Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Page 25

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Page 25
an kostnað etc. etc. Það er einnig erfitt að bera ótakmarkaða virðingu fyrir stjórn- vizku ríkisvaldsins og réttlætiskennd þegar launum er svo misskipt milli starfshópa með svipaða menntun og ábyrgð í starfi, að einir skulu þurfa að láta sér nægja til lífs- viðhalds svipaða upphæð og þingmenn skammta sér fyrir vasaaura, en aðrir hafi sömu upphæð með einn tölustaf fyrir framan. Þá torveldar það þjóðinni allan skilning á vaxandi nauðsyn sparnaðar, þegar hún liorfir upp á það, að skortur á skólahúsnæði fer sífellt vaxandi svo að nú horfir til vand- ræða, en á sama tíma rísa mót himni gler- hallir prýddar hvers kyns skrauti fóðraðar með suðrænum harðvið, sem er jafnvirði þyngdar sinnar í smjöri, þar sem hundruð manna dunda við það að telja og flytja til bráðum einskisverða peningaseðla. Þeim mun hærra sem bankahallirnar rísa, þeim mun hraðar er krónan felld og þó segja fróðir menn að öll þessi fjármálastarfsemi gæti farið fram í hinni minnstu þeirra með broti af starfshópum væri fullkominnar vinnuhagræðingar gætt. Þó munu allir vitibornir menn játa það, að engin fjárfesting sé fljótari að skila þjóð- arbúinu arði en sú, sem lögð er í aukna menntun og lærdóm. En allt um það er engin ástæða til þess að efast um, að nú fari erfiðir tímar í hönd, hvort sem þetta él verður langt eða skammt. Þjóðinni ber samt að minnast þess nú á þessum hátíðisdegi, sem svo bundinn er minningum fagnaðar og fullveldis, að sii þjóð, sem hefur byggt þetta land í nær ellefu aldir og mætt öllum þeim þrenging- um, sem á íslendingum hafa dunið, og lifað af, ætti að jrola eitt él í viðbót, eiga sér viðreisnarvon þótt syrti í svip, ef hún miss- ir ekki kjarkinn og gætir þess að kalla þá að stjórnveli J^jóðarskútunnar, sem ekki eru líklegir til þess að hrökkva undan hverjum vanda, né hleypa undan hverju veðri og vita því ekki hvar lenda skal. EJS Svcinn Björnsson tlytur óvorp Fró hótiðahöldunum 17. júni 1944 25 STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.