Andvari - 01.10.1967, Síða 137
ANDVARI
TROLLDÓMUR HGILS SKALLAGRíMSSONAR
239
og þá fyrst hamrammur, er kvelda tók.
Frá því er sagt, að Egill hafi vegið leik-
bróður sinn, er hann var sjö ára, og fyrir
það eitt, að hann hafi orðið undir í leik.
En er Egill kom heim, lét Skallagrímur
sér fátt um finnast, en Bera kvað Egil
vera víkingsefni, og kvað það mundi fyrir
honum hggja, þegar hann hefði aldur til,
að honum væru fengin herskip. Egill
kvað vísu:
Það mælti mín móðir,
að mér skyldi kaupa
fley og fagrar árar,
fara á brott með víkigum,
standa uppi í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svo til hafnar,
höggva mann og annan.
Hér er víkingablóð í skáldaæð eins og
með Ulfi óarga langafa hans og ömmu-
hræðrum hans, Ölvi og Eyvindi, og skyld-
leiki við Þórólfana. Það finnur móðir
hans og skilur. Trolldómur hans er því
ekki einvörðungu trolldómur Kveldúlfs
og Ketils hængs, sona hálftrollanna Hall-
heru og Hallbjarnar, heldur líka troll-
dómur víkinganna. Höfundi Egilssögu er
Ijóst og hann vill gera lesendum sögunnar
ljóst, að trolldómur Kveldúlfs og Ketils
hængs víkur og tekur breytingum við
endurtekna blóðblöndun við hið göfuga
norræna kyn. Trolldómur Egils er á leið
þeirra breytinga frá Kveldúlfi til Sturl-
unga. En þess vegna lítur hann hvað
eftir annað hornauga til Oddaverja, þó
að þeir komi sögu Egils annars ekkert
við, að sú spurning er honum áleitin,
bæði í gamni og alvöru, hvort þessar tvær
miklu ættir hafi eigi sótt veg sinn og
gengi í trolldóm Kveldúlfs og Ketils
hængs, sona hálftrollanna. Þetta minnir
vissulega á það, sem Danir sögðu stund-
um um Islendinga, meðan þeir sóttu
menntun sína einkum til Kaupmanna-
hafnar, að menningarleg fyrirmynd þcirra
og draumsýn væri umfram allt annað
Egill Skallagrímsson, draumur þeirra um
manndóm sjálfra sín væri umfram allt
draumur um trolldóm Egils Skallagríms-
sonar. Það hefur líka vissulega nokkuð
til síns máls, að þrátt fyrir dýrkun okkar
á göfugu norrænu kyni, lítum við oft, er
á reynir, upp til hálftrollanna, sem við
skiljum ekki og miklum þess vegna að
krafti og kynngi.
Ættvísina okkar má einnig rekja til
sömu linda og ættvísi Egilssögu. Kveik
þeirrar sögu, upphaf og ættvísi má rekja
til forns skáldatals, þar sem segir: „Ulfur
hinn óargi var hersir ágætur í Noregi í
Naumudal, faðir Hallbjarnar hálftrolls,
föður Ketils hængs. Úlfur orti drápu á
einni nótt og sagði frá þrekraunum sín-
um. Hann var dauður fyrir dag.“ Eins má
rekja kveik og fræði ættvísi okkar til
Egilssögu. Skilning okkar á ættum og
tilganginn með ættfræði okkar getum við
auðveldlega rakið þaðan. Eins og Sturl-
ungur sá, er Egilssögu gerði, leit horn-
auga til Oddaverja og forfeðra þeirra, er
hann ritaði frásagnir af sínum forfeðr-
um, þannig lítum við enn hornauga til
annarra ætta og hálftrollanna þar, meðan
við rekjum okkar ættir til hálftrollanna,
systra þeirra eða bræðra. Sjálf vísindi
ættfræði Egilssögu og ættfræði okkar er
einnig áþekk.