Andvari - 01.01.1916, Blaðsíða 15
Andvari.] Jóhannes Júlíus Havsteen amtinaöur.
7
um stúdentum hálf ervitt að ná prófi, fengu annað-
hvort ljelegt próf eða alls ekkert.
Samsumars 1860 hjelt hann lieim til íslands,
og dvaldi hjá foreldrum sínum næsta vetur, en sigldi
aptur sumarið 1867, og gerðist þá fulltrúi hjá amt-
manninum í Holbæk amti. Haustið 1870, þegar Magn-
ús Stepliensen var settur assessor í landsyfirrjettinum,
fjekk Júlíus Havsteen frá 1. oklbr. aðstoðarsjrslan
Magnúsar í íslenzku stjórnardeildinni, er þá var svo
nefnd, en 1874 varð stjórnarráð íslands. Þessari
sj'slan gegndi hann í 10 ár. Öll þau ár og lengur var
Oddgeir Sfephensen deildarstjóri, en danskur maður,
Reinhardt að nafni, var skrifstofustjóri; árið 1880 fjekk
Reinhardt þessi lausn frá embætti, og bjóst Júlíus Hav-
steen þá eðlilega við, að verða skipaður skrifstofu-
stjóri, en það brást. Oddgeir fjekk frænda sinn,
Hilmar Stephensen, skipaðan í það embætti; liann
var að vísu mikilhæfur maður, en hann var aldansk-
ur, og alveg ókunnur íslenzkum málum, og skildi
ekkert í íslenzkri tungu. Tóku íslendingar í Höfn
þetta óstint upp, og þótti íslenzku þjóðerni misboðið,
sem því og vissulega var, Júl. Havsteen þótt sjer ó-
rjettur gjör og sat það lengi í honum síðan. Árið
eptir sótti Kristján amtmaður Christianson um lausn
trá embætti, og var þá Júlíus Havsteen settur til að
gegna amtmannsembættinu norðan og austan frá 1.
júlí 1881, og tók hann við því í mestu óreglu og í
litlu álili.
Christianson amtmaður hafði á yngri árum ver-
ið einn með duglegustu embættismönnum þessa lands,
og verið alment vel metinn, enda mikill gáfumaður
og góður lögfræðingur, en hann var altof gamall,
þegar hann tók við amlmannsembætti, 65 ára að aldri,