Andvari - 01.01.1991, Qupperneq 131
ANDVARI
„SÖNGUR ER í SÁLU MINNI"
129
ingar Krists hlutu að rangfærast á þeirri leið, eru allar líkur til að þær hafi verið auknar
og rangfærðar við uppskriftir guðspjallanna og þýðingar á önnur mál, á fyrstu tímum
kristninnar, meðan ein höndin var upp á móti annari (og óhlutvendni næg til að víkja
orðum guðspjallanna við sér í hag). A þetta benda meðal annars mótsagnirnar, sem
guðspjöllin úa og grúa af.
VII
Þessi sérstæða ritgerð hlýtur að vekja ýmsar hugsanir og þá ekki síst forvitni
um það, hvaðan ungum manni kemur þessi fróðleikur um taóisma árið 1891
eða jafnvel fyrr. Að vísu er greinin fyrst og fremst endursögn tíðinda og fróð-
leiks, ekki alltaf ljós, eins og við er að búast uni nýmæli úr fjarlægð, og í sum-
um tilvikum minnir útleggingin ekki síst á skoðanir únítara.
Ekki er mér fært að meta trúarleg áhrif presta í Suður-Þingeyjarsýslu á of-
anverðri 19. öld. Fer þó ekki á milli mála, að þar bar hvað hæst séra Björn
Halldórsson í Laufási, sem bæði var snjall prédikari og andríkt sálmaskáld.
Sr. Björn var ákveðinn í trúarskoðunum, sem mótaðar voru af þeim nýrétt-
trúnaði, er hófst til vegs með stofnun Prestaskólans 1847 og þar var hann á
meðal fyrstu nemenda. En séra Björn var búsettur inn við Eyjafjörð og var
því á héraðsenda, sem vegna erfiðra samgangna var víðsfjarri sveitunum aust-
an Skjálfandafljóts. Sr. Björn var látinn fyrir tæpum áratug er Sigurjón
Friðjónsson var kennari á Einarsstöðum. En í sömu sókn og sr. Björn bjó
maður sem var áhrifamikill og hafði mun meiri tengsl þar eystra. Það var Ein-
ar Ásmundsson í Nesi, sem boðaði eindregið trúarbragðafrelsi og frjálshyggju
í trúmálum. Hafði hann m.a. annars varið Magnús Eiríksson guðfræðing í
Kaupmannahöfn og frjálslyndar trúarskoðanir hans, sem nálguðust mjög
kenningar únítara.1)
Einar í Nesi var móðurbróðir systranna á Einarsstöðum, Ásrúnar og Krist-
ínar eiginkonu Sigurjóns. Hafði Kristín dvalist lengi í Nesi á æskuárum og leit
á Einar sem fóstra sinn. Ekki er ólíklegt að skoðanir Einars hafi blandast inn
í umræður unga fólksins á Einarsstöðum. Þá vildi svo til að sóknarpresturinn,
er þjónaði Einarsstaðasókn veturinn, sem Sigurjón kenndi þar, var séra Matt-
hías Eggertsson, bróðursonur og skjólstæðingur séra Matthíasar Jochumsson-
ar á Akureyri. Ekki eru mér kunnug trúarviðhorf sr. Matthíasar Eggertsson-
ar, en trúlega hefur hann kynnst vel skoðunum nafna síns og fóstra. Tel ég
víst, að hann hafi a.m.k. gert sér ljósa grein fyrir þeim, m.a. þeirri trúfræði,
sem þjóðskáldið hneigðist að um hríð og var eftir dr. W.E.Channing (d. 1842)
einn af áhrifamestu talsmönnum únítara. Sem kunnugt er mynduðu únítara-
söfnuðir kirkjulegan félagsskap vestan hafs árið 1829 (American Unitarian
Association). Megininntak kenninga þeirra er trúin á Guð sem föður allra og
af því séu allir menn bræður. Jesús sé ágætasti leiðtogi þeirra, en maðurinn
frelsist fyrir þroskun skapgerðar sinnar. Er það ekki síst sá þáttur, sem mér
9