Fálkinn


Fálkinn - 17.12.1932, Side 32

Fálkinn - 17.12.1932, Side 32
28 F Á L K I N N Prentverk á Akureyri og bókaútgáfa Minst er lauslega í yfiriti um sögu bæjarins prentsmiSjurekstrar á Ak- ureyri. Nú eru tvær slíkar smiðjur ur í bænum, önnur hin gamla prent- smiðja Björns Jónssonar, fyrr rit- stjóra „FróSa“ og „Stefnis", nú stórum endurbætt um hriS undir stjórn Þórhalls Bjarnasonar, nú prentara í Rvík og Helga, sonar Björns. Helgi er nú einn um stjórn þessarar prentsmiSju. Hin er prent- Oddur Björnsson. srniðja Odds Björnssonar, jafngöm- ul öldinni. Hefir hún jafnan starf- að undir stjórn Odds, nema frá 15. mai 1922 til 1. sept 1926, er þeir Ingólfur Jónsson, nú bæjarstjóri á ísafirði og SigurSur Oddsson á Ak- ureyri fóru með stjórn prentsmiðj- unnar fyrir eigin reikning. ÁSur en Oddur hóf prentstarfsemi á Akur- eyri, hafði hann stundað prentiðn í Khöfn frá því í mars 1889 og þang- að til í júlí 1901, að undanskildu einu ári. Um þriggja ára skeið sótti (J)ddur á Hafnarárum sínum „Fag- skole for Boghándværk“, er þá var nýlega stofnaður, en prentiðn hafði hann lært í ísafoldarprentsmiðju árin 1881—1886. Á Akureyri var aðeins ein prent- smiðja frá 1886 til 1901. Gamla Fróðaprentsmiðjan var auðvitað með handpressu og gekk mjög úr sjer. Margir góðir menn undu þvi illa hjer nyðra, hve mjög prentsmiðj- an á Akureyri var orðin á eftir tím- anum. Það var Guðmundur Hann- esson, þá hjeraðslæknir á Akureyri, sem varð helsti hvatamaður að því, að Oddur Björnsson (f. 1865) settist að á Akureyri. Kom hann út í júlí 1901, með nýja hraðpressu og fjöl- breyttara og fallegra letur en áður hafði tíðkast. Þótti þessi prentsmiðja vera hin fullkomnasta ú íslandi. Hafði hún bæði mikil áhrif og góð. Ekki aðeins varð hún til þess að skapa stórum endurbætta og í alla staði sæmilega prentsmiðju við hiið- ina á sjer, heldur líka til þess að örfa landsmenn, aðallega Norðlinga, til þess að gefa út ýmsisleg rit. Hef- ir því, það sem af er þessari öld, verið tiltölulega eins mikið prentað á Akureyri eins og að frumkvæði einstakra manna í Reykjavík. fíókaforlag Þorsteins M. Jónsson- ar ú 'Akureyri er nú eitt hið mijndar- icgasta og mikilvirkasta ú íslandi, og hefir það gefið út aðeins þjóð- leg rit og þau önnur, er til gagn- semdar horfa og menningar. Þor- sleinn M. Jónsson er einn af mestu atorkumönnum Akureyrar og einna meslur nytsemdarmaður á landi hjer um bókaútgáfu. Er samvinna þeirra Þorsteins og Odds hin besta. Odd- ur Björnsson er smekkmaður mik- ill í list sinni og hefir verið svip- að fyrir Norðlendinga og Sigmund- ur Guðmundsson var fyrir Sunn- ^endinga. í prentsmiðju Odds er setjaravjel, hin eina utan Reykja- víkur. Er hjer sýnishorn af vjela- sal prentsmiðjunnar. í henni vinna jafnaðarlega tíu manns. En setjara- vjelin vinnur fjögurra manna verk. — Sem dæmi þess, hver aðstaða prentsmiðju Odds Björnssonar er gagnvart þeim, er vinna í prent- smiðjunni, er rjett að geta þess, að Oddur varð fyrstur allra prent- smiðjueigenda á landinu til þess af sjálfsdáð að taka upp átta stunda vinnudag í prentsmiðju sinni, þrátt fyrir ýmsa örðugleika, er hann átti við að etja umfram iðnrekendur í Reykjavík. Er Oddur því i raun rjettri brautryðjandi um þá nýjung, að átta stunda vinnudagur er ákveð- inn í prentsmiðjum hjer á landi frá og með árinu 1920. Árið 1922 rjeð Kl. Jónsson, þá- verandi atvinnumálaráðherra, Odd Björnsson, til þess fyrir ríkisins hönd að rannsaka erlendis skilyrði og möguleika fyrir því, að ríkið stofnsetti prentsmiðju. Gerði atvm.- ráðherra þetta, samkvæmt samþykt Alþingis (Efri deildar og meiri hluta alls þingsins). Sigldi Oddur það ár og heimsótti þá og næsta ár flestar merkustu borgir á Þýskalandi, til athugunar málinu og undirbún- ings. Gerði hann allítarlega rann- sókn á þessu sviði. En er hann kom aftur til Reykjavíkur síðla árs 1923, var ný stjórn sest að völdum, og sló hún málinu á frest. Komst það þvi eigi í framkvæmd, fyrr en nokkur- um árum síðar. Hafði O. B. þá afþ ur tekið við forráðum prentsmiðju sinnar á Akureyri. Var þá enn ný stjórn tekin við völdum. Var ríkis- prentsmiðjan stofnsett i öðrum og atkvæðaminni stil en Oddur vildi vera láta. En stjórnin afsakaði sig með því, að hægt hefði þurft að fara af stað í byrjun, svo að nytjamál þetta næði framgangi, ríkissjóði til tekna, og að sem minst rask yrði á jafnvægi prentsmiðja við stofnun ríkisprentsmiðju. Geta má þess, í sambandi við starf Odds Björnssonar á Akureyri að hann hóf merkilegt menningar- fyrirtæki í Kaupmannahöfn. Það var „Bókasafn alþýðu“. Útgefandinn bar áreiðanlega ekki eigin hag fyrir brjósti. Bækur hans báru bæði um efni og ytri frágang, langt af því, sem tíðkaðist um það leyti á landi hjer. Áttu bækur þessar mikinn þátt í að opna augu islenskrar alþýðu fyrir nytsemi góðra bóka og‘ glæða smekk hennar fyrir fögru máli og fagurri bókagerð. „Uranía“ er skrautbúnasta snildarverkið, sem komið hefir enn á islenskan bóka- markað. Almenningur lærði að meta gildi mynda í góðum bókum, er hann kyntist „Bókasafni alþýðu". Oddur Björnsson hefir reist sjer ó- brotgjarnan bautastein, með þessari bókaútgáfu einni saman. Lagði hann ótviræða áherslu á menningargildi þeirra bóka, er hann gaf út, og lagði mikið í sölurnar, til þess að gera þær aðgengilegar. — í bæjar- stjórn Akureyrar var Oddur nokk- ur ár; einn af helstu stofnendum Iðnaðarmannafjelags Akureyrar 1904 og formaður þess um langt skeið. Forstöðumaður Iðnaðarmannaskóla Akureyrar var hann og mörg ár. Oddur var ennfremur hvatamaður liess, að stofnað var Sjúkrasamlag í bænum. Hefir hann verið formað- ur samlagsins og í stjórn þess. Framarlega hefir hann og staðið í heimilisiðnaðarhreyfingunni á Ak- ureyri og verið formaður þess fje- lagsskapar. i ýmsum öðrum nyt- semdarfjelagsskap, svo sem stofnun dýraverndunarfjelags, hefir Oddur látið til sín taka. Á iðnaðarsýning- unni á Akureyri árið 1906 hlaut Oddur fyrstu verðlaun fyrir prent- un, og fyrstu heiðursviðurkenningu hlaut hann fyrir framúrskarandi vel unnið prentverk á heimilisiðnaðar- sýningunni á Akureyri árið 1918. í blaði Hins islenska prentarafje- lags (okt. 1928), Prentaranum, er Oddi Björnssyni ,lýst þannig: „— Oddur hefir altaf verið starfsmaður mikill og áhugamaður um iðn sína --------Hann er mikill vexti, höfð inglegur og prúðmannlegur og hug- sjónaríkur, nokkuð viðförull og all- sýnt um smekkvisi. Hann er að inörgu einkennilegur og einn lang- merkastur prentari þessa lands“. — Fágætur trúleiksmaður hefir Odd- ur Björnsson verið í sinu starfi alla tið. Hann er orðheldinn i smáu sem stóru og þolir öðrum allra síst ó- áreiðanleika. — Lítt hefir Oddur linast í sókninni, þó að aldur hafi færst yfir hann, heldur hefir hann sótt í sig veðrið, sem ungur væri í annað sinn eða kastað hefði hann ellibelgnum, enda telur hann, að svo hafi orðið. Sækir hann nú róðurinn sem fastast. Atvinnurekstur hans er á síðari árum með meiri blóma en nokkru sinni fyrr. Klifið hefir hann þrítugan hamarinn enn á ný i fjár- hagslegúm efnum og atvinnurekstri, og farnast hið besta. Ljettur er Oddur enn á sjer og frár á fæti sem ungur enn, hress í anda, áhugasam- ur og stórhuga um málefni Islend- inga og alþjóða, sem æskumaður væri, enda er hann naumast sjötug- ur. Er honum vart við annað verr en liá kenningu Knut Hamsun, með- an hann var á yngri árum, að fimt- ugir menn hafi lífinu lifað og væri úr því varla á vetur setjandi. En þegar Hamsun átti sjálfur fimtugs- afmæli og fjekk margar og miklar heimsóknir, fjelaga, fulltrúaogfrægra manna, þá fal hann sig og tók eigi móti neinni heimsókn. — Oddur hyggur, að sjötugsaldur muni vera Úr prentsmiðju Odds fíjörnssonar. blómatími andlegs Jífs karlmanna, sein kunna að lifa. En efst á blaði því eru fagrar hugsjónir. (B. T. tók saman eftir ýmsum hcimildum). Úr prentsmiðju O. fí.: Hraðpressan. Úr prentsmiðju Odds Djörnssonar: Setjaravjelin.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.