Fálkinn - 08.05.1963, Síða 10
* Ekkert hik, á öllu kvik.
Flugvélin lenti á Króknum um sex-
leytið á föstudag í góðu veðri. Þegar
við gengum gegn um bæinn veittum við
því athygli, að bílar voru víða aðkomn-
ir. Ekki aðeins úr Húnavatnssýslu og af
Akureyri heldur og sunnan af Mýrum
og úr Reykjavík og austan úr Þingeyjar-
sýslum. Það var því mikil umferð á göt-
unum og fyrir framan Bifröst, félags-
heimilið, var mikill fjöldi bíla og út
til okkar ómaði söngur. Seinna fréttum
við að Karlakór Akureyrar hefði verið
að syngja þar á þeirri stundu.
Pétur Helgason á Hótel Villa Nóva
sagði okkur, að óvenju mannmargt
væri í bænum enda góð færð. Þetta
mundi setja svip sinn á sæluna. Þegar
við snæddum kvöldverð, sátum við til
borðs með ungum mönnum sem sögð-
ust vera af Akranesi. Þeir sögðust vera
í Iðnskólanum þar og á sinni árlegu
skemmtiferð. Þeir voru kátir og gönt-
uðust við fraukuna þegar hún bar á
borðið, en hún var ófeimin að svara
fyrir sig.
Eftir matinn gengum við inn eftir Að-
algötunni. Það voru margir á ferli en
þeir virtust ekki vera komnir með
Sæluvikusvipinn, enda ekki langt liðið
á Kvöidið. Um daginn voru hér mildar
jarðhræringar og þá sögðu sunnlend-
ingar, að nú væru Skagfirðingar komnir
í ,,kippinn“ enda stutt í Sæluna.
Við fórum bakdyramegin inn í Bif-
röst og niður í búningsherbergin til
þeirra í Leikfélaginu. Þeir voru í óða
önn að undirbúa sýningu á Fjalla-Ey-
vindi, voru komnir í búningana og að
bera framan í sig farðann. Karlmenn-
irnir voru skeggjaðir og mikilúðlegir
sumir í gerfunum og þetta minnti okk-
ur á söguna af manninum, sem hafði
sofnað út frá brjóstbirtu sinni heima ,
þegar jarðskjálftarnir skullu á. Hann
vaknaði við hamfarirnar og rauk út —
með afganginn af glaðningunni í hend-
inni. Þá mætti hann þeim úr Leikfélag- <
inu og hélt sig kominn á fund löngu lið-
inna forfeðra sinna, en þar sem þetta
var kjarkmaður mikill, þá brá honum