Fálkinn - 08.05.1963, Page 4
séð & heyrt
Kafbátar á baðströndum.
Innan tíðar mun það þykja mjög gamaldags að synda og leika
sér í sjónum í froskmannsbúningi. í framtíðinni mun hver og einn
hafa sinn eigin kafbát til umráða. Þannig bátur var fyrir nokkru
sýndur á alþjóða vörusýningu í Berlín. Bátur þessi hefur 500 watta
raímagnsvél og ganghraði undir yfirborði sjávar er 8 km. Á honum
er lítill útsýnisgluggi, þar sem hægt er að rannsaka sjávarlífið
gaumgæfilega. Lauslega reiknað mundi þessi bátur kosta hér um
80 þúsund krónur.
Dýrasta pípa heimsins.
Dýrasta pípa heimsins er metin
á 70 þúsund kr., en hún mun ekki
vera til sölu. Fyrir skömmu hélt
franska pípukóngafjölskyldan, Co-
moys sýningu á þessum kjörgrip í
Kaupmannahöfn. Sá er sýndi pípuna
heitir Pierre Comoy og lét hann þessi
orð falla um dýrgripinn:
— Þetta er ekki pípa, heldur ein-
faldlega pípan. Þetta er fullkomnasta
pípa sem búin hefur verið til í ver-
öldinni. Hún er gerð úr beztu rót,
sem til er í heiminum og fjölskylda
mín er alls ekki viss um að slík rót
eigi eftir að finnast aftur.
Á myndinni sjáið þið Pierre Comoy með dýrustu pípu heims.
Hann heldur á henni í hægri hendi. í munni hefur hann pípu, sem
skorin hefur verið í svartvið. Hún er frá því um 1800.
Æskan.
Saga þessi gerðist í litlu frönsku þorpi. Presturinn var að gera
við grindverk, sem var við hús hans. Lítill drengur stóð hjá og
horfði íullur áhuga á verk prestsins.
— Jæja, vinur minn, sagði presturinn, svo að þú vilt gjarna
læra, hvernig reka á nagla í spýtu?
— Nei, sagði drengurinn, mig langaði bara til þess að heyra,
hvað presturinn segði, þegar hann slær á puttana á sér.
Það vita fáir, að
Peron fyrrv. ein-
ræðisherra Argen-
tínu átti dóttur.
Hún var óskilget-
in. Fyrir skömmu
sýndi hún sín
sönnu skilríki í
Argentínu. En hún
hefur skrifað mik-
ið í blöð peronista
í Buoenos Aires
undir nafninu,
„de Ripepi“. Það var nýlega, sem Peron
viðurkenndi, að hann væri faðir hennar. Mun
það hafa verið af pólitískum ástæðum, að
hann gerði það ekki fyrr. Þetta er annars
allra myndarlegasta stúlka. Eða finnst ykkur
það ekki?
★
Viktor Borge lauk einusinni sjónvarpsdag-
skrá sinni með þessum orðum:
— Ég vildi aðeins að lokum þakka foreldr-
um mínum, en það er þeim að þakka, að ég
hef getað komið fram hér í kvöld. Ennfremur
verð ég að þakka börnunum mínum fimm,
en það er þeirra sök, að ég kom fram.
★
Fyrir nokkru stofn-
uðu nokkrir mennta-
menn í Frakklandi
nýja akademíu. Nafn
hennar er Aeademie
de l’Art de Vivre.
Eins og nafnið bend-
ir til er tilgangur
þeirra manna, sem
akademíuna stofn-
uðu, að varðveita
listina að lifa.
Það eru aðallega rithöfundar og listamenn,
sem mynda kjarnann í samkundu þessari. For-
seti hennar var kjörinn Marcel Pagnol. En
meðal meðlima eru Pierr Bénoit, Jean Coc-
teau, Paul Morand. Er sagt að færri komizt
á fundi þessarar akademíu en vilja.
★
Baðkar prinsessunnar.
— í hvorum enda eruð þér vanar að sitja, þegar þér farið í
bað? spurði hinn konunglegi blikksmiður um daginn prinsessu
Margréti.
__ Hvers vegna viljið þér vita það? spurði Margrét brosandi.
__ Ég þarf að vita það til að geta sett vatnshanana á réttan
stað, því að flestir vilja nú hafa kranana til fóta.
Margrét prinsessa var á báðum áttum. Loks ákvað hún, að
kranarnir skyldu settir á miðjuna. Þá gætu allir aðilar verið ánægð-
ir. En um þessar mundir er verið að innrétta íbúð fyrir þau hjón,
Margréti og Snowdon lávarð í Kensington Palace, og mun sú inn-
rétting kosta margar milljónir.
4
FALKINN