Fálkinn - 08.05.1963, Side 24
pliaedra
Þriðji hluti framhaldssögu eftir Yael Lotan. Sagan hefur veriS kvik-
mynduð og fer myndin nú sigurför um heiminn. Hún verður sýnd í
TÖNABfÖI strax og sögunm lýkur hér í FÁLKANUM. Titilhlutverk-
ið leikur hin fræga leikkona, Mehna Mercouri. Aðrir aðalleikendur
eru Anthony Perkins (Alexis) og Ralf Vallone (Thanos). Leikstjóri
er Jules Dassm.
Búðarmaðurinn starði á hann, og Al-
exis útskýrði alvarlegur, að orðið þýddi
„Þakka yður fyrir“ á grísku. Búðar-
maðurinn sagði: „Jæja, þetta er gríska
fyrir mig!“ og hló ánægður að sjálfs
síns fyndni.
Upp frá þessu varð Alexis kátari og
kátari. Hann fór með mig á krá, og
þar, í illa þefandi og hávaðasömu
horni, sagði hann mér, að móðir hans
vildi ekki leyfa Thanosi að kenna sér
grísku. „Hún heldur, að Grikkir séu
villimenn."
„Hvar er móðir þín núna?“ spurði ég,
og á þessari stund öfundaði ég hana.
Ég öfundaði þekkingu hennar á þessum
undarlega og elskulega unga manni ....
„í Hong Kong,“ svaraði hann með
illgirnislegu glotti. „Maður hennar er
í utanríkisþjónustunni.“
„Líkar þér við hann?“
„Hann er hræddur við mig. Kemur
fram við mig eins og ég geti sprungið
á hverju augnabliki. Þú kannast við
manngerðina: Tannburstaskegg, lín-
sterkja í beinunum og vatn í blóðinu
— þótt það sé mjög blátt — og hefur
ekki mikið að segja.“
„Þér hlýtur að hafa þótt mjög vænt
um hana,“ sagði ég og hafði engan áhuga
á þessum skuggalega eiginmanni, sem
var Alexis ókunnugur.
„Þú hlýtur að hafa hatað mig mjög
mikið.“
Hann hló glaðlega, eins og hugmynd-
in væri fjarstæða. Tennur hans voru
sléttar og mjög hvítar og það var eitt-
hvað grunsamlega líkt spékoppi í kinn
hans, þegar hann hló. „Þú veizt, hversu
óþolinmóð og þröngsýn börn eru. En
nú veit ég, að hjónaband þeirra var vit-
leysa. Hún er of ensk — og köld. Var-
kár. Þú ert rétti kvenmaðurinn fyrir
föður minn.“
Ég reyndi að brosa vingjarnlega, en
mistókst það. Sú tilgáta, að ég væri
rl'tti kvcnmaðurinn handa Thano,si, virt-
ist rnár skyndilega móðgandi. Það hafði
verið sagt svo oft, og ég vissi, að það
var satt. Ég svaraði alltaf: „Nei, það
sem þú meinar er, að hann er rétti
eiginmaðurinn fyrir mig.“ .... Nú var
ég særð. Þessi athugasemd, sem kom frá
Alexis, gerði mig gamla og vísaði mér
til sætis langt frá honum.
Ég sagði: „Þú átt mikið af vinum
hér.“
„Ó, hundruð. Góða vini.“
„Stúlkur?“ Þetta datt út úr mér áður
en ég gat stöðvað það. Mig grunaði, að
hann héldi, að ég væri að njósna fyrir
föður hans.
Hann setti upp ástleitinn svip. „Já,“
sagði hann með hálflokuð augu. „Eina,
eina fallega, stórkostlega stúlku.“
Ég varð hrædd. Kvölin, sem orð hans
ollu mér, var greinileg.
„Þetta getur gert hlutina flóknari.
Faðir þinn veit ekki um hana,“ sagði
ég. Ég hataði hlutverk mitt, hina móð-
urlegu umhyggju í garð manns, sem
var tæplega tíu árum yngri en ég.
„Þú segir honum það,“ ,sagði hann við
mig, og það kom kýmnisglampi í aug-
un á honum, en andlit hans var ann-
ars alvarlegt. „Þú hittir hana núna.“
„Núna?“ sagði ég og mig hryllti hálf-
partinn við að hitta hana. Hún yrði
áreiðanlega tortryggin í minn garð.
„Já, núna,“ sagði hann og andlit hans
ljómaði yfir hugmyndinni. „Hvers vegna
ekki?“
„Ekki á þessum skóm,“ sagði ég.
„Hún mun ekki einu sinni taka eftir
þeim. Viltu ekki gera það fyrir mig
að koma og hitta stúlkuna?“
Ég leit á hendur hans, sem hvíldu
á borðinu, sterklegar, vel hirtar, dökk-
leitar eins og hendur föður hans. Mér
leizt vel á þær. Það var yfir þeim ein-
hver róisemi, sem ég kunni svo vel við.
Við yfirgáfum krána og gengum um
stund þegjandi. Ég sagði við sjálfa mig,
að ég yrði að vera róleg og virðuleg,
en samt hlýleg í viðmóti við stúlkuna
hans.
Ég leit á Alexis og sá, að hann undir-
bjó fund okkar. Hann hélt á kassanum
með skónum mínum í. Allt í kringum
okkur var iðandi mannhaf, fólk á leið
heim úr vinnu sinni. Roskinn herramað-
ur gekk á undan okkur, hægt og leti-
lega og sveiflaði göngustafnum öðru
hverju. Það var ekki unnt að komast
fram hjá honum. Mér hefur alltaf liðið
illa í mannþröng.
„Hérna,“ sagði Alexis skyndilega og
stanzaði. Ég leit í kringum mig og gat
ekki séð neitt nema búðardyr. Hann
leiddi mig að stórum glugga, og þarna
stóð „hún“ — rauður sportbíll, gljáandi
og tilbúinn að þjóta af stað. „Þarna er
stúlkan mín,“ sagði hann og benti. Hann
leit á mig og við hlógum bæði, — ég
af feginleik, og hann af gleði yfir undr-
un minni. — Alexis var hærri en Tha-
nos, og mér fannst ég lítil á flatbotna
skónum við hliðina á honum. Ég var
mjög fegin, og ég brosti til hans. MUg
langaði til að kyssa hann á kinnina.
En hann hafði ekki augun af „elsk-
unni“ sinni.