Andvari - 01.01.1916, Blaðsíða 28
20
Jóhannes Júlíus Havsteen amtmaður. lAndvari.
staðið fyrir þeim samtökum. Orð framsögumanns
nefndarinnar, Jóns Ólafssonar, sj'na bezt alla afstöð-
una í þessu einstaklega tilfelli. Hann segir svo:1)
»Jeg er sjálfsagt sem framsögumaður þessa máls í
þeirri einstökustu afstöðu lijer í deildinni, af því
að nefndin, sem jeg er framsögumaður i, er sjálf í
þeirri einstökustu afstöðu, sem nokkur nefnd að lík-
indum liefur nokkru sinni í verið á nokkru þingi;
ástæðan er sú, að nefndin var svo gálaus, að taka
eingöngu tillil til sannfæringar sinnar og lagði til í
liverju atriði það eilt, sem hún áleit rjeltast, sann-
gjarnast eða bezt við eiga, en henni gleymdist að
taka tillit til liugðmála, liagsmuna og kjördæmiskepp-
hesta einstakra þingmanna, (ekki gat það náð til
amtmanns Havsteen, því hann var ekki þingmaður
fyrir neitt kjördæmi), hjer í deildinni, og því var
hún beitt því bragði, sem fá dæmi munu vera til,
að skipuð var yfirfjármálanefnd af öllum þeim þing-
mönnum lijer í deildinni, sem fyrir utan nefndina
voru.......... Væntanlega mun hinn 1. kgk. þm.
halda uppi orðum fyrir yfirfjármálanefndina..........
Jegvona, að hv.l.kgk. þm. (J. Ilavsteen) haldi uppi
framsögu af hendi sinnar nefndar, og sjerstaklega geri
grein fyrir atkvæðagreiðslu liennar, sem virðisl ganga
út á það, að láta ekki standa eill orð af því, sem
nefndin lagði lil«. Framsögumaður fór ekkert inn á
einstök atriði, og umræðurnar við 2. umr., sem er
aðalumræðan, voru svo stultar, að þess eru engin
dæmi fyr nje síðar. Amtmaður svaraði þessu svo
sem engu, en ræddi aðallega um sínar eigin hreyt-
ingatillögur, og sama gerðu aðrir »samsærismenn«,
1) 1. c. bls. 703.