Fálkinn - 08.05.1963, Page 9
tpömmai
:
Pj wjf. i m i §| .
4 .lá.A.'é; •
gfirdiuffa
er 1 narz az
Sæluvika Skagfirðinga, cem haldin
hvert, er elzta og einhver kunnasta héraðshátíð h: r
á landi. Það er mikið um dýrðir á Sauðárkróki með-
an Sæluvikan stendur yfir
sæluvikum þótt það sé nú að breytast
—- því miður. Leiklist hefur lengi stað-
ið í miklum blóma á Króknum og um
þessar mundir er Leikfélag Sauðái'-
króks 75 ára og mun vera elzta leikfé-
lag á landinu. Leiksýningar hafa því
jafnan sett mikinn svip á Sæluviku.
Valgarð Blöndal sagði okkur, að eitt
sinn hefði sama ieikritið verið sýnt í
tveimur húsum samtímis á Sæluviku.
,,Og auðvitað þurftu allir að sjá báðar
uppfærslurnar,“ bætti hann við. Þá voru
milli áttatíu og níutíu manns á sviðinu
í einu. Leikkraftar hafa því lengi verið
góðir á Króknum. Sá sem emna mest
hefur markað þessa starfsemi seinni
áratugina er Eyþór Stefánsson, tónskáld
og telja kunnugir að hann muni vera
með einna hæstu hlutverkatölu hér-
lendis.
Áður en Krókurinn varð að þeim bæ,
sem hann er núna og húsrými þrengra,
var ekki óalgengt að menn skiptust á
um svefnpláss. Þegar menn höfðu dans-
að lengi nætur fóru þeir heim og gengu
í rúm þeirra sem upp stóðu og tóku við
gleðinni. Þannig var sælan í fyrri daga.
Hér segir á næstu síðum frá Sælu-
viku.