Fálkinn - 08.05.1963, Blaðsíða 11
mg'BSaÍ
.
hvergi, heldur lauk við glaðninginn og
gaf sig á tal við þá framliðnu.
Við hittum að máli Kára Jónsson, for-
mann Leikfélagsins, en hann leikur
einnig annað aðalhlutverkið, Kára, á
móti konu sinni, Evu Snæbjörnsdótt-
ur, sem leikur Höllu.
— Þið eruð búnir að sýna Eyvind
alla vikuna?
— Já síðan á sunnudag. Það hefur
verið uppselt á hverja sýningu og er
einnig á þær sem eftir eru. Ég geri
ráð fyrir, að við höfum enn eina sýn-
ingu eftir páska.
— Hvað tekur húsið í sæti?
— Það tekur nærri þrjú hundruð.
— Er ekki mikið verk að setja þessa
sýningu á svið?
— Jú þetta er mikil vinna sem krefst
mikils tíma. Það væri ekki hægt að
koma þessu upp ef ekki væri allt sjálf-
boðavinna. Við höfum ekki efni á að
greiða fyrir neina vinnu nema smávegis
fyrir leiktjöld.
— Æfið þið í þessu húsi?
— Fyrstu æfingarnar eru venjulega
heima hjá leikstjóranum, Eyþóri Stef-
ánssyni, en síðan hér í húsinu. Stundum
rekast þó á önnur starfsemi og verð-
um við gjarnan að æfa á næturnar. Þetta
hús er orðið of lítið og það stendur til
að byggja nýtt, og er það orðið mjög
aðkallandi. Við eigum bragga hér niður
á mölinni, sem við notum sem geymslu
undir leiktjöld og annað þess háttar.
— Standa leiksýningarnar undir sér?
— Já þær hafa gert það flestar til
þessa, og það stafar eiginlega af því,
að um sjálfboðavinnu er að ræða. Svo
höfum við haft sérlega góðan forystu-
Efst til vi«stri: Ástfangið par. Hér að
oían: Fyrir utan Alþyouhúsið. Neðst
til vinstri; Frá dansleik í Bifröst. í
miðju: Sigurður Ólafsson ásamt hljóm-
sveit í Bifröst. Neðst til hægri: „Skála
og syngja Skagfirðingar ...