Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1991, Síða 41

Andvari - 01.01.1991, Síða 41
andvari BJÖRN SIGURÐSSON 39 scrapie er smitsjúkdómur og hafði Björn talið hann til hæggengra smitsjúkdóma. Gajdusek hóf nú tilraunir með að sýkja apa með kúru samkvæmt þeirri tilgátu að kúru væri hæggengur smitsjúkdómur. Ap- arnir fengu einkenni um kúru eftir 172-3 ár og dró sjúkdómurinn þá smám saman til dauða. Hér var því um hæggengan smitsjúkdóm að ræða. CJD er mjög sjaldgæfur taugasjúkdómur sem leggst einkum á eldra fólk. Hann hefur verið þekktur á Vesturlöndum í að minnsta kosti 70 ár og líkist kúru. Árið 1968 tókst að sýkja apa með CJD og var meðgöngutíminn 1-2 ár eða lengri. Sjúkdómurinn ágerðist jafnt og þétt og leiddi til dauða. CJD var því hæggengur smitsjúkdómur sam- kvæmt skilgreiningu Björns. Þessar rannsóknir vöktu mikla athygli enda var Gajdusek óþreyt- andi að kynna þær í ræðu og riti á ferðum sínum um heiminn. Þær stað- festu þær hugmyndir Björns að hæggengir smitsjúkdómar kæmu ekki einungis fyrir hjá dýrum heldur einnig mönnum. Þrátt fyrir umfangs- miklar tilraunir hefur ekki enn tekist að sýna fram á að aðrir hæggengir taugasjúkdómar í fólki, t.d. Alzheimersjúkdómur, séu smitsjúkdóm- ar. Vafalaust átti kenning Björns um hæggenga smitsjúkdóma drjúgan þátt í því hve tilraunir Gajduseks með kúru og CJD urðu árangursrík- ar. Enda hefur hann látið verk Björns njóta sannmælis og ávallt vitnað í þau, bæði í þeim fjölmörgu greinum sem hann hefur birt um rann- sóknir sínar og í fyrirlestrum sem hann hefur haldið víða um heim. Arið 1976 hlaut Gajdusek nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á kúru og CJD. Ef Björn hefði þá verið á lífi er líklegt að verðlaununum hefði verið skipt milli hans og Gajduseks. Varla hefði verið gengið fram hjá Birni sem var höfundur þeirra hug- mynda sem lágu til grundvallar. Þótt vonir um að visna tengdist einhverjum hæggengum mannasjúk- dómum hafi að mestu brugðist, hafa visnu- og mæðiveirurannsóknir skilað góðum árangri á þeim rúmlega 30 árum sem liðin eru frá dauða Björns. Margar þessar rannsóknir hafa verið unnar á Keldum, bæði fyrr og síðar, en einnig á öðrum rannsóknastofum í Evrópu og Banda- ríkjunum. Áhugi á visnurannsóknum jókst verulega þegar það sann- aðist að alnæmisveiran er náskyld visnu/mæðiveirunni en ekki er hægt að fullyrða að visnurannsóknir hafi á einhvern hátt stuðlað að hinni skjótu framvindu alnæmisrannsókna. Líklegra er að þar hafi þekking manna á öðrum retróveirum, svo sem æxlisveirum, skipt meira máli.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.