Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1991, Side 167

Andvari - 01.01.1991, Side 167
ANDVARI AÐ ÁRROÐANS STRÖND OG AFTUR HEIM 165 „Aðallinn í skáldskap Stefáns frá Hvítadal er ekki einungis sérstakt ljóð- form og lífsstíll, heldur fremur öllu öðru ljóðrænn, lifandi og mjög persónu- bundinn vitnisburður. Bestu kvæði hans eru alltof merkileg til þess að þjóðin megi leggja þau fyrir róða. Leikandi lífsgleðin í kvæðunum „Vorsól“ og „Hún kyssti mig“, einlæg trúartilbeiðsla á Guði og konunni í „Fölskvuðum eldum“, auðmýkt og sár syndajátning í „Aðfangadagskvöldi jóla 1912“, hlý, mild og þýð umhyggja fyrir barninu í „Erlu“, djúp virðing fyrir vináttunni í „Minningu“ og ástinni, sem einu sinni var, í „Seytjánda maí“ og „Frá liðnum dögum“, og raunar boðskapur margra annarra ónefndra kvæða, geymir ómælanlegan sjóð mannlegra verðmæta úr samtíð vorri.“ (291-92) Pau kvæði sem hér eru nefnd eru flest úr Söngvum förumannsins. Sú bók er auðvitað frá sjónarmiði bókmenntasögunnar merkasta verk Stefáns frá Hvítadal. En mönnum hefur samt orðið alltof starsýnt á „hnignun“ í skáld- skap hans seinni árin. Þannig mátti lesa í grein á aldarafmæli Stefáns (Sig- urður Hróarsson: Mbl. 25. okt. 1987) að hann hafi verið „andlega uppurinn“ þegar hann dó. Sú skoðun er röng, en hún er líklega einkum runnin frá þeim sem andvígir voru pólitískum hugmyndum skáldsins og siðskiptum til kaþ- ólskrar trúar. Hér skiptir miklu hin snjalla ritgerð Halldórs Laxness sem upphaflega kom í Iðunni 1934. (M.a. prentuð í Af skáldum, 1972). Halldór hafði verið trúbróðir Stefáns, raunar guðfaðir hans, og ritað lof um Heilaga kirkju,1924, taldi hana framför frá eldri Ijóðum „sem báru allmikinn keim af norskum demidekadence (hálfúrkynjun).“ Nú sýnir skáldið oss „rammleik °g kyngi, sólborinn, norrænan kraft,“ sagði Halldór þá. Tíu árum síðar hafði hann snúist til félagslegrar róttækni, gegn kaþólskunni, og skoðaði skáld- skap Stefáns á allt annan hátt. Slíkar sveiflur eru ekki fátíðar en þær spilla fyrir allsgáðu mati á skáldskapargildi verka. Satt er það að margt af sálmakveðskap Stefáns frá Hvítadal fyrir kaþólska kirkju er formúlulist sem skortir lífsneista. En þörf hans fyrir andlegt skjól, sem kaþólska kirkjan veitti þessum sveimhuga, var einlæg. Pví er alls ómak- legt það sem Sigurður Hróarsson sagði í fyrrnefndri grein að „tilfinning kvæða hans frá kaþólska tímabilinu (sé) áberandi ópersónuleg og einhvern- veginn svikin í samanburði við einlæga trú förumannsins.“ Það voru kenni- setningarnar og þyngsli dróttkvæðaformsins sem bældu tilfinninguna, sjálf var hún ósvikin. t»ar sem var kjörsvið Stefáns og gáfa hans fékk að springa út naut hann sín vel fram undir það síðasta. Að leiðarlokum gat hann ort glæsi- legt kvæði eins og Fornar dyggðir. Sá sem svo kveður er vissulega ekki „and- lega uppurinn.“ Listatök skáldins á íþrótt sinni eru föst og örugg sem fyrr; kunni menn ekki að meta kvæðið stafar það af andúð á þeirri sveitarómantík sem umvefur það. Stefán snerist gegn „tískunni“, hún er eitt hið neikvæðasta fyrirbæri í skáldheimi hans allt frá upphafi: „Vann mér tískan tjón,“ segir í Aðfangadagskvöldi jóla 1912. Tískan snerist líka gegn skáldinu og hefur svo
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.