Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1991, Side 57

Andvari - 01.01.1991, Side 57
ANDVARI JÓRVÍKURFÖR í EGILS SÖGU 55 Heimskringlu eru alkunn. Hann vinnur af íhygli úr heimildum sínum og gef- ur hvarvetna gaum að sennileika og samhengi við heildarstefnu frásagnar- innar. Þegar honum þykja heimildirnar segja mjög ótrúlega frá breytir hann einatt í raunsæis- eða rökhyggjuátt.11 Hefði Snorri talið þörf á að láta líta svo út sem för Egils á fund Eiríks hefði verið sennileg, hefði hann ekki látið sig muna um að segja þannig frá hvað sem heimildum hans leið. Þess vegna er ástæða til að ætla að niðurstaðan sé nákvæmlega ei;.is og Snorri vildi hafa hana. Hann vildi láta áhættu Egils vera svo mikla að lægi á mörkum þess sem hægt væri að taka trúanlegt. Freistandi er að velta því fyrir sér hvernig Egla tengist ævi Snorra og straumum í samtíma hans. Voru einhverjar sérstakar aðstæður í samtím- anum sem kölluðu á vegsömun manns eins og Egils Skallagrímssonar? F*að lætur að líkum að svör við slíkri spurningu verði óviss. Þegar reynt er að setja Eglu í samband við ævi Snorra skiptir óneitanlega máli hvenær hann samdi söguna. Var það skömmu eftir heimkomu úr fyrri utanför 1220 og þá áður en hann samdi Ólafs sögu og Heimskringlu, eins og fræðimenn hafa löngum talið, eða var það eftir heimkomu úr síðari utanför á allra síðustu æviárum hans, eins og Jónas Kristjánsson hefur látið sér detta í hug og stutt ýmsum rökum?12 Nýjustu rannsóknir á máli Egils sögu styðja hugmyndir um að einn sé höfundur hennar og Heimskringlu, en gefa jafn- framt ýmsar vísbendingar um að höfundur sá hafi ekki lokið sögunni og séu síðustu kaflar hennar eftir annan höfund.13 Það gæti vissulega samræmst því að sagan væri samin á síðustu árum Snorra og hefði hann fallið frá áður en henni var lokið. Um þetta er þó erfitt að fullyrða nokkuð. Vel getur verið að Snorri hafi haft Eglu lengi í smíðum og hafi t.d. byrjað á henni eftir að hann hafði lokið Ólafs sögu helga hinni sérstöku en aldrei lokið henni. Greinar- munur á viðhorfum í Eglu og Heimskringlu er ekki meiri en svo að allt gat það rúmast í marglyndum huga Snorra samtímis þótt ýmist væri hvað honum var efst í huga. Óneitanlega kæmi það sér best fyrir vangaveltur sem hér munu koma fram ef sagan væri samin á síðustu tveimur æviárum Snorra, en varla getur það talist nauðsynleg forsenda. í Heimskringlu skrásetti Snorri eftirminnilega sögu Noregskonunga. Hann lýsti þeim sem mikilhæfum einstaklingum sem þó voru hver öðrum harla ólíkir og áttu sér ólík örlög. Sagan er hvorki með né móti konung- dæminu sem slíku. Það birtist sem söguleg staðreynd og sjálfsagður hlutur, en augljóst er að Snorri gerir sér ákveðnar hugmyndir um vanda konungsins °g telur nauðsynlegt fyrir konunga að koma á góðu samkomulagi við höfð- ingja og stjórna landinu í samvinnu við þá. Þar skiptir miklu skaplyndi hvorra tveggja, konunga og höfðingja, auk ytri aðstæðna. Valdataflinu lýsir hann í raun og veru með það samfélag að fyrirmynd sem hann þekkti best, hið íslenska. Heimsmynd hans er í meginatriðum heimsmynd íslenskra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.