Andvari - 01.01.1991, Side 91
ANDVARI
Á ALDARÁRTÍÐ KONRÁÐS GÍSLASONAR
89
syni." Konráð unni henni hugástum og Indriði kemst svo að orði um samlíf
þeirra að allt líf Konráðs eftir að hann kvæntist hafi farið í að hlaða skjólgarð
kringum hana.100
Fábjáninn Georg naut sömu umönnunar frá hendi Konráðs. Hann var sí-
fellt að fá einhverja til að kenna honum og er Benedikt Gröndal frægasti
maðurinn í kennarastéttinni og sá eini sem segir deili á nemandanum og
námsárangri.101 Konráð vildi ekki láta stjúpsoninn fara á hæli meðan hann
lifði og ánafnaði honum lífeyri í erfðaskrá sinni.
Upp úr 1870 tók að bera á því að kona Konráðs var ekki heil heilsu þó að
leynt færi. Konráð vildi ekki taka þátt í veisluhöldum 1874 vegna veikinda
hennar.102 Sophie andaðist 19. maí 1877. „Konráð tók sér lát hennar ákaf-
lega nærri. Honum kom fyrst til hugar að drekka sig í hel“, segir Indriði Ein-
arsson.103 „Eg neyði mig til að skrifa frá morgni til kvölds og stundum fram á
nótt, en finn alltaf þenna sára, óumræðilega söknuð í djúpi sálarinnar. Nú er
sú tíð liðin - 21 ár og 179 dagar -, þegar mér fannst enginn maður á jarðríki
geta verið jafnsæll og eg“, skrifaði Konráð Magnúsi Eiríkssyni 28. júlí
1877.104
Jón Ólafsson ritstjóri kynntist Konráði í upphafi árs 1877. Sumarið eftir
fékk hann langt bréf frá honum þar sem hann sagði honum frá andláti konu
sinnar og var allt bréfið um hana. Þar komst hann svo að orði, „að þá er hann
sá hana fyrst og kynntist henni, hefði sér þótt hún . . . fegursti svanni undir
sólu, sólfegurst allra meyja. Hann taldi sér þá slokknað allt yndisljós í heimi
þessum“.105 Þessi frásögn Jóns er skýr vitnisburður um hvað þessi duli og
innhverfi maður hafði mikla þörf fyrir að segja einhverjum allan hug. Kon-
ráð varð mikill einstæðingur við fráfall konu sinnar. „Illa kann eg vinalátinu,
þó eg ætti að vera orðinn vanur við að missa þá sem mér er best við“, skrifaði
hann Birni M. Ólsen 13. janúar 1889.106 Síðasta áratuginn sem hann lifði
hafði hann meiri samskipti við landa sína eldri og yngri en áður og sótti aftur
samkvæmi íslendinga. í bréfi til Jóns Þorkelssonar yngra 27. nóvember 1890
mæltist Konráð til þess að Jón liti inn til sín þar sem hann færi lítið út vegna
næðings sem væri svo mikill „að eldurinn titrar í ofninum“.107
Konráð bjó löngum við ráðskonuraunir og rekur þær nokkuð í bréfi til
Bjarnar M. Ólsens 11. janúar 1888. Þær féllu frá ein eftir aðra.108 Síðust
þeirra var Sophie Wilhelmine Heboe sem gekk Konráði í dóttur stað og
hlynnti að honum til æviloka.109
Konráð andaðist sunnudaginn 4. janúar 1891 eftir skamma og þjáningar-
litla legu. Guðmundur Þorláksson, frændi hans og sýslungi, vakti yfir honum
á dánarbeði. Það grúfði dimm vetrarnótt yfir Kaupmannahöfn þegar Kon-
ráð tók andvörpin. Hann hafði skrifað dánartilkynningu sína, en skilið eftir
eyðu fyrir dagsetningu og stundinni þegar dauðinn knúði dyra. Líkast til hef-
ir það verið Guðmundur Þorláksson sem skrifaði dagsetninguna „4de Janu-