Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 10

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 10
TOMAS GUDMUNDSSON FAEIN ORD Á FOLLVELDISAFMÆLI Ritstjórn Stúdentablaðsins hefur boðið mér rúm fyrir nokkrar línur vegna full- veldistökunnar fyrir fimmtíu árum. Eg met þau tilmæli til mikillar vinsemdar, eða — ætti ég fremur að segja — til samúðar með manni, sem orðinn er nógu gamall til að muna svo langt aftur í tímann. En hvort heldur er, kann ég hinum ungu stúdentum góðar þakkir. Annað mál er það, að ég hef átt dálítið annríkt að undanförnu og sé ekki enn fram á, að ég geti sinnt Stúdentablaðinu að neinu gagni. En jafnvel þótt ég reyndi í örfáum orðum að skýra frá því, hvernig heimurinn kom mér fyrir sjónir hinn 1. desember 1918, gæti ég tæplega vænzt þess, að sú upprifjun hefiði sögulega þýðingu. Og ég get því síður borið um það, hvernig til- veran leit út í augum jafnaldra minna um þær mundir. En víst eru mér þessir haustmánuðir 1918 í fersku minni. Ég var þá seytján ára piltur í 4. bekk Menntaskólans, þeim hin- um sama og seinna hefur verið kenndur við skáld sín, óþarflega mörg, og vitanlega höfðu viðburðir þeirra daga mikil áhrif á okkur unglingana. Það hefði minna þurft til. Og nú vill svo vel til, að ég hef áður reynt að lýsa stærstu dráttunum í ásýnd þessara undarlegu tíma, og get fylgt því hér. Því að satt er það — þetta voru undarlegir tímar og miklir af sjálfum sér. Það má fá liugboð um þetta, ef litið er í annál haust- mánaða 1918. Þar rekur hver stórviðburð- ur annan. Hver dagur rís undir voveiflegu tákni. Einn kyrran októberdag ber rauða eldsúlu við loft í austri. Það er Katla, sem er tekin að gjósa, og næstu kvöld ganga menn upp að Skólavörðu og horfa í undrun og ótta á Jretta ferlega gamlárskvöld höfuð- skepnunnar. Á þessu gengur næstu vikur. Þá er Katla þrotin að kröftum, en í svip- aðan mund og eldnornin hefur dregizt í híði sitt, er öðrum og enn geigvænlegri hildarleik lokið. í fyrsta sinn eftir fjögur ár er fáni friðar dreginn að hún um víða ver- öld. En hér í Reykjavík er enginn viðlátinn að sinna slíkum degi. Bærinn engist í skugga hryllilegrar drepsóttar, sem breytir fjórðu hverri vistarveru í líkhús. Þessi sami skuggi hvílir enn yfir bænum hinn 1. des- ember, þegar þegjandalegir menn safnast fyrir framan og sunnan Stjórnarráðshúsið til að fagna stærsta sigurdegi þjóðarinnar — fyrsta fullveldisdeginum. Nei, þessum und- arlegu dögum verður ekki lýst fyrir nein- um þeim manni, sem ekki lifði Jrá. En Jrað er einnig satt, að óharðnaðir unglingar geta fullorðnazt æðihratt í návist svo tröllslegra viðburða. Magnþrungin ringulreið áhrifanna fyllir Jrá orku, sem þeir kunna ekki sjálfir nein skil á. Það er eins og verið sé að hlaða „batterí“. Og með einhverju móti verður þessi orka að fá út- rás. Og kannske er Jrað skýringin á allri þeirri skáldskaparástríðu, sem sótti svo mjög á okkur, hina ungu menn í Mennta- skólanum. Og 1. desember 1918? Ég stóð með félög- um mínunr við stjórnarráðsgirðinguna í Bankastræti og horfði á, þegar hinn íslenzki fáni hófst að hún og blakti Jrar í fyrsta sinn yfir frjálsu íslandi. Víst var Jretta áhrifarík sjón og man ég vel, að sumu roskni fólki vöknaði um augu. Slíkt líður ekki úr minni, og enn finnst mér sem ég hafi þarna, í fyrsta og síðasta sinni á ævinni, staðið frammi fyrir þjóð, sem komin var um lang- an veg út úr nótt og dauða, hafiði Jrolað ofurmannlegar raunir, en lifað af vegna þess, að hún hafði alla tíð varðveitt vonina um Jrennan dag í hjarta sínu. Ég held, að okkur öllum, ungum sem gömlum, hafi þótt mjög vænt um land okkar Jrá stundina. Og er það ekki tiltöku- mál. En þegar ég nú skyggnist um í hópi okkar félaganna á næstu árum eftir 1918, finnst mér einnig bera á því, kannski tals- vert meira en ég hef orðið var við seinna, að ungum mönnum í Jrá daga hafi einnig þótt vænt um Jrjóðfélag sitt. Og megi ég að lokum bera fram einhverja ósk á fimm- tíu ára fullveldisafmæli Jrjóðarinnar ís- lenzkum stúdentum til handa, verður hún umfram allt sú, að Jreir megi ávallt bera gæfu til að unna landi sínu, en einnig, og í engu minni mæli, að þykja vœnt um þjóð- félag sitt. Tómas Guðmundsson. STÚDENTABLAÐ 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.