Andvari - 01.01.1946, Page 53
andvaiii
Ferð til Bandaríkjanna 1044—45
49
til þess að kynna niér loðdýrarækt. Dvaldi ég þar aðallega hjá
norskum sérfræðingi í loðdýrarækt, Brager-Larsen að nafni,.
sem rekur þar stórt loðdýrabú á vegum norsku ríkisstjórnar-
innar. Hann hefur um 1200 fullorðin úrvalsdýr, refi og minka.
tlrager-Larsen mun vera einhver fróðasti maður um loðdýr
°g loðdýrarækt í víðri veröld. Mér þótti því allmikill fengur
nð eiga kost á að kynnast honum.
4. Dagana 2.—9. desember var haldin landssýning á búfé
(aðallega af kjötkynjum) í Chicago. Voru þar sýnd um 6000
úrvalsdýr af ýmsum búfjárkynjum. Ég dvaldi á sýningu þess-
ari alla dagana og reyndi eftir föngum að lcynnast líkams-
kyggingu og verðmæti búfjárins i U. S. A., sem þar var sýnt.
5. Ég heimsótti University of Wisconsin í Madison og dvaldi
þar um vikutíma.
6. Ég var nærri tvo mánuði við University Farm í St. Poul,
Minnesola. Lagði ég þar aðallega stund á að kynna mér liið
nýjasta í kynbótum búfjár. Vann ég mest að því undir leið-
sogn dr. Winters, sem vinnur að þessum hlutum ásamt
ileiru, sem að búfjárrækt lýtur.
Á þessu timabili, er ég dvaldi í St. Poul, fékk ég einnig
tækifæri til þess að sitja ráðstefnu ráðunautanna í Minnesota-
fylki og ein.s konar húsmæðra- og bændaviku, sem haldnar
voru við landbúnaðarháskólann í Minnesota.
Við háskólann í St. Poul starfar maður að nafni dr. Peter-
sen að rannsóknum á hraðari og betri mjöltun á kúm með
nijaltavélum. Er dr. Petersen nii að verða heimsfrægur fyrir
rannsóknir sínar og uppgötvanir á þessum sviðum. Ég kynnti
niér þetta mál eftir föngum hjá dr. Petersen og hjá bænd1-
11111 1 U. S. A., sem flestir mjólka kýrnar með vélum.
U Ég heimsótti Iandbúnaðarháskólana í Fargo North
Dakota, Corvalis Oregon, Ames Iowa, Lincoln Nebraska, Man-
Uattan Kansas, Bryan Texas, Knoxville Tennessee, Blacks-
bm-g Virgina og Brownsweek New Jersey. Á háskólum þess-
1,111 dvaldi ég yfirleitt 2—8 daga. Ég ræddi við starfsmenn
skólanna, skoðaði byggingar og áhöld, tilraunastöðvar og
búgarða.