Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1991, Síða 166

Andvari - 01.01.1991, Síða 166
164 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI aö sé heimafengið. Er raunar ekki aö undra þótt Norðmanni fari svo. Hitt er kynlegra í fræðiriti að Orgland hyllist til að gera samanburð á persónugerð Stefáns og þeirra norsku skálda sem hann hreifst af. Er vandséð um fræðileg- an ávöxt af svo huglægum vangaveltum. Það er eins og Orgland stari svo mjög á landa sína og áhrif þeirra á Stefán í smáu og stóru að hann taki að sjá ofsjónir. Þetta var gagnrýnt þegar ritið kom fram til doktorsprófs á sínum tíma og hent nokkurt gaman að. Kostulegast er það sem hér segir um að í Sálma- söngsbók norsku kirkjunnar og Nýnorskri sálmabók sé eitt dæmi um sömu hrynjandi og í Aðfangadagskvöldi jóla 1912 eftir Stefán. En það er sálmur sem Stöylen nokkur biskup þýddi - úr íslensku, Heyr, himna smiður eftir Kolbein Tumason: „Ef Stefán hefði þekkt og kannað þýðingu Stöylens, hefði hin meitlaða, sérkennilega hrynjandi getað orkað á hann . . . Frammi fyrir oss liggja hér tveir sálmar, og nærtækt væri að ætla að þýðing Stöylens sé fyrirmyndin að ljóði Stefáns. En nýnorska sálmabókin kom ekki á prent fyrr en 1925, og rannsókn hefir leitt í ljós að Stöylen getur ekki hafa þýtt sálminn fyrr en 1921-23“, þ.e. nokkrum árum eftir að Stefán orti sinn sálm (!)(244-45) Þótt þetta sé óvenjuslæmt eða - gott dæmi um hve langt áhrifaleit Org- lands getur teygt hann er fleira af þessu tagi, marklausum getgátum og vangaveltum: „Ef Stefán hefir þekkt kvæðið Sáng till solen (Söngur til sólar- innar) eftir sænska skáldið Esaias Tegnér, væri nærri lagi að ætla, að hið stórbrotna, tilfinningaheita kvæði hefði haft áhrif á hann.“(235) Um íslenskt kvæði eftir nær óþekktan Vestur-íslending segir að „Stefán gæti hafa lesið þetta kvæði heima á íslandi, og það vakið athygli hans, svo að hann hafi fest það í minni. Þegar hann síðar kynnist samskonar hrynjandi, gæti það hafa átt þátt í, að hann tileinkaði sér bragarháttinn." (234—35). Annars er ekki að sjá að Orgland telji að Stefáni geti verið íslenskur skáldskapur ofarlega í huga í Noregi, því hann leggur mikið upp úr að Stefán hafi ekki haft hjá sér aðrar íslenskar kvæðabækur en ljóð Matthíasar Jochumssonar, að því er fram kemur í bréfi hans ti) hins aldna skálds. Hér skal ekki lengra haldið út í sparðatíning sem bók Ivars Orgland býður raunar upp á. Smáatriðin byrgja víða yfirsýn, dómgreind höfundar reynist brigðul. Aftur á móti veitir bókin, með öllum sínum upplýsingum og vitnis- burðum, töluvert góða mynd af persónunni Stefáni frá Hvítadal. Fæst af því er raunar til að auka virðingu lesandans fyrir manninum, fremur en það sem fram kom í fyrra bindi Orglands um skáldið. En það er ástæðulaust að láta bresti mannsins skyggja á list skáldsins. Það gerir bókarhöfundur ekki held- ur og ást hans og aðdáun á skáldinu, sem lýsir sér í þessu eljuverki, gefur bókinni geðfelldan svip. Það er auðvelt hverjum Ijóðaunnanda að taka undir lokaorð bókarinnar:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.