Fálkinn - 08.05.1963, Blaðsíða 31
— Eru þeir nú farnir að vökna
Vestan- vatna, sagði hinn.
— Viltu einn?
— Aldrei hef ég neitað einum.
— Þú mátt þó eiga það, að stundum
rennur af þér.
— Það verður víst ekki sagt um þig.
— Ertu að koma mér til?
— Þú getur reynt ef þig langar.
Svo tókust þeir á í hryggspennu,
Tókust fast á og bárust til í átökunum.
Þeir sem gengu fram hjá þeim veittu
þessu enga athygli, heldu héldu leiðar
sinnar. Þeim, sem stundum rann af,
veitti betur og þegar hinn fór að gefa
eftir hættu þeir og klöppuðu kankvís-
lega á axlirnar, fengu sér Skudda og
gengu í salinn.
Hjá hljómsveitarpallinum hittum við
gamlan mann sem stóð þar og söng.
Við spurðum hvort hann væri Skag-
firðingur.
— Nei, ég er Húnvetningur.
— Er ekki kalt þar á milli?
— Ætli það sé nú nema í nösunum.
Varla væri maður að þvælast hér ef
maður kynni ekki vel við sig.
— Þið rífizt nú sundum.
— Það væri nú skárri andskotinn.
Svo er stundum kastað vísu. Það á ekki
að útkljá málin með hnefunum. Það
er vanhugsað að vera alltaf að slást.
Þeir gera það víst fyrir sunnan.
— Ert þú hestamaður?
— Komið hef ég á bak.
Og þegar við ætluðum að fara að
spyrja hann frekar var hann kominn í
dansinn, léttur á fæti.
Við heyrðum því fleygt, að þetta væri
ekki gott Sæluball því það væru of
Kæri Astró.
Mig langar dálítið til að kynnast fram-
tíðinni. Ég er fædd klukkan tvö að
nóttu. Ég hef stundað nám í vetur og
mun taka gagnfræðapróf í vor. Ég
hef ekki enn hitt mann, sem ég hef hrif-
izt alvarlega af. Hvernig verður heilsu-
farið, ástamálin og vinnan? Fer ég ein-
hvern tíma út fyrir landsteinana? Eign-
ast ég mörg börn? Vinsamlegast sleppið
öllum tölum og nafni.
Sísí.
Svar til Sísí.
f sambandi við langferðalög þá eru
ekki horfur á að mikið verði um slíkt
hjá þér, þar eð merki Fiskanna fellur í
það hús. Helzt væri um að ræða ein-
hverjar stuttar sjóferðir, en hætt er við
að slíkar ferðir verði þér ekki til sér-
stakrar gleði.
Varðandi barneignir þá fellur geisli
fimmta hús í merki Bogmannsins, sem
venjulega bendir til stórrar fjölskyldu
og að sveinbörn verði í meirihluta. Að
öðru leyti er þetta merki heppilegt hvað
barnalán snertir, heilsufar barnanna og
afkomu síðar meir.
Heilsufarið fellur undir áhrif Stein-
geitarinnar þar eð geisli sjötta húss fell-
margir aðkomumenn. Við heyrðum á
tal tveggja manna sem sögðu að það
mætti sjá að fært væri til Akureyrar.
Það skeikaði aldrei að þeir sendu full-
trúa sem væru litlir sælumenn. Við
veittum þessu ekki athygli því okkur
fannst ballið gott og menn skemmtilegir.
Við þekktum þá ekki úr sem komu frá
nágrannabæjunum. Hins vegar kom
okkur til hugar að leggja fram þá til-
lögu að Akureyri og Sauðárkrókur taki
upp vinabæjastarf.
Svo var allt í einu tilkynnt að nú
væri síðasti dans og gólfið troðfylltist.
Að lokum lét Sigurður þá syngja saman
eitt lag og það var tekið vel undir.
Næturloftið var svalt fyrir utan.
* Yfir lykur glaumur.
Þeir héldu áfram að koma í bæinn á
laugardag og undir kaffið fór hann að
rigna. Þar sem göturnar voru ekki mal-
bikaðar myndaðist for og urðu þær leið-
inlegar yfirferðar. Við röltum eftir göt-
unum í regninu og virtum þá fyrir okk-
ur sem leið áttu um. Þeir tóku margir
daginn snemma og voru „rykaðir“ og
glaðir án þess að vera með ólæti. Við
hittum Sigurð Ólafsson á þessu rölti.
Hann var klæddur í hestamannauni-
form.
— Eru góðir hestar hér, Sigurður?
— Ég var nú fyrir hálfgerðum von-
brigðum. Ég var að líta á tamninga-
stöðina þeirra og sá ekki nema einn eða
svo sem mig langaði til að eiga. Eitt sinn
voru hér beztir hestar á landinu en
þeir eru víst horfnir úr héraði.
— Er gott að syngja fyrir Skafirð-
inga?
ur í það. Þetta merki gefur venjulega
tilefni til erfiðleika á sviði heilsufarsins
á yngri árum, en að eftir því sem á æv-
ina líður verða horfur betri á þessu
sviði. Aðallega er um að ræða sjúk-
dóma, sem stafa út frá kulda, svo sem
kvef og ýmsar tegundir lungnasjúk-
dóma. Einnig tilhneiging til þunglyndis,
sem getur haft skaðleg áhrif á tauga-
kerfið og meltingarfærin. Einnig falla
ýmsir beinasjúkdómar undir þetta
merki.
Hvað vinnu áhrærir þá hefurðu tals-
verðan metnað til að afkasta meiru held-
ur en aðrir. Þú býrð einnig yfir hæfi-
leikum til að skipuleggja vinnubrögð
þín þannig að viðleitni þín nýtist mjög
vel. Þér fellur illa við yfirmenn, sem
þú finnur að eru ekki starfi sínu vaxnir
við að skipuleggja verkefni og einnig
við samstarfsfólk, sem hangir við
vinnu sína. Eiginlega væri viturlegast
fyrir þig að stunda einhverja atvinnu,
þar sem þú ert ekki undir aðra sett,
En það kemur í Ijós að svo er ekki, því
þó þú innlifir þig af sömu kostgæfni
getur algjörlega stjórnað framgangi
mála upp á eigin spýtur.
Ástamálin falla undir áhrif Boga-
— Já, mér fellur það vel. Þeir eru
margir góðir söngmenn og fólkið tekur
duglega undir við mann. Áðan vatt sér
að mér maður og sagðist vera söngbróð-
ir minn. Ég áttaði mig ekki fyrst en
auðvitað eru allir söngbræður. Hann
sagðist reyndar hafa sungið með mér
fyrir sunnan og það má vel vera þótt
ég muni ekki eftir því. En ég held að
Skagfirðingum sé ekki um aðkomu-
menn gefið hér til að skemmta, Að
minnsta kosti virðist mér þeir vandlát-
ir á slíka hluti.
— Hvaðan ertu?
— Ég er fæddur í Reykjavík, en ætt-
aður af Snæfellsnesi.
— Hjá vondu fólki?
— Já, hjá vondu fólki. Þetta voru
bölvaðir ribbaldar og soramenni, og Sig-
urður hló. Ég er ættaður úr Mikla-
holtshreppnum þar sem séra Árni var
prestur. Ættin er skal ég segja ykkur
dálítið flókin. Eitt sinn var ég í veizlu
og þá var maður að halda ræðu. Ég
sagði við sessunaut minn, að ræðumað-
urværi hálfbróðir hálfsystur hálfbræðra
minna en ekkert skyldur þeim, en
frændi minn. Hann hélt ég væri vitlaus
og það tók mig langan tíma að útskýra
þetta fyrir honum. Það er löng saga og
einhvern tíma skal ég segja ykkur hana.
Við kvöddum Sigurð og héldum á-
fram að rölta um göturnar.
Um kvöldið fórum við gagngert í
Bifröst til að sjá það sem þeir sögðu
okkur að væri merkilegast við Sæluna.
Þeir kölluðu það Söngkjallarann. Þeir
sögðu, að þar hittust eldri mennimir og
hefðu uppi mikinn gleðskap. Þeir elztu
Framh. á bls. 32.
mannsmerkisins og þar af leiðandi þykir
þér gaman af að eiga mörg stefnumót
og í hvert skipti innlifarðu þig svo í
hlutverk ástmeyjarinnar að álíta mætti
að hér væri komin hin eina sanna ást.
Stundum bendir þetta
merki til þess að fólk giftist maka af
annarri trú, kynþætti eða þjóðerni.
Geisli sjöunda húss, sem fellur í merki
Vatnsberans hefur sérstaklega áhrif á
makaval þitt. Venjulega giftist fólk með
þessa afstöðu fremur seint og þá er
mjög algengt að talsverður aldursmun-
ur sé á. Út frá þessari afstöðu bendir
margt til þess að tilvonandi maki þinn
verði fæddur undir merki Vatnsberans
eða á tímabilinu 21. jan. til 10. febr.
Áhrifaár í ástamálunum verður nítjánda
aldursárið hjá þér og undir þrítugsald-
urinn.
★
fXlKI NN 31