Stúdentablaðið - 01.12.1968, Síða 52
Frá Féfagi yið-
skipfafræðinema
Starfscmi Félags viðskiptafræðincma
var með allra mesta móti á síðastliðnu
starfsári. Stjórnina skipuðu: I>ráinn Þor-
valdsson, form.; Björn Theodórsson, rit-
ari; Margrét Þóroddsdóttir, gjaldkeri;
Páll Gústafsson, form. AIESEC-nefndar;
Valdimar Tómasson, NHS-ritari og
Björgvin Schram og Bergþór Konráðsson,
ritstjórar.
A liðnu starfsári bar Norrania for-
mannarádstejnu efalaust hæst, en liún
var Jialdin hér á landi í fyrsta sinn frá
þvi að Félag viðskiptafræðinema gerðist
aðili að NHS, Sambandi norrænna við-
skipta- og hagfræðinema.
Erlendir gestir á ráðstefnunni voru 13,
en fjöldi viðskiptanema hér við liáskól-
ann tók þátt í ráðstcfnunni, auk for-
manns félagsins. Bjuggu hinir erlendu
gestir á einkaheimilum, en snæddu á veit-
ingastað f Reykjavík. Þótti ráðstefnan
takast með ágætum.
Funclastarfsemi var lífleg á árinu. Tveir
kynningarfundir fyrir nýstúdcnta voru
haldnir. Á öðrum þeirra í liyrjun nóv-
cmber var starfsemi Félags viðskiptafræði-
nema kynnt, og síðan ræddi próf. Guð-
Iaugur Þorvaldsson almennt um námið í
deildinni. Þá var og iialdinn sérstakur
kynningarfundur, þar sem nýstúdentar
voru „vígðir" til náms með viðhöfn, en
sá háttur hefur verið tekinn upp við
deildina.
Stjórn félagsins tók upp þá nýbreytni
að rita erlendum sendiráðum með ósk
félagsins um að fá að heimsækja þau og
kynnast atvinnu- og menningarlífi við-
komandi landa. Aðeins barst svar frá hinu
bandaríska og var það heimsótt í boði
Karls F. Rolvaag, ambassadors. Voru
fluttir fyrirlestrar um Bandaríkin og sýnd
kynningarkivkmynd. Þá voru allir gcst-
komendur leystir út með bókagjöfum.
Tveir kvöldfundir voru haldnir á veg-
um félagsins: Annar var haldinn í febrú-
ar, þar sem Ólafur Nílsson, skattrann-
sóknarstjóri skýrði frá starfsemi embættis
skattrannsóknarstjóra og rætt var um
skattaeftirlit ríkisins almennt.
Hinn fundurinn var haldinn að Hótcl
Sögu með prófessorum deildarinnar. Var
þar rætt um deildarmálefni og þrír við-
skiptanemar höfðu framsögu, hvcr um
einn málaflokk.
Tveir visindaleiðangrar voru farnir:
Hinn fyrri var innanbæjar og þá heim-
sótt fyrirtækin O. Johnson & Kaaber ann-
ars vegar og Verksmiðjan Vífilfell hins
vegar. Þótti sá lciðangur takast með ágæt-
um. Síðari vísindaleiðangurinn var til
Vestmannaeyja, og var þar dvalið yfir
helgi. V'ar staðurinn skoðaður og at-
vinnulíf kynnt í boði bæjarstjórnar. Voru
viðskiptanemar mjög ánægðir með þann
leiðangur, enda móttökur Eyjabúa með
mikltim ágætum.
Hin árlcga Mágusarhátið, en svo nefn-
ist árshátíð dcildarinnar, var haldin 8.
marz. Hófst hátfðin á sal Háskólans, þar
sem iðnaðarmálaráðherra, hr. Jóhann
Hafstein, ræddi um iðnþróun á íslandi og
framtíðarþróun í iðnaðinum. Þá var
Mjólkursamsalan heimsótt og rekstur
hennar kynntur. Um kvöldið var dans-
leikur og borðhald að Hótel Loftleiðum,
en aðalræðumaður kvöldsins bar Bjarni
Bragi Jónsson, hagfræðingur.
Félag viðskiptafræðincma cr aðili að
AIESEC, sem er alþjóðlcg samtök við-
skipta- og hagfræðinema. Gangast sam-
tökin árlega fyrir gagnkvœmum nem-
endaskiplum, þannig að hingað koma er-
lendir viðskipta- og hagfræðinemar, en
islenzkir halda utan. Útvega viðkomandi
félög síðan þcssum skiptinemum atvinnu
í viðkomandi löndum. Hingað komu 5
stúdentar, en 6 fóru titan.
Á liðnu starfsári kom Hagmáil, blað
deildarinnar, út einu sinni, en auk þess
var nýtt rit á vegum deildarinnar, Mág-
usarfréttir, gefið út, en því riti er ein-
göngu ætlað að flytja deildarfréttir og er
dreift innan deildarinnar, en Hagmál er
rit, sem flytur vísindalegar greinar um
hagfræðileg málefni, og er dreift utan
skólans, sem og innan deihlarinnar.
Á vegum félagsins starfar vinnumiðlun,
sem eins og nafnið bendir til, vinnur að
þvf að útvega viðskiptanemum og verð-
andi kandídötum atvinnu. Er ráðgert að
auka starfsemi vinnumiðlunarinnar f
framtfðinni.
Að auki mætti hér geta nokkurra hags-
munamála nemenda Viðskiptadeildar,
sem unnið var að á árinu. Er þcss fyrst
að geta, að reglugerð deildarinnar var
breytt á s.l. vetri, og tóku nemendur all-
ríkan þátt í undirbúningi þeirra. Þá er
og þess að gcta, að nemendur voru á s.l.
hausti mjög óánægðir með kennsluskrá
deildarinnar og fengu henni breytt í sam-
ráði við prófessora deildarinnar. Má
segja, að samstarf nemenda og prófessora
í deildinni sé mjög gott, báðum aðilum
til heilla.
Auk framangreinds er þess að geta, að
Félag viðskiptafræðinema gegnst mánað-
arlega fyrir hádegisverðarfundum um at-
vinnu- og efnahagsmál, og eru til þess
fengnir fyrirlesarar.
í þessari yfirlitsgrein hcfur aðeins ver-
ið stiklað á stóru og drepið á það helzta.
Segja verður, að félagslíf innan deildar-
innar sé mjög gott, og almenn þátttaka í
því. Verður að vona, að svo verði í fram-
tíðinni.
í stjórn Félags viðskiptafræðinema fyrir
næsta starfsár eru: Agnar Friðriksson,
form.; Magnús Gunnarsson, varaform. og
ritari; Sveinbjörn Óskarsson, gjaldkeri;
Ármann Orn Ármannsson, form. AIES-
EC-nefndar; Reynir Eiríksson, NHS-rit-
ari og Brynjólfur Bjarnason, formaður
ritnefndar.
Agnar Friðrilcsson.
Fró Félagi
stúdenta
í heimspekideild
Félag stúdenta í lieimspekideild var
stofnað 3. febrúar 1966 og er þar með
yngsta deildarfélag innan háskólans, en
jafnframt það fjölmennasta. Áður hafði
Mímir, félag stúdenta í íslenzkum fræð-
um, gegnt þvf hlutverki að gæta hags-
muna stúdenta í deildinni. Eftir að nám-
greinum fjölgaði og nám í deildinni varð
yfirgripsmeira, leiddi af sjálfu sér, að
Mímir, scm jafnframt ber skýringarheit-
ið: félag stúdenta í íslenzkum fræðum,
gat ekki komið fram sem hagsmunafélag,
né starfað sem fulltrúi allra stúdenta í
deildinni gagnvart stjórn deildarinnar og
æðstu stjórn skólans. Og þrátt fyrir að
íslcnzk fræði (íslenzka og sagnfræði) væru
sett inn í B.A.-kerfið og þeir stúdentar í
íslenzku, sem lesa til B.A.-prófs eigi þar
með í mörgn tilviki svipaðra hagsmuna
að gæta og þeir, sem lesa undir sama próf
í öðrum greinum, gat Mímir ckki starfað
sem félag allra námsgreina. Fyrsti for-
maður og einn aðalhvatamaður að stofn-
un Félags stúdenta í hcimpekideild var
Björn Teitsson, |>á Björn Þorsteinsson og
eftirmaður hans Atli Rafn Kristinsson.
14. nóvember s.l. var haldinn aðalfundur
og þá kosnir í stjórn: Sigurður Benja-
mínsson, formaður; Hrefna Arnalds;
Gfsli Magnússon; Valdimar Gunnarsson
og Guðmundur Víðir Gunnlaugsson,
ásamt þriggja manna varastjórn.
Starfsemi félagsins er ýmsum vand-
kvæðum bundin og hefur það í mörgu
tilliti sérstöðu meðal deildarfélaga í H.f.
Samt sem áður hefur verið reynt að
gera sitt livað, scm menn hefðu gagn og
ánægju af. Á hverju vori er efnt til ferða-
laga og var fyrsta vorið farið um Borgar-
fjörð; næsta vor heimsóttu heimspeki-
deildarstúdentar Laugarvatn og Skálholt
og síðastliðið vor var svo farið um Þjórs-
árdal og Búrfcllsvirkjun skoðuð undir
leiðsögn verkfræðings, sem útskýrði
leyndardóma þessa mikla mannvirkis.
Gerð var tilraun með námskynningu
innan deildarinnar f haust, aðallega ætl-
uð nýstúdentum, þar scm eldri stúdentar
miðluðu af reynslu sinni í sambandi við
námið. Miklu fé var cytt til að auglýsa
kynningu þcssa og má scgja að það hafi
að mestu leyti farið forgörðum, því fáir
komu. Ef til vill hefur kynningin verið
af snemma á ferðinni, nýstúdentar ekki
komnir nægilega inn í námið til þess að
geta spurt um hina ýmsu þætti þess.
Síðastliðinn vetur reyndu stúdentar í
latínu til forprófs að fá námsefni í
greininni minnkað, þar eð vinna í sam-
bandi við námið þótti sízt minni cn f
aðalgreinum. Stjórn félagsins vann að
lausn þessa máls f samvinnu við stúdenta
þá, sem hlut áttu að máli. Skipuð var
nefnd af hálfu prófessora til að kanna
málavöxtu og gerði hún tillögur, er fólu
í sér minnkun á námsefni og jafnframt
rýmkun á tfmatakmörkun. Fengu stúd-
entar þar með framgengt óskum sínum.
Slfk samvinna milli stjórnar Félags stúd-
enta í heimspekideild og hagsmunaliópa
innan deildarinnar er æskileg.
f vor fékk félagið loks fastafulltrúa á
deildarfundum (fundum prófessora og
kennara deildarinnar). Þrátt fyrir að full-
trúinn liafi ekki atkvæðisrétt, er hér um
að ræða mikilvægan, en jafnframt sjálf-
sagðan áfanga á leið stúdenta til meiri
álirifa á stjórn skólans.
Samkvæmt reglugerðarbreytingu fer
kennsla í landafræði (landa- og jarðfræði)
nú fram í verkfræðideild og starfar þá
Félag stúdenta í landafræði ekki lengur
innan heimspekideildar.
Flcstum mun kunnugt um niðurfell-
ingu greinar um almenn málvísindi og
hljóðfræði til forprófs úr reglugerð nú f
liaust. Félagið beitti sér fyrir upptöku
þessa ákvæðis aftur í reglugerð ásamt
fulltrúa sfnum á deildarfundum, Helga
Þorlákssyni og formönnum S.H.Í. og
mcnntamálanefndar S.H.Í. Hófst kennsla
aftur f nóvember.
Félagið hefur ennþá ckkert afdrep
fengið fyrir starfsemi sína og veikir þetta
að sjáfsögðn enn frekar aðstöðu félagsins,
en von er að með tfð og tfma rætist úr
þessu, þó að hugtakið „tfð og tími“ láti
dauflega í eyrum.
Þegar þetta er ritað er fyrirhuguð út-
koma lítils bæklings á vegum félagsins.
Tilgangurinn er í og mcð að vckja at-
liygli á tilvist félagsins, auk þess scm
drepið verður á ýmis mál, er félagið
varða. Gæti bæklingur þessi c. t. v. orðið
vísir að stærra blaði, sem kæmi út reglu-
lega, vettvangur ýmissa mála, er varða
deildina, og þá væri loks fenginn grund-
völlur undir öfluga starfsemi — fastur
punktur, sem starfsemin gæti snúizt um.
Að lokum er sú ósk, að stúdentar f
hcimspekideild sýni félagi sínu meiri
áhuga en verið hefur, því á þeim veltur
liagur þess. Nóvember 1968.
Atli Rafn Kristinsson.
STÚDENTABLAÐ
52