Fálkinn - 19.12.1931, Side 38
38
F Á L K 1 N N
Þegar
aðalkonsúllinn
fór í sjó!
Aöalkonsúllinn er öruggur i frani
göngu.
( )
Myndugur i formannssætinu.
Virðulegur þegar hann talar á að-
alfundum.
Hvað Danir seg-ja um „Vjer hjeldum heim“.
„Vjer hjeldum heim“ er ekki í neinu tilliti
lakari en sú fyrri ... Hinn glöggi sálarlífs-
skilningur hans og lag hans á, aö láta djúpa
mannlega innsýni koma fram í almennri frá-
sögn og varpa þannig yfir hana skáldlegri
blœju, lielst ekki aðeins óskertur, heldur kem-
ur það jafnvel betur fram í þessari bók.
Svend Borberg í „Politiken".
Það er blátt áfram sorglegt að sjá jafn öruggan,
virðulegan og myndugan mann fara i sjá.
GÖTUSALINN Fyrir 18 ár-
SEM VARÐ um var Se-
MILJÓNAMÆRINGUR. bastino Rug-
-------------------- geri fátækur
götusali í Turin og hafði tæplega
ofan í sig. Svo var það einn dag að
prúðbúin kona kom til hans, þar
sem hann var með kerruna sína og
spurði hann formálalaust: — Vilj-
ið þjer verða miljónamæringur?
Sebastino stóð og glápti á hana,
svo brosti hann og gekk leiðar sinn-
ar. En konan var ekki af baki dottin.
Hún elti hann og sagði honum frá
því, að fyrir fjórurn vikum hefði for-
rík ekkja, Elvira Allegretti gerl hoð
fyrir sig og beðið sig um, að hafa
uppi á syni sínum. Konan var nefni-
lega spákona og skygn og lijet Esther
Francesi. Frú Allegretti hafði sýnt
henni mynd af drengnum sínum, sem
hafði horfið þegar hann var barn.
Nú var maðurinn hennar nýdáinn og
hafði beðið hana á banasænginni að
neyta allra bragða til þess að finna
drenginn, svo að liann gæti fengið
arfinn og notið rjettinda sinna. Þess-
vegna hafði frúin snúið sjer til Esther
Francesi og heitir á hana til liðveislu.
— Og jeg var heppin, sagði hún við
Sebástino. — Þvi að nú hefi jeg
fundið drenginn. Það ert nefnilega
þú. Nú skalt þú koma með mjer
til ekkjunnar og vandinn er ekki ann-
ar en sá, að svara já við öllu sem
hún spyr um.
Sebastino vissi ekki hvað gera
skyldi, en sú skygna tók af skarið og
sagði: Nú skulum við koma inn til
Vigfúsar og þar kaupi jeg lianda yð-
ur ný föt. Þá skyldi hann að henni
var alvara og fór með henni.
Og síðan byrjaði skrípaleikurinn.
Elvira Allagretti fagnaði mjög komu
sonar síns og gerði hann þegar að
einkaerfingja sínum, í þeirri trú að
hann væri rjettur afkomandi henn-
ar. En Esther Francesi, sem vissi að
þetta voru alt svik, ljet unga mann-
inn undirskrifa samning þess efnis,
að undir eins og ekkjan væri dáin,
skyldu þau skifta eignum hennar
með sjer til helminga. Sú skygna
entist ekki tii að bíða eftir arfinum,
því að hún er dáin fyrir nokkrum
árum.
En nýlega dó svo ekkjufrú Elvira
Allegretti. Erfingjar þeirrar skygnu
gerðu kröfu til hálfs arfsins, en Se-
bastino vill ekki borga og segir að
skjalið sje falsað. Nú eru erfingjarn-
ir farnir í mál við hann, en jafn-
framt heíir nýr maður komið fram
á sjónarsviðið og segist vera sonur
frú Allegretti. Svo það er bágt að
vita livar miljónir þessarar hjátrú-
arfullu kerlingar lenda á endanum.
Kona nokkur i Wien leitaði ný-
lega aðstoðar yfirvaldanna að hafa
upp á barnsföður sínum. Henni
vafðist mjög tunga um tönn, er hún
átti að segja nafn hans, en loks var
hægt að fá það upp úr henni, að
hann hafi heitið Toni og hafi verið
málafærslumaður. í Austurríki eru
tii fjölda margir menn með þvi
nafni og þar af allmargir mála-
flutningsmenn. En nokkru síðar
rifjaðist það upp fyrir henni, að
hann hafi líka heitið Schuster. Hann
hafði einu sinni gefið það nafn upp,
jiegar hann símaði til hennar. Nú
varð málið auðveldara í vöfum. Það
var búsettur einn málaflutnings-
maður, sem hjet Toni Schuster, í
Wien. Honum var þegar stefnt fyr-
ir rjett og tilkynt hvað væri á seiði.
En hann ljet ekki svo lítið að mæta.
Var hann því dæmdur faðir að
barninu og átti þar af leiðandi að
gjalda með því, eins og föður ber.
Toni tók nú að rekast i þessu, því
að þegar betur var að gætt var Toni
kvenmaður. En hún fjekk enga leið-
rjettingu mála sinna, því að sam-
kvæmt lögum má ekki ógilda slíka
dóma. Hún situr liví með sárt enn-
ið og verður að gjalda með króan-
um.
Veiöarfæri I
■
■
■
fyrir komandi vertíö
■
ð
i
■
- frá t eyris öngli til botnvörpu -
mmmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
■
veröur NÚ eins og U ND ANFARIÐ
■
■
m
m
m
BEST og ÓDÝRAST
að kaupa hjá mjer.
• :
Biðjið um verðtilboð.
■
■
Heildsala. Smásala.
■
m
■
■
■
0. ELLINGSEN j
reykjavIk.
(Elsta og stærsta veiðarfæraverslun á landinu.)
Simn.: -Ellingsen, Reykjavík.«