Fálkinn - 08.05.1963, Side 19
Ungur nemandi í Stokk'hólmi, Guðmundur H.
Öskarsson, sendir FÁLKANUM þessa grein og
fjallar hún um mál, sem mikið hefur verið rætt
og ritað um í Svíþjóð í vetur. Nýr trúarsöfnuð-
ur, Maranata, hefur risið þar upp. Söfnuður þessi
heldur fundi nær daglega. Frelsast menn unn-
vörpum, æpa halleljúa og Maranata og biðja guð
reka djöfulinn úr mannssálinm. Leikm eru létt
lög og söfnuðurmn hrífst með hljóðfalhnu og
klappar eða stappar í gólfið. Umræðumar náðu
hámarki, þegar hneykslið gerðist . . .
jah. Forystumenn safnaðarins halda
svo ræður og tala um vald djöfulsins
yfir mannkyninu og þá einu sönnu
freisun í Jesú Kristi sem felst í því
að trúa á hann og Biblíuna og túlkun
Maranata á henni. Maranata vísi veginn
og hjálpi villtum sálum á rétta braut.
Því til staðfestingar er æpt hallelújah
og svo leikinn vals og guði sungin lof
og dýrð.
Undir lok samkomunnar er fólk
hvatt fram til þess að biðja og láta biðja
fyrir sér. Fer venjulega stór hópur fólks
fram til þess að krjúpa á kné við
fremstu bekkina. Frelsaðir safnaðar-
meðlimir koma þá til þessara leitandi
sálna, leggja hönd á höfuð þeirra og
biðja guð að frelsa þá frá djöflinum.
Freisast margir undir þessum mikla
bænalestri, sem fram er borinn full-
um hálsi og með tilheyrandi hallelújah
hrópum og öðrum köllum, svo sem
,,Guð taktu hann“, ,,Maranata“ og fleira
í þeim dúr. Við fundurlok er svo geng-
ið um og safnað í sjóð til styrktar söfn-
uðinum, og verða það oft drjúgir sjóðir.
Allt þetta er nú gott og blessað. Að
vísu finnst venjulegu fólki þetta all und-
arlegar aðferðir til að tilbiðja guð, en
hver hefur sína hentisemi með það. En
það, sem hefur orsakað mesta umtalið
um þennan söfnuð hér í Svíþjóð, er
hryggilegt atvik, sem skeði fyrir
skömmu.
Hjón, sem voru meðlimir í Maranata-
söfnuðinum, áttu 13 ára gamlan son,
sem var með sykursýki. Hafði allt ver-
ið gert til þess að reyna að lækna
drenginn, en sykursýkin er ekki auð-
veld viðureignar. Varð að gefa barninu
daglega insulin með sprautu eða í töflu-
formi. Drengurinn gat þó lifað nokkurn
veginn eðlilegu lífi, gekk í skóla, lék
fótbolta með félögum sínum og var að
sjá eins og börn eru flest. Að áliti lækna,
hefði drengurinn getað lifað vel og
lengi, fengi hann reglulega insulin, og
með þeim framförum í læknavísindum,
sem nú eru, er ekki ólíklegt, að tekizt
hefði að lækna hann algerlega, fyrr
eða síðar.
En ofsatrú foreldra hans kostaði hann
lífið. Foreldrarnir hættu að gefa honum
insulin og létu guð um að lækna hann.
Þetta minnir á miðaldirnar, þegar villu-
trúarmenn voru settir í stórt ker, fullt
af vatni, og svo kynt undir þar til sauð.
Ef þeir lifðu það af, hafði guð bjargað
þeim og sannað sakleysi þeirra. Færri
sögur fóru af, hversu margir lifðu með-
ferðina af, þótt flestir hafi sjálfsagt ver-
ið saklausir.
Þegar foreldrarnir höfðu ekki gefið
drengnum insulin í viku, var hann orð-
inn það sjúkur, að þau kölluðu á „æðsta
prestinn“ í söfnuðinum og báðu hann
að biðja fyrir barninu. Gerði hann það,
en bætti við, að batnaði drengnum ekki,
skyldu þau leita læknis daginn eftir!
Drengnum batnaði ekki og þegar for-
eldrarnir leituðu læknis daginn eftir,
var það of seint. Drengurinn lézt á
sjúkrahúsi tveim dögum síðar. Krufn-
ing leiddi í ljós, að dánarorsök var
stöðvun insulingjafanna.
Þetta hörmulega atvik vakti þegar
gífurlegt umtal og fordæmingu flestra.
Margir afsökuðu foreldrana á þeim
grundvelli, að þau hefðu trúað bókstaf-
lega á lækningamátt bænarinnar og
þá túlkun Maranata á Biblíunni, að
guð lækni sjúka, leiti þeir til hans í ein-
lægri trú. Foreldrunum er kannski
vorkunn að hafa misst einkasoninn, en
bágt á maður með að skilja afstöðu
þeirra, þegar þau segja í blaðaviðtali,
að þau álíti sig hafa gert alveg rétt og
þetta hafi bara verið vilji guðs, fyrst
hann læknaði ekki drenginn, og halda
svo óhindrað áfram að æpa hallelújah
á samkomum Maranata.
En „Guð hjálpar þeim, sem hjálpar
sér sjálfur“, og í Biblíunni stendur:
„Þú skalt ekki mann deyða.“ Afstöðu
sænska Fíladelfíusafnaðarins lét einn
meðlimur hans í ljós með tilvitnun í
Biblíuna: „Þú skalt virða lækninn, því
Framh. á bls. 28.
FÁLKINN 19