Fálkinn - 08.05.1963, Side 30
Mánaðardagurinn var 25. marz kl. 12.30,
og vitni voru: Albert Pike verzlunar-
maður og Jessie Pike gift kona.
„Þetta er allt löglegt,“ sagði ég undr-
andi.
„Að því er ég bezt veit, þá eru engin
lög gegn því að rita erfðaskrá með
ósýnilegu bleki. Meining arfleiðandans
er greinileg, og sá sem nýtur góðs af
er eini lifandi ættinginn. En hann var
framúrskarandi kænn, hann sá fyrir
hvert það skref, sem ég bannsettur aul-
inn tók. Hann útvegar 2 eyðublöð læt-
ur þjónustufólkið skrifa tvisvar undir,
síðan þýtur hann út með erfðaskrána
skrifaða innan á litla umslagið og ósýni-
legu blekblönduna í sjálfblekungnum.
Undir einhverju yfirskyni fær hann
kaupmanninn og konu hans til þess að
skrifa undir þar sem hans nafn er, og
festir síðan umslagið við lykilinn að
skrifborðinu. Ef frænka hans sér við
þessum brögðum hans, þá hefur hún
fyllilega réttlætt sinn málstað, og á
þessvegna að njóta eignanna með
ánægju frá hans hendi.
,.Hún sá ekki við brögðum hans,“
bætti ég við rólega. „f raun og veru
vann gamli maðurinn.“
„Nei, Hastings, það ert þú sem hefur
rangt fyrir þér. Miss Marsh sannaði
gáfur sínar og ágæti menntunar sinnar
með því að fela mér málið. Notið ætíð
sérfræðinginn. Hún hefur fyllilega sann-
að rétt sinn til peninganna."
Eg efa,-----ég efa mjög, að Andrew
gamli hefði verið á sömu skoðun.
Kvenþjóðin
Framhald af bls. 26.
Langatöng: 9 1. frá handarbaki og 9
1. frá lófa, takið upp 4 1. við vísifingur
og fitjið upp 4 1. við baugfingur. Prjón-
ið 9 Vz—10 cm., fellt af eins og á vísi-
fingri.
Baugfingur: 8 1. frá handarbaki og 8
1. frá lófa, takið upp 4 1. við löngutöng
og fitjið upp 4 1. við litlafingur. Prjónið
9—9V2 cm. Fellt af eins og áður.
Litlifingur: 7 1. frá handarbaki og 7
1. frá lófa, takið upp 4 1. við baugfingur.
Prjónið 8—81/2 cm. Fellt af.
Þumalfingur: 14 1. frá fleygnum
+ 8 1., sem teknar eru upp að innan-
verðu. Prjónið 8 cm. Fellt af.
Prjónið vinstri hanzkann eins.
Snyrting
Burstið allan líkaman, þó ekki brjóst
og háls. Þvoið síðan yfir hann með
mjúkum svampi svo vel freyði.
Burstið tærnar vel með naglabursta
og fjarlægið öll herzli og gerið svo æf-
ingar með öklunum. Hreyfið þá tíu
sinum í hring í báðar áttir; grennir
og liðkar.
Einnig er gott að nudda t. d. mjaðm
ir, handleggi og læri undir yfirborði
vatnsins; styrkir vöðvana.
Að öllu þessu loknu er sjálfsagt að
teygja úr sér og slaka á öllum vöðvum
í 1—2 mínútur og farið svo í kalda
sturtu, áður en stígið er upp úr baðker-
inu.
Þerrið yður vel með þó ekki of mjúku
handklæði. Sé hörundið ekki þurrt er
hressandi að bera á sig Kölnarvatn og
talkum.
Munið að bera handáburð á hendur,
olnboga,, hné og hæla. Nú eru neglurn-
ar á tánum mjúkar og því rétti tíminn
að snyrta þær til.
Sæluvika
Framh. af bls. 13.
— Nú eins og hjá öllum heilbrigðum
karlmönnum, þá náttúrlega kvenfólk,
en það hefur nú gengið hneykslislaust
fyrir sig, og svo auðvitað hestar.
Dansinn hófst ekki fyrr en hálf tólf
um kvöldið og byrjaði í Alþýðuhúsinu.
Þá var komin mikil umferð á göturnar
bæði af farartækjum og eins gangandi
og víða sungið. Fyrir utan húsið var
kominn allstór hópur og talsverður
umtroðningur, því mönnum lá á inn í
sæluna. Hljómsveitin var farin að
leika og menn fljótir í dansinn eftir
að inn var komið. Fram á salerni heyrð-
Árgangurinn kostar
75.00 krónur.
Kemur út einu sinni
í mánuði.
ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barnablaðið. —
Flytur fjölbreytt efni við hæfi barna og unglinga,
svo sem skemmtilegar framhaldssögur, smásögur,
fræðandi greinar og margs konar þætti og mynda-
sögur. Síðasti árgangur var 300 síður með um 600
myndum. Allir þeir, sem gerast nýir kaupendur að
ÆSKUNNI fá síðasta jólablað í kaupbæti.
Gerizt áskrifendur að ÆSKUNNI.
Greiðsla þarf að fylgja áskrift.
Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNAR.
Afgreiðsla í Kirkjuhvoli, Reykjavík, Pósthólf 14.
30 FÁLKINN
ist sungið margraddað um mann sem
skildi sína mey eftir í Mexikó. Aðallega
virtist þetta vera unga fólkið.
Þegar við gengum út tókum við Gunn-
ar Þórðarson lögreglumann tali.
— Er lítið um slagsmál hér?
— Já, svoleiðis heyrir til undantekn-
inga. Heimamenn eru ekki gefnir fyrir
handalögmál. Það eru helzt aðkomu-
menn sem bregða því fyrir sig. Þeir
þekkja ekki þetta Sæluvikuandrúms-
loft.
— En fyrir itan sæluna?
— Nei, menn fara hér á ball til að
skemmta sér en ekki til að slást. Þeir
vita að þeir mega syngja og vera með
gleðskap að vissu marki.
— Er Grjót hér?
— Já, við höfum Grjót hér.
Svo gengum við inn eftir aðalgötunni
aftur og fundum að nú var Sælan byrj-
uð og viðeigandi andrúmsloft komið í
staðinn. Hjá kirkjunni mættum við
manni sem sennilega vildi gefa okkur
sjúss. Það kalla þeir Skudda. Við neit-
uðum sjússinum og hann bað okkur að
íhuga málið betur, — lífið væri stutt
og Sælan stæði ekki lengi yfir.
— Nei takk.
— Eruð þið templarar?
— Nei.
— Aðkomumenn?
— Já, að sunnan.
— Og hvað eruð þið að gera hér á
Sælunni ef þið viljið ekki Skudda.
— Við erum frá blaði að taka myndir.
— Blaðamenn og viljið ekki Skudda.
Er nema von að blöðin séu léleg.
Hann gekk út götuna og söng hárri
röddu: Því skagfirzkt blóð er í þeim
öllum sem elska fljóð og drekka vín.
Svo gengum við okkar veg.
Við sögðum í upphafi, að Skagfirð-
ingar væru skemmtilegir menn og við
það getum við staðið enn. Hitt má
segja um Skagfirðinga og kannski alla
landsmenn, að þeir eru leiðinlegir í bið-
röðum. Þeir raða sér ekki í röð heldur
hnappa sig eins og hestar. Það urðum
við áþreifanlega varir við þegar inn
að Bifröst kom. Hafi verið fjöldi fyrir
utan Alþýðuhúsið þá var tröð fyrir ut-
an Bifröst. Og það tók okkur langan
tíma að komast gegnum þvöguna og inn,
enda ljósmyndarinn með tækin fram-
an á sér og talsverður fyrirferðar.
Inni var húsið fullsett. Hljómsveit
Hauks Þorsteinssonar var farin að leika
og dansgólfið þétt skipað og fólkið ið-
aði eins og maurar. Sigurður Ólafsson
söng með hljómsveitinni og hann þurfti
ekki mikið að hvetja menn til að taka
undir. Það var komið mikið fjör í ball-
ið hjá þeim. Þetta var góð hljómsveit
og tók sér ekki hlé og spilaði ekki í
syrpum, heldur viðstöðulaust. Það var
galsi í mönnum og þegar þeir hittu
vini sína fóru þeir að galsast við þá.
Þeir föðmuðust og sögðu blessaður vin-
ur og gaman að sjá þig, kominn í Sæl-
una og svo klöppuðu þeir á axlir hvers
annars. Eða þá þeir tókust á í góðu.
— Hvað segir Handanvillingurinn?
sagði annar.