist sízt af öllu hafa verið vopnahlé í huga. En nú gerðist margt í senn, sem sköpum skipti um hríð. Herská ummæli Jóns í Andvara og greinar ungra samherja hans í íslenzku blöðunum (einkum hinum nýj- ustu, Isafold og Norðlingi) fyrir þing 1875, svo og bréf Jóns til vina og trún- aðarmanna heima á ísiandi kom alit fyrir ekki. Þorri þingmanna vildi frið við dönsku stjórnina, og Islendingum fórst áþekkast barni, sem eignast nýtt leikfang og verður svo hugfangið, að það sér ekki lengur gömlu gullin sín. Leikfangið, sem um sinn altók hugi íslendinga sumarið 1875 og næsta áratuginn, var fjárforræðið, hlutdeild alþingis í fjárveitingarvaldinu. Og áður en Jóni tækist að fylkja mönn- um á ný til næstu orustu voru kraftar hans á þrotum. Var þá um hríð enginn, sem reyndi að raska ró Islendinga, og næstu árin körpuðu þeir helzt um fjár- kláða og fjárveitingar, framkvæmdir eða sparnað. Grímur Thomsen og Arnljótur Ólafsson urðu þjóðhetjur hins nýja tíma vegna yfirburðaþekkingar á leyndardóm- um fjármálanna. Þannig stóðu sakir þangað til Benedikt Sveinsson hóf raust sína og tókst á nokkr- misserum með brennandi eldmóði og leiftrandi mælsku að hrifa fjöldann úr leiðslunni. Var þá á ný hafin baráttan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.