Fálkinn - 08.05.1963, Qupperneq 34
PANDA DG UPPFINNINGAMAÐURINN MIKLI
„Þetta tæki sparar þér mikinn tíma, félagi,“ hrópaði
Hugsuðurinn. „Það er alveg yndislegt.“ „Hlífið mér
við sölumannskjaftæði yðar,“ sagði Jollipop kulda-
lega, „og svo er ég ekki félagi yðar.“ „Eins og þú
skipar, Jolliroll," sagði Hugsuðurinn. „Haltu í það, ég
ætla að setja það í samband.“ „Ég vona að það vinni
eitthvað gagn,“ sagði Panda við sjálfan sig, „uppfinn-
ingar Tomma eru svo sérstæðar." „Þarna fer það af
stað,“ hrópaði Hugsuðurinn. „Nú sérðu, hvernig þú
flýgur alveg í gegnum vinnuna.“ Já, flýgur, það var
orð að sönnu. Og áður en þjónninn vissi af, var hann
á fleygi ferð um stofuna á eftir maskínunni.
Hugsuðurinn fylgdist með áhuga á flugi þjónsins. „Ég
held ég viti, hvað er að núna,“ muldraði hann núna,
„kústarnir ganga of hratt.“ „Gerðu eitthvað,“ hróp-
aði Panda, „taktu þessa maskínu úr sambandi." „Allt
í lagi, allt í lagi,“ svaraði Hugsuðurinn og gekk að
rofanum. En einmitt þá heyrðist mikið brothljóð og
Jollipop flaug út um gluggann. „Ekki nógu gott,“
sagði Hugsuðurinn, „þegar svona óvænt atvik koma
fyrir.“ En þá flaug hann sjálfur út um gluggann.
Hann hafði haldið í snúruna.
Panda kom einmitt út að glugganum, þegar þeir
Jollipop og Hugsuðurinn lentu í blómabeði út í garði.
„Þér eruð viðbjóður,“ sagði Jollipop við Hugsuðinn
„og ekki nóg með það þá skortir yður ábyrgðartilfinn-
ingu.“ „Æ, vertu nú ekki svona reiður, Rallihop,“
svaraði Hugsuðurinn, „ég skal reyna eitthvað annað.“
„Nafn mitt er ekki Rallihop," svaraði þjónninn virðu-
lega og stóð á fætur. „Og ég hef ákveðið að verða
ekki fórnardýr tryllitækja. Ég er farinn.“ „Jollipop“,
hrópaði Panda í örvæntingu. En í þetta skipti var
ekki hægt að telja honum hughvarf.
14 fXlkinn