Andvari - 01.01.1991, Blaðsíða 68
66
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON
ANDVARI
hans.5 Það fer engum sögum af því hvort eða hvaða ákvarðanir voru teknar
um skólagöngu Konráðs, en séra Jón Konráðsson sendi stiftsyfirvöldum
fyrrgreint bréf dagsett 24. júní það ár og sótti um ölmusu fyrir Konráð og hélt
áfram að segja honum til. Prestur virðist hafa haft forgöngu um að búa Kon-
ráð undir skóla og senda stiftsyfirvöldum bréf og vottorð um kunnáttu hans
þar til björninn var unninn.
í æviágripi sínu segir Konráð að hann hafi verið sendur út í heiminn á átj-
ánda ári til að gerast sjómaður. Hann hafði meðferðis umsókn um ölmusu
frá Jóni Konráðssyni dagsetta 24. febrúar ásamt skírnarvottorði, lærdóms
vitnisburði og rithandarsýnishorni. Þessa er getið í bréfadagbók biskups 15.
mars 1826, en af því má draga þá ályktun að hann hafi yfirgefið æskustöðv-
arnar um mánaðamótin febrúar og mars. Konráð reri hjá Bjarna Einarssyni í
Straumi á vertíðinni, en Gísli Konráðsson hafði róið þar á vertíðum áður og
stundað skriftir fyrir Bjarna jafnframt.
Nú urðu tímamót í ævi Konráðs. Þegar vertíðin var á enda, var hann feng-
inn til að vinna að garðhleðslu hjá Hallgrími Scheving, en fljótlega tók Hall-
grímur að kalla hann inn til sín til að hjálpa sér við að bera saman íslensk
fornrit. I kjölfarið kom tilsögn í latínu þar sem Konráð tók svo skjótum
framförum að Hallgrímur trúði varla eigin augum. Þegar fram á vorið kom
tók venjuleg sumarvinna við. Pegar leið að mánaðamótum september-októ-
ber tóku skólasveinar að streyma að til að þreyta próf í latneskum stíl. Eftir
honum var raðað í bekki í Bessastaðaskóla að haustinu. Undir próf gengu
jafnt nýsveinar og þeir sem lengra voru komnir í námi. Skólinn skiptist í tvær
bekkjardeildir og var 21 nemandi í efra bekk en 20 í neðra. Við prófið fóru
leikar svo að Konráð hreppti áttunda sæti í neðra bekk. Honum var veitt hálf
ölmusa og styrkur til bókakaupa. Næsta próf var haldið eftir áramót. Þá
hlaut Konráð efsta sætið, en meðal þeirra sem næstir komu var Gísli ísleifs-
son frá Brekku. Eftir að Konráð komst upp í efra bekk var hann fyrst í öðru
sæti næst Magnúsi Eiríkssyni, en eftir það jafnan efstur. Til umræðu kom að
hann lyki námi vorið 1830, en hann kaus heldur að vera vetri lengur eins og
bréf hans og æviágrip votta.6 Konráð fór aldrei norður í Skagafjörð til æsku-
stöðva sinna, foreldra og systkina meðan hann var í skóla, heldur vann hjá
Scheving á sumrum við heyverk og önnur störf. Konráð greinir frá því í um-
sókn til Árnanefndar 16. maí 1835, þar sem hann sótti um stöðu styrkþega
við Árnasafn, að það hafi orðið honum ómetanlegt happ á skólaárum sínum
á Bessastöðum að aðstoða Hallgrím Scheving við orðtöku íslenskra fornrita
með það markmið fyrir augum að semja stóra íslenska orðabók í samvinnu
við Sveinbjörn Egilsson. Að þessu segist Konráð hafa unnið að vetrinum til,
en einkum á sumrum.7
Bréf hans votta að á þessum árum var hann í óvissu hvað við tæki eftir að
skóla lyki og hugsaði með nokkrum ugg um hverra kosta hann ætti völ. Þá