Fálkinn - 17.12.1932, Blaðsíða 28
24
F Á L K 1 N N
SSiikrahii.síð á Akureyri
löEklUar jþess híiíi Steíngrim Matthiasson
Eftir að Akureyri var orðin
kauþstaður (18(32) liðu 11 ár
þar fil bærinn eignaðist sjúkra-
hús. Þá var það að liinn danski
kaupmaður Fr. Gudmann sýndi
þá höfðingslund, að gefa bænum
sjúkrabús. Hús þetta liggur í
innbænum undir brekkunni og
beitir nú Gamli spítalinn. Það
er nú eign Sigtryggs timbur-
meistara Jónssonar og leigt út,
til íbúðar nokkrum fjölskyldum.
Þetta bús, gamli spítalinn, var
íbúðarhús tveggja bjeraðslækna
áður en Gudmann gerði það að
sjúkrahúsi 1873.
Eggert Johnsen hjeraðslækn-
ir, sem var hinn fyrsti búsetti
læknir á Akureyri*) (1832—
1855) ljet byggja húsið. Einnig
var það hann sem plantaði 2
reynitrjám við suðurgaflinn.
Stendur nú annað þeirra aðeins
og er það orðið mjög hrörlegt,
enda mun það nálgast liundrað
ára aldurinn, og er langelsta trje
bæjarins. Jón Finsen hjeraðs-
læknir keypti húsið, þegar hann
tók við hjeraðslæknisembættinu
að Eggerti látnum og bjó í þvi
meðan hann var læknir hjer
1856—1867).
Þegar Finsen flutti búferlum
hjeðan til Danmerkur keypti
Gudmann húsið. Læknarnir
Edvald Johnsen (1867—1868)
og Þórður Tómasson (1870—
1873), sem þjónuðu hjeraðinu
næst eftir Finsen bjuggu í hús-
inu meðan þeir dvöldu hjer, en
þegar hinn síðari þeirra var
fluttur burtu, var það, sem Gud-
man fjekk þá góðu hugmynd
að gefa bænum húsið, og gaf
hann bæjarstjórninni kost á að
velja um hvort hún vildi nota
það, sem sjúkrahús eða þurfa-
mannahæli.
Bæjarstjórnin kaus heldur
sjúkrahús. Varði þá Gudmann
allmiklu fje, til að gera húsið
sem best úr garði sem sjúkra-
hús, með sjúkrarúmum (þau
voru fyrst í stað 8 og seinna
12) og hjúkrunargögnum. Enn-
fremur ánafnaði hann bænum í
erfðaskrá sinni 2500 rd. til
slyrktar sjúkrahúsinu, en fyrir
þá upphæð keypti bærinn 5
jarðir (Auðbrekku, Hátún, Svíra,
Þríhyrning og Böðvarsnes).
Rann síðan árlegt afgjald þeirra
lil spítalans. Samtals nam gjöf
Gudmanns um 8000 rd. 1 nú-
gildandi peningum mundi það ei
vera minna en nm 30- 40.000
kr.
Fyrsti læknir við gamla spítal-
ann varð Þorgrimur Johnsen
bjeraðslæknir (1874—1896), og
gat hann sjer fljótt góðan orðstýr
einkum fyrir sullaveikislækning-
*) Á undan honum var danskur
fjórðungslæknir, Hoffmann, kom í
bæinn 1821.
ai, með brunaaðferð er liann
notaði líkt og Finsen.
Annars var fátt um sjúkling i
tíð Þorgríms Johnsens. Það
ríkti venjulegur friður og ró í
skjóli við reyniviðarhríslurnar,
sem breiddu lim sitt fyrir öllum
suðurgaflinum. Spítalahaldarinn
tiafði lítið annríki af sjúkling-
iun, og gat stundað ýmsa at-
vinnu, með þeim hlunnindum,
að liafa fría góða íbúð í sjúkra-
húsinu og afnot af túni þess og
jarðeplagarði.
Næsti læknir sjúkrahússins
\ar Guðmundur Hannesson hjer-
aðslæknir, sem tók við af Þor-
grími og var hjer læknir næstu
11 árin. (1896—1907).
Með Guðmundi Hannessyni
bófst nýtt líf á gamla spitalan-
um, það varð ys og þys, allar
stofurnar fyltust af sjúklingum,
sem leituðu Guðmundar hvaðan-1
æfa af norður- og austurlandi,
því Guðmndur fjekk strax orð á
sjer, sem mikill skurðlæknir.
Kom þá brátt í ljós að gamli
s.pítalinn var óhentuglega bygð-
ur, stofurnar þröngar, stigar
brattir og mjóir, lágt undir loft í
stofunum og skuggsýnt. Þar var
engin nothæf skurðarstofa og
mjög erfitt að koma fárveikum
sjúklingum upp og niður stigana.
Guðmundur var eigi lengi að
sannfæra menn um að nauðsyn
væri á stærra og betra sjúkra-
húsi, og fjekk hann nú bæinn og
næstu sýsluiyamtsráð og Alþingi
til að veita fje til nýs spitala.
Gamli spítalinn var seldur, en
fyrir hann fjekst aðeins kr. 4250.
Það fje sem sargaðist út úr
nefndum stjórnarvöldum var þó
af svo skornum skamti að einnig
þurfti að selja spítalajarðirnar
til þess hin nýja bygging yrði
fullgerð. Andvirði jarðanna (kr.
6000) hefir síðan undir nafninu
jarðeign^sjóður verið tilfært með
eignum sjúkrahússins i árs-
skýrslum þess.
Nýi spítalinn komst upp 1899
og kostaði alls um 25.000 kr.
Hann var bygður úr timbri og
seinna klæddur bárujárni, og
stendur uppi á brekkunni i inn-
bænum nokkru utar en gamli
spítalinn.
1 tíð Guðmundar var þessi
nýi spítali ætíð fjölsetinn að
sumi'i til meðan samgöngur
voru góðai' og sjúklimgar gatu
komist fram og aftur með strand
ferðaskipunum. Þó varð sjúkl-
ingatalan aldrei hærri en 20 og
á vetrum var venjulega fátt um
sjúklinga. Þannig var einnig alt
fram um 1920 í tíð undirritaðs,
sem tók við af Guðmundi 1907.
En um og eftir 1920 fór mjög
að aukast aðsóknin að sjúkra-
húsinu, en þó einkum eftir að
berklavarnarlögin gengu í gildi
1921.
1920 var sjúkrahúsið stækk-
að að miklum mun, var liætt
norðan við það nýrri steinsteypu-
byggingu, kjallarinn grafinn út
og stækkaður, ný hitunartæki
sett í það, raflýsing, ljóslækn-
ingatæki og Röntgentæki o. fl. og
sóttvarnarhúsið vandlega endur-
bætt. Með þessum endurbótum
gat nú sjúkrahúsið i'úinað um
60 sjúklinga og eitt sumarið fór
sjúklingatalan jafnvel upp í 72.
Norður í Vaglaskógi var bygt
sumarhæli fyrir berklasjúklinga,
sem útbú frá spítalanum. Þar
gátu liafst við alls 12 sjúklingar,
6 í húsinu og 6 í tveimur tjöld-
um þar lijá. En þegar Kristnes-
liælið tók til starfa árið 1927 var
skógarselið lagt niður sem
berklahæli.
Nýja sjúkrahúsið, sem áð r
var kallað svo, er nú orðið 33
ára gamalt og þykir nú orðið
svo gamalt og gamaldags að
mörgu leyti, að áhugi talsverður
er vaknaður fyrir því að byggja
enn nýtt sjúkraliús og verður
það sjálfsagt bygt á næstu árum,
syðst á túninu og uppi á Búðar-
gilsbarminum. Munu þá hinir
svonefndu Laxdalsgarðar verða
lagðir undir spitalalóðina og
plantaðir trjám og runnum og
blómum til augnagamans og
skjóls fyrir sjúklingana, sem þar
mega baka sig í sólskininu.
------------------
Spitalinn ú Akureyri með viðbótarbygginyunni frá 1920. Til vinstri
ibúðarhús Stgr. Matthíassonar hjeraðslæknis.
BÓKAVERSLUN.
Kristjáns Guðmundssonar
Glerárgötu 1 AKUREYRI
Fyrirliggjandi eru
flestar þær íslensku
bækur. sem á
markaðinum eru . .
Sími 63. Pósthólf 13.
O o •»lli.' o -'IU.- O ••'llf O ••'llii' ••Mli.'O-'lli.’O-'lli.. O ■•'ln.' O-Mli.'O -%.• O
I Prýdið hús yðar! I
| Fallegasta og besta Húsaklæðn- ?
ingin, sem til er, er
Steinmótað 25°/« koparblandað
galvaniserað járn.
Gerir gömul hús sem ný!
Breytir timburhúsum i steinhús,
hvað útlit snertir.
Umboðsmaður.
GUNNAR GUÐLAUGSSON
byggingarmeistnrl
AKUREYRI SÍMI 257
Pantanir elgreiddar um alt land.
o -niK o -MU.' O ••'lli.- O •"!
-Mh.'O -Mli." O -Mli..O -Mln’O-Mln’ O-M|,.- V
Jón & Vigfús
MYNDASTOFA
Strandgata 1 AKUREYRI
Sími 103 Pósthólf 43
Leysum af hendi hverskonar
ljósmyndavinnu. Myndir
gerðar með ftlium litum.
Lægst verð. Fljót afgreiðsla.
Kaupf jelao ■
Verkamanna
Aknreyrar
■
Matvörudeildin
Strandgotu 9
Vefnaðaðai vörudeildin
Straudgötu 7
Akureyri