Fálkinn - 08.05.1963, Side 8
•"fífil •-
.ftf" i • "W*# .. .iiá,
BpWrv^
umW é' a 1 Btmt t (lil . íMiil' ■ ■ . • • »= r : . X
Á Sæluviliu Slia
Ekkert hik, á öllu kvik/yfir lykur
glaumur/sjafnarblik, á sumum „ryk“/
Sæluvikudraumur. — Hallgr. Jónasson.
Skagfirðingar eru miklir gleðimenn.
Leikfélag Sauárkróks átti 75 ára af-
mæli og lék Fjalla-Eyvind á Sæluvik-
unni. Talið frá vinstri: Eva Snæbjörns-
dóttir (Halla), maður hennar Kári Jóns-
son (Kári), leikstjórinn Eyþór Stefáns-
son (Arngrímur holdsveiki). Jóhanna
Blöndal sem lék Guðfinnu. Kristján
Skarphéðinsson, sem lék Björn hrepp-
stjóra og loks Kári Jónsson, formaður
leikfélagsins.
Þeir eru gefnir fyrir að syngja á manna-
mótum enda söngmenn góðir. Þeir eru
snjallir hagyrðingar margir hverjir og
þekktir fyrir hestamennsku. Sumir
segja, að þeir séu montnir, en það er
ekki rétt. Þeim finnst bara svo gaman
að vera Skagfirðingar.
Ein er sú hátíð meðal Skagfirðinga,
sem mest þykir þar í héraði — Sælu-
yikan. Þetta er mikil hátíð og stendur
frá sunnudagi til sunnudags eða talsvert
á níunda dag. Þá flykkjast menn að úr
héraði í höfuðstaðinn — Sauðárkrók —
og er þá jafnan margt um manninn þar
og gleði mikil. Nágrannar þeirra sækja
þá heim, einkum Húnvetningar, sem nú
hafa tekið upp svipaðan sið og kalla
Húnavöku.
Upphaf Sæluviku mun vera svokölluð
Sýslufundarvika, en þá var sýslufund-
ur haldinn á Króknum og menn komu
víða að til að sitja þann fund. Og þar
sem margir voru samankomnir fóru
menn að gera sér glaðan dag og smátt
og smátt þróaðist þetta í að verða að
Sæluviku þótt nafnið kæmi ekki fyrr
en seinna. Nú hefur sýslufundurinn
slitnað úr tengslum við Sæluna.
Skagfirðingar hafa kappkostað að hafa
eingöngu heimafengið skemmtiefni á
ISflF'