Fálkinn - 19.12.1931, Blaðsíða 45
F Á L K I N N
45
Um víða veröld.
----X----
Konunglegir litlagar.
Margir uppgjafa konungar og aðr-
ir þjóðhöfðingjar, sem reknir hafa
verið burt úr löndum sínum lifa nú
i útlegð víðsvegar um Evrópu. Hvað
gera þeir og á hverju lifa þeir?
Enskt blað gaf fyrir nokkru upp-
lýsingar um þetta. Hjer verður far-
ið að mestu el’tir þvi, sem þar stend-
ur.
Wilhjálmur 11.
Ilann er allra rikastur af konung-
legum útlögum. Hann á jarðeignir
á Þýskalandi, sem metnar eru á 25
milj. sterlingspunda. Fyrir innbú
sitt, sem þýska lýðveldið tók, fjekk
liann 750 þús. sterlingspund. Banka-
inneignir lians, þegar liann flýði frá
Þýskalandi voru um 2 milj. sterlings-
punda. Svo tók hann afarmikið af
ættargripum með sjer til Dorn á
Hollandi, þar sem hann nú á heima.
Var það svo mikið, að keisarinn
þurfti 53 járnbrautarvagna, til þess
að flytja alt sitt dót til Hollands. —
Lýðveldissinnar eru mjög argir við
hann, af því að hann seldi nýlega
myndasafn eftir Murillo og Rubens
til Ameriku. Áður hafði það tilheyrt
listasafninu í Berlín, en keisarinn
hafði það á brott með sjer. Vilna
þeir i ræðu, sem hann hjelt fyrir
43 árum og þá sagði hann: „Jeg vil
heldur missa mínar 42 miljónir af
Þjóðverjum, heldur en einn snefil
af þjóðareign Þjóðverja“. Hjer finst
mönnum nokkuð mikil mótsögn
milli orða og gjörða. En sjeð með
hans augum, að „ríkið — það er
jeg sjálfur“, voru myndirnar eign
sjálfs keisarans og hann gat gert við
þær það sem hann vildi. — Enda
þótt að hann sje nú ekki alveg eigna-
laus maður, eins og þið getið sjeð,
þá vinnur hann i sveita sins andlitis
og vinnur að garðyrkju, til þess að
afla sjer brauðs.
Abclul Hamid.
Ekki er hann alveg blásnauður,
karlinn sá! Jarðeignir hans í Litlu-
asíu og Mesopotamiu eru metnar á
300 milj. pund. En hann hefir nú
saml lítið skotsiifur. Hann þarf nfl.
ein ósköp, því hann á fjöldan allan
af konum, sem þurfa mikið og eyða
enn meiru. En þó getur hann hugg-
að sig með þvi, að honum gengur
betur en
Muhamed VI.
Þegar hann var rekinn úr Tyrkja-
veldi 1918 var hann blásnauður.
Ilann átti kvennabúr með 200 kon-
um, en varð að skilja það eftir í
Stambúl (Konstantínópel), af þvi að
hann hafði engin ráð á að kosta ferð
þeirra. Þá hepnaðist systur hans að
smygla úl gimstein, sem hún seldi
fyrir 12 þús. pund. En ekki leið á
iöngu áður en soldáninn varð aura-
laus. Þá ljet hann sumar af konum
sínuiH leika á fjölleikahúsi í París.
En því miður gal ekki leikhússtjór-
inn ráðið til sín allar konur hans,
eins og soldán vildi. Þegar Muha-
med VI. dó, heimtuðu þeir sem sáu
um jarðarförina, að kostnaðurinn
væri greiddur fyrir fram.
.Abdul Medjid.
Þegar hann yfirgaf Tyrkland 1924
átti liann aðeins nokkra skrautgripi,
um 6000 punda virði, en aftur á
móti allslórl kvennabúr. En samtrú-
armaður hans, maharadjahinn af
Haidarabad veitti honum 3600 pund
i árleg eftirlaun. Það er nú lítið fyr-
ir hann, en saml sem áður býr hann
i dýru veitingahúsi hjá Nizza.
Shah Achmet frá Persiu.
llann var aðeins 11 ára þegar
hann kom tii ríkis og var 25 ára
þegar hann fyrst fór til útlanda.
„Sirius“ súkkulaði og kakó-
duft nota allir seni vit hafa á.
1 Gætið vörumerkisins.
Kaupit) i ár gaotilegar
Jðlagjafír & Laugaveg 2.
Prismakikirar 6—8—12—18 sinnuni
Ferðakikirar frá kr. 8,50.
Kompásar, Skrefteljarar.
Vasalmífar í
miklu úrvali.
Tvibur-
arnir.
Rakvjelar og allsk. rakáliöld
Danskar og erlendar Litakassar og litblýantar.
BÆKUR Lindarpenuar og blek.
Fagrar bókmentir og Lestrar- og stækkunargler.
kenslubækur fást fijótast frá Vasaljós. BAROMETER.
EINAR HARCK — — — og auðvitað: GLERAUGU
Oönsk og erlend bókaverslun Flolstræde 33. Köbenhavn K. Biðjið um bókaskrá, senda ókeypis. og falleg gleraugnahús.
MUNli)
i ár að gcra
iólainn-
kaupin ti
Laugav. 2
Slmi 2222
1923 fór hann í fyrsta skifti til Ev-
rópu og varð svo hrifinn af öllu því
sent hann sá, að hann vildi helst
ekki snúa aftur heim. Þegnar hans
urðu sárreiðir og 1925 lýstu þeir
yfir, að hann væri settur af. Ilann
lók því með mestu ró, Hann hafði
nóga peninga. Ilann fjekk mikið fyr-
ir þá. Hann kyntist helstu kaffihús-
um Evrópu, spilaliúsum og drykkju-
krám. Hann dó i fyrra. Þá átti hann
ekki einn einasta skilding eflir.
Amanullah.
Hann yfirgaf Afganistan með 750
franka í vasanum. Góðir menn hjálp-
uðu honum um lán. En það kom í
ljós, að hann var ekki alveg peninga-
laus. Hann hafði á sínum tíma
keypl í Englandi 5 milj. sovereigns
fyrir ríkisbankann i Afganistan, en
liafði verið svo hugulsamur, að
senda liara helminginn heim. Nú
býr hann í Ítalíu. Ekkerl hefir hann
fengið að gera ennþá, svo hann
verður að spara. En samt kvartar
hann ekki.
----x----
Hanarnir í Bagnolles i Frakk-
landi hafa fulla ástæðu til að gala
sigurgali. Borgarstjórinn hafði gef-
ið út skipun um það, að allir hæsna-
eigendur yrðu að gæta þess, að
hanarnir göiuðu ekki á morgana.
Bæinn heimsækja nefnilega margir
baðgestir. Vildi borgarstjóri að þeir
fengi gott næði til að sofa. En
nokkrir borgarar bæjarins grófu
upp lög frá 1884, sem staðfesl voru
í nafni hins franska lýðveldis. Var
þar tekið fram skýrt og skorinort,
að öllum hönum væri heimill að
gala á hvaða tima, sem væri, jafnt
á nóttu sem degi. Varð borgarstjór-
inn að kalla aftur skipun sína.
Hanarnir sigruðu!
----x----
Lögreglulið Lundúnaborgar hefir
verið aukið að 400 manna sveit á
þessu ári. Það kom i ljós, að tala
glæpaverka hafði vaxið frá 17600—
20600 síðaslliðið ár.
„Berliner Tageblatt" segir frá þvi
að geðveik kona i Hamburg hafi
gengið út úr borginni og grafið sjer
dálitla gröf, lagst ni,ður í hana og
rótað mold ofan á sig. Ilún var með-
vitundarlaus þegar lögreglan fann
hana og lifnaði við aftur.
----x----
Besta jólagjöfin
eru hanskar úr
rr_
Viking sagir.
Enn á ný hölum við fengið stóra sendingu al' hinum
heimsfrægu VIKING SÖGUM t. d.: BÚTSAGIR 3 teg.
ELETTISAGIR — BAKKASAGIR — STINGSAGIR —
JÁRNSAGARBLÖÐ — KJÖTSAGARBLÖÐ — STRENG-
SAGAR- og RÚNNSAGARBLÖÐ og fl. fl.
Sá snikkari, sem ekki hefir reynt Víking sagir ætti
að kaupa eina reynslusög. Það er álit þeirra, sem keypt
hafa Víkingsagir; að þær sjeu þær langbestu, sem þeir
hafi nokkurntíma l'engið. Kaupmenn sem versla með
verkfæri og yilja bjóða viðskiftamönnum sínum bestu
sagirnar, ættu að panta Víking sagir, þær svíkja engan.
Kaupmenn biðjið um verðskrá frá
A.B. Lidköping Viking Ságar
Lidköping, (Sweden).
eða frá umboðsmanninum fyrir Island
Járnvörudeild Jes Zimsen
REYKJAVÍK.
íslensk frímerki
notuö og ónotuö kaupi jeg ávalt
hæsta verði. Innkaupsverðlisti
sendur ókeypis þeim er óska.
Gísli Sigurbjörnsson,
Reykjavík. Lækjargötu 2. Box 702.
Duglegir umboðsmenn óskast á Akureyri, Slglu-
firði, Eskifirði og flestum sveitum landsins.
Há ómakslaun
Hanskabúðinni,
Austurstræti 5
mmm Best að auglýsa i Fálkanum iM