Fálkinn - 08.05.1963, Page 6
Hin fullkomna vörn gegn tannskemmdum þekkist
ekki. En þetta er víst. Glerungur tannanna þarf að
rofna, til að tannskemmdir geti hafizt. Fynr nokkr-
um árum uppgötvuðu tannvísindamenn, að efnið
FLUORIDE styrkir glerung tannanna að miklum
mun og minnkar tannskemmdir um allt að 50%.
Ef þér viljið áfram hafa heilar tennur, þá breytið
um í dag og notið framvegis Super Ammident tann-
krem með FLUORIDE.
Ammident
FERÐABÓKAÚTGÁFAN býður yður kostakjör á eftir-
töldum bókum meðan upplag þeirra endist. — Bækurnar
eru innbundnar og í stóru broti:
Kostakjör
Áður Nú
í furðuveröld, 219 bls.................... 135.00 60.00
Heimsenda milli, 224 bls. .. ............. 145.00 50.00
Endir heillastjörnu, 224 bls.............. 120.00 50.00
Hamingjustundir á hættuslóðum, 223 bls. 115.00 50.00
Asía heillar, 212 bls...................... 75.00 30.00
Blámenn og villidýr, 132 bls............... 45.00 18.00
Klippið út auglýsinguna og sendið okkur, er þér hafið
merkt við þær bækur sem þér óskið að fá, og við munum
senda þær um hæl yður að kostnaðarlausu.
FERÐABÓKAÚTGÁFAN — Pósthólf 1054 — Reykjavík.
Fangasöngurinn.
Hér sendi ég ykkur kvæði
það sem birtar hafa verið vís-
ur úr í Pósthólfinu í nokkrum
blöðum Fálkans. Það heitir
„Fangasöngurinn“ og er þýtt
af Freysteini Gunnarssyni.
Ég vildi að ég ætti einhvern
ástvin
sem elskar mig falslaust
og heitt
ég þrái svo sárt einhvers
samúð
því sál mín er einmana og
þreytt.
í kvöld átt þú alein að koma
í kyrrlátri mánaskins dýrð
ég ætla að segja þér sögu
þá sögu sem engum var skýrð.
Ég verð færður í fangelsi
að morgni
í framtíð að búa þar einn
í kring verða járngrindur
kaldar
og koddi minn hrufóttur
steinn.
Ef hefði ég engilsins vængi
flygi ég ánauða helsinu frá
og svifi í míns ástvinar arma
og ánægður dæi ég þá.
Þegar rökkvar við finnumst
sem forðum
og förum um kunnugan stig
þar sem ástin og ævintýr
hjala
en aðeins um þig og um mig.
Margoft gengum við götuna
leyndu
í góðviðri um miðnæturstund
tókum undir með líðandi
lindum
sem liðast um döggvaða
grund.
Og í heiðmánans hálfbjarta
ríki
er hvíslast um ástir og tryggð
í kossanna ljúfsáru leiðslu
felast loforð um eilífa tryggð.
Þegar rökkvar við finnumst
sem forðum
er foldin er náttbjarma
skreytt
þá hvíslar þú aftur og aftur
hvað ástin fær hjartanu
breytt.
Yfir höfin vill hugur minn
svífa
og heim til þín Ijúfasta mær
það er sárt að sjá þig ei
lengur
af söknuði hjarta mitt slær.
Þó að hafdjúpin meini
okkur munað
þú manst samt þinn
elskandi vin
ég veit að þú vendir heim
aftur
er vorblærinn andar á hlyn.
Með bezta þakklæti fyrir
ágætt blað.
Þ. I.
Hvítt og svart, þjóðstjórn,
happdrætti og þéringar.
Póstur minn kær, sæll og
góður.
Við erum 10 vinnufélagar,
sem höfum ákveðið að biðja
þig um að gerazt setudómari
í þrætumáli hjá okkur. (Við
drógum milli blaðanna og þú
hlauzt kosningu). Það ber
margt á góma í kaffitímunum
eins og gengur, og eru þá ekki
allir á sama máli.
Þetta þrætuefni okkar er
um það, hvort hvítt og svart
geti talizt litir. Við skiptumst
í tvo flokka. Annar hélt því
fram að hvítt og svart væru
ekki litir, og því til sönnunar
sögðu þeir, að myndir væru
sagðar í hvítu og svörtu en
svo aðrar í litum. Það væri
af því að hvítt og svart væru
ekki litir.
Hinir héldu því aftur á móti
fram, að hvítt og svart væru
litir eins og gult, rautt, grænt
og blátt væru litir. Þeir sögðu
að oft væri spurt: Hvernig
er bíllinn litur? Hann er
svartur. Hvernig er kjóllinn
litur? Hann er hvítur.
Hvernig er stofan lit? Hún
er með gráa veggi og hvítt
loft, og grár litur væri búinn
til úr hvítu og svörtu.
Þetta eru þær skýringar,
sem við getum gefið um
þrætumál okkar. Við vonum
að fá að sjá dómsúrskurðinn
innan skamms í Pósthólfinu
þínu.
Ef þú gerir nú góðverk á
annað borð, munaði þig þá
nokkru um þó að þú bættir
við einu enn, eða jafnvel
tveimur. Geturðu upplýst okk-
ur um hvaða ríkisstjórn sat
hér við völd, þegar klukkunni
var flýtt í fyrsta sinn hér um
árið? Hverjir voru þá ráðherr-
ar? Getur verið að það hafi
verið hin svokallaða Þjóð-
stjórn?
6 FÁLKINN