Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 51
andvari
Ferð til Bandaríkjanna 1944 45.
Skýrsla og nokkrar tillögur varðandi mitíð
og framtíð landbúnaðar á Islandi.
Eftir Runólf Sveinsson.
I. Tilgangur ferðarinnar.
Eftir að hafa Iokið búnaðarnámi i Danmörku vorið 1936,
ferðaðist ég víða um Danmörku og nokkuð um Norður-
t’ýzkaland og Noreg. Á þessum ferðum heimsótti ég marga
bændur, tilraunastöðvar og bændaskóla. Mér var þá ljóst,
sem ég hel' fengið ennþá fyllri staðfestingu á síðan, að okkur,
sem störfum að landbúnaðarmálum á íslandi, er mikil nauð-
syn að kynnast sem bezt með eigin augum og eyrum öllum
búskaparháttum sein flestra þeirra þjóða, sem standa fremst
í búnaði. Gildir það jafnt um hinn praktiska búskap bænd-
anna, tilraunir og rannsóknir í jarðrækt og búfjárrækt, bún-
aðarfræðsluna og útbreiðslustarfsemi alla á sviði búnaðarins.
Árið 1938 mætti ég á búnaðarsýningunni á Bellahöj í Dan-
mörku. Þá ferðaðist ég aftur nokkuð um Noreg og einnig
8víþjóð. Undanfarin ár hafði ég mikinn liug á að tá tæki-
færi til að ferðast um Bandaríki Ameríku og kynnast búnaði
þessarar stóru og voldugu þjóðar og nýjungum þeim, sem í
þessu landi þróast á sviði búnaðarins, sem þar er einn hyrn-
ingarsteinn atvinnulifs og menningar.
Þrátt fyrir heimsstyrjöld og ýmsa erfiðleika aðra, tókst
mér á miðju sumri 1944 að komast til Bandaríkjanna og
dvelja þar í nærri ellefu mánuði. Ég er Alþingi og rikisstjórn
þakklátur fyrir að hafa veitt mér þetta tækifæri og fyrir fjár-
tiagslegan stuðning til ferðarinnar.
bað, sem ég liafði fyrst og fremst hug á að kynna mér í
4