Andvari - 01.01.1946, Síða 56
52
Runólfur Sveinsson
ANDVAHI
4. Heyverkun.
Aigengasta þurrheysverkun er nú í Bandaríkjunum nieð
þeim hætti að þurrka lieyið að mestu leyti inni í hlöðunum.
Það er franikvæmt á þann hátt, að grasið er slegið í þurrki
og látið liggja aðeins hálfan dag eða svo. Þá hefur það þornað
all-mikið og er síðan ekið inn í hlöðuna, en þar er blásið lofti
í gegnum það í nokkra daga, þar til að heyið er geymsluþurrt.
Við þessa aðferð vinnst það meðal annars, að mest af þeim
^erðmætu fóðurefnum, sem í grasinu eru, þar á meðal ýmis
hætiefni, lialdast í heyinu, þegar sól nær ekki að haka það
nema takmarkaðan tíina. Sums staðar er verðmætt gras, svo
sem alfa-alfa og fleiri belgjurtir, þurrkað í vélum og malað.
Þessi aðferð reynist þó alltaf nokkuð dýr.
Votheysverkunin er algeng í U. S. A. og nær eingöngu franx-
kvæmd á þann hátt, að grasið (sem oftast er mais) er skorið
niður í ca. 1 cm langa búta og því síðan blásið með sömu vél
og það er skorið með upp í ca. 15 m háa sívalninga. Þar press-
ast grasið saman, jneðal annars af eigin þyngd sinni, og
geymist vel og heldur nær öllum efnum sínuin óskemmdum.
Sú aðferð er líka þekkt og dálítið notuð í Bandaríkjunum að
bianda geymsluefnum í heyið, svo sem úrgangssyliri eða sýr-
um. Mér var sagt af þar um fróðum mönnum, að ef rétt væri
að farið við votheysgerðina, þyrfti ekki að nota nein geymslu-
efni, sem alltaf hljóta að hafa nokkur aulcaútgjöld í för
með sér.
5. Búfjárræktin.
KlesL búfjárlcyn, sem nú eru ræktuð í Bandaríkjunum, eru
flutt þangað frá fJvrópu og eiga næstum öll rót sína að rekja
til Bretlandseyja. Þau hafa á undanförnum áratugum verið
i-æktuð og kynbætt svo, að ýmis þeirra eru nú betri í U. S. A.
en í nokkru öðru landi lieims.
A. Nautgriparæktin greinist í tvo höfuðflokka, kjötkyn og
mjólkurkyn. Af kjötkynjunum eru Herford, Aberdcen Angus
og Shorthorn verðmætust og algengust í U. S. A. Af mjólkur-
l<.ynjunum eru Holstein, Jersey, Guernsey, Arsliire og Brown
Swiss verðmætust. Enn fremur eru tvö kyn, sem eru hvoit