Fálkinn - 19.12.1931, Qupperneq 26
20
F Á L K 1 N N
ingunni stór kenslustofa en
annars eru þar líka ibúðarher-
bergi fvrir starfsfólk, og
geymsla.
Eldhúsið er í kjallarahæð
stórri eldastofu og ýmsum
með stórri eldastofu og ýmsum
minni herbergjum, matar-
gevmslu, uppþvottarherbergi,
kæliklefum, borðstofu sta»fs-
fólks o. fl. en matur sjúklinga .
er allur fluttur í sjerstakri lyftu
upp á sjúkradeildirnar. Þarna
er matreitt daglega fyrir um
180—190 manns.
Þvottahús er i sjerstakri
byggingu og búið nýtisku á-
liöldum. Þar er ekki eingöngu
þvegið fyrir Landspítalann
heldur líka fyrir Vífilstaðahæli,
Kleppsspitala og ríkisskipin,
stundum upp undir 70000
plögg á mánuði.
1 þvottahúsinu eru auk þess
sótthreinsunarofnar og gufu-
ketill. í vesturenda byggingar-
innar er líkhúsið.
I Landspítalanum eru 3 skól-
ar. Þar fer fram kensla lækna-
nemenda, bæði í kenslustofu og
við sjúkrasæng, og þeir taka
þátt í daglegum störfum á spít-
alanum. Þá er þar Ijósmæðra-
skóli og eru þar nú 11 ljósmóð-
urnemar, sem búa í spítalanum
og taka þátt í dagiegum störf-
um í fæðingardeildinni. Loks
er þar hjúkrunarkvennaskóli
og kensla líka þar bæði bóklég
og verkleg. Hjúkrunarnemar
eru 13 og búa í spítalanum og
starfa á deildunum.
Læknar spítalans eru 8: yfir-
læknar 3: yfir Röntgen, lyflækn-
is- og handlæknisdeild og 1 að-
stoðarlæknir á hverri þessara
deilda. Á lyflæknis- og iiand-
læknisdeildtinum er auk þess 1
kandídat á hvorri deild og er
hagað svo til, að altaf sje ein-
liver læknir í spítalanum, hvort
heldur er á nótt eða degi.
Hjúkrunarkonur eru 8, auk 1
yfirhjúkrunarkonu og Ijósmæð-
ur eru 2.
Miðstöö er i spítalanum til
upphitunar og hefir lengst af
verið hitað upp með kolum en
nú í vetur hefur heitu' vatni úr
Laugunum verið veitt í spítal-
ann til upphitunar og hefir
reynst vel það sem af er þótt
ekki sje hægt að leggja fulln-
aðardóm á það ennþá.
„Gula stríöið“ milli Japana og Kínverja lxeldur enn áfram og fá stór-
veldin ekkert við ráðið. Veitir Japönum belur, því að þeir hafa lært
listina hjá Evrópumönnum. Myndin er ár frjettastofu hermálaráðuneytis-
ins, þar sem verið er að skoða uppdrœtti sem sýna afstöðu hersins.
Maryar af stórbyggingum í New York eru stœldar eftir fyrirmyndum
frá gömlum byggingum í Evrópu, þó að erfitt sje að sjá það í fljótu bragði,
þvi að járnið, $em er aðal byggingarefnið, setur sinn svip á tiúsin; og
svo eru þau margfalt hærri en fyrirmyndirnar. Hjer á myndinni sjesl
hin fræga Riverside-kirkja í New York, með turnnm í gotneskum stíl,
sem gnœfa við himin. Til vinstri sjest „gröf Grants“ og i baksýn er
Washington-brúin, ein af lengstu brúm í heimi.
Myndin lijer að ofan sýnir klefann, sem Martin Lúther hafðist við í sem
mnnkur í ktaustrinu í Erfurt. Á myndinni sjest borðið, sem hann las og
skrifaði við og hljóðfæri hans.