Fálkinn - 17.08.1960, Side 10
EINKENNILEGT VIÐSKIPTAHVERFI. — 1 Caracas, liöfioöborg Venezuéla, hefur undanfarið verið
unnið að einkennilegri viðskiptamiðstöð, sem á að verða fullgerð í ár. Verzlunarhúsin, sem standa
á tíu hektara svœði, verða allt að 25 hæðir, en þannig um hnútana búið, að fólk geti ekið bilnum
sínum upp að hvaða hæð, sem vera vill. Fœst því framgengt með hringbraut þeirri, sem sést hér á
myndinni, ásamt nokkrum hluta borgarinnar. Áœtlunin er gerð af húsameistaranum Jorge Rom-
ero Gutierrez og kostar fyrirtœkið 25 milljón dollara.
Allstaöar, þar sem stjórnmálaráðstefnur eru haldnar, verður að gæta mikils öryggis vegna
þeirra stjórnmálamanna er fundina sitja. Á myndinni sést, er verið er að leita á blaðamönnum
sem eiga að vera viðstaddir einhverja slíka ráðstefnu.
Fálkinn, 26. tbl. 1960