Andvari - 01.01.1916, Blaðsíða 122
114
Skafli lögsögumaður f’óroddsson.
[Andvarl.
af hernaði og víkingaferðum, Haraldssonar, konungs
á Ögðum. Þóroddur goði var höfðingi mikill, en
kona hans og móðir Skafta var Rannveig Gnúps-
dóttir, Molda-Gnúpssonar, Hrólfssonar höggvanda á
Norðmæri. Systir Rannveigar var Geirný, kona Önund-
ar á Mosfelli, og var einn barna þeirra Hrafn (Skáld-
Hrafn), sá er deildi við Gunnlaug Ormstungu um
Helgu hina fögru Þórsteinsdóttur á Borg. Systir
Skafta var Þórdís, kona Gissurar hins livita Teits-
sonar. Sonur þeirra var ísleifur biskup, faðir Giss-
urar biskups og þeirra bræðra. Kona Eyvinds, en
móðir Þórodds goða, föður Skafta, var Þórvör Þór-
móðsdóltir Skafta, Ólafssonar breiðs, Einarssonar,
Ölvissonar barnakarls. En systir Pórvarar var Þór-
veig (eða Þórvé) og var af henni kominn Snorri
Sturluson í móðurætt.
Skafti Þóroddsson mun vera fæddur á Hjalla í
Ölfusi, en hvergi er þess þó beint getið, hvar hann
sje fæddur, en með því að eigi er annað vitað, en
að þar hafi búið foreldrar hans, en livergi annar-
staðar, þá mundi mega telja víst, að þar sje Skafti
fæddur. Eigi er það ritað, nær hann sje fæddur, en
sú er ætlun manna, að hann muni fæddur vera
nokkru eftir miðja 10. öld eða á árunum 960—970,
Á Hjalla hefur liann verið upp fæddur með föður
sínum, og liefur, ef lil vill, haft búnað þar á síðustu
árum föður síns, en tók þar við búi og goðorði eftir
föður sinn, en Þóroddur mun hafa andazt 1002—
1003. Þóroddur goði var vel lögfróður og má ætla,.
að Skafti hati numið lög að honurn, en liann átti og
góðan kost þess, að nema lögin, með því að hlýða
á uppsögn laganna á alþingi, en þangað liefur liann
sótt á hverju sumri, enda átti hann heima í nándi.