Fálkinn - 08.05.1963, Qupperneq 38
sínum með því að stjórna hljómsveit-
um og kórum; hann samdi marsa og
sálmalög og útsetti fyrir hljómsveitir.
En það hrökk ekki til. Fjölskyldan varð
að flytja í ódýrari íbúð. Og eiginkonan
varð að veðsetja skartgripi sína til þess
að þau hjónin gætu greitt húsaleiguna.
Verdi vonaðist samt til, að Merelli léti
eitthvað frá sér heyra. En sú von brást.
Enn þyrmdi yfir tónskáldið. Elzta
barn þeirra hjóna, dóttir, sem hafði
verið augasteinn föður síns dó í ágúst-
mánuði 1838. Tæpum mánuði eftir að
Margherita hafði alið tónsmiðnum son.
Haustið 1839 lézt litli drengurinn líka.
En um þessar mundir haíði ung og'
efnileg sópransöngkona við La Scala,
Giuseppina Strcpponi að nafni, sem
seinna varð kona Verdis, vakið áhuga
Merellis á óperu hans, Oberto. Og
raunin varð, að hún var færð upp. Hún
líkaði vel. Forstjórar óperuhússins pönt-
uðu því þrjár í viðbót.
Enn eitt áfallið reið yfir tónskáldið.
Eiginkona hans, Margherita hafði ekki
þolað allar þær hormungar, og sorgir,
sem þau höfðu orðið fyrir. Hún veiktist
og lézt skömmu seinna. En tónskáldinu
hafði verið mælt svo fyrir að semja
gamansöngleik. Hann gerði svo fremur
af vilja en mætti, enda fór svo, að hann
var hrópaður niður. Sýningin varð
fiasco, eins og leikhúsmenn kalla það.
Verdi sór þess nú dýran eið, að hann
skyldi aldrei semja óperu aftur. Hann
rauf þann eið sem betur fer.
í marga mánuði hafði enginn spurnir
af Verdi. Kvöld eitt síðla í desember
mætti Merelli manni nokkrum á gangi.
Honum fannst hann kannast eitthvað
við svipinn. Hann sá, að þetta var
Verdi. Merelli neyddi hann til þess að
koma með sér á skrifstofu sína, fékk
honum þar óperutexta og lét hann lofa
því að semja lögin við hann.
Þegar tónskáldið kom heim til sin,
þá fleygði hann handritinu á borðið
svo að það opnaðist og þá blöstu við
honum þessar línur: — Va pensiero
sull’ali dorate ( Lausl. þýtt: Svíf þú
hugsun á gullnum vængjum). Hann las
textann og skynjaði brátt, að þótt hann
fjallaði um Nebúkadnesar kóng og her-
leiðingu Gyðinga, þá höfðaði hann beint
til sjálfstæðisbaráttu ítala. Verdi fyllt-
ist eldmóði og innan skamms var hann
niðursokkinn í að semja lögin.
Þessi ópera varð upphafið að frægðar-
ferli Verdis. Nabucco, en svo hét óperan
olli gífurlegri hrifningu. ítalirnir skildu
hana þannig að hún væri óður um
frelsisbaráttu þeirra. Ungir og gamlir
sungu við raust: — Va pensiero sull’oli
dorate.
Verdi var sannarlega réttnefndur
tónskáld byltingarinnar. En þessar óper-
ur sem hann samdi á þessum árum
komu honum fjárhagslega á réttan kjöl.
Hann tók nú að semja þær óperur, sem
halda frægð hans enn á lofti. Nægir
þar að nefna, Rigoletto, La Traviata,
Aida og svo II Trovatore, sem hér á að
færa upp.
Víkjum nú stundarkorn frá landi
eldsins og söngsins yfir í land elds og
íss. Það er verið að æfa óperuna II
Trovatore á sviði Þjóðleikhússins. Til
hægri handar á sviðinu situr Carl
Billich við píanóið og leikur hin Ijúfu
lög af háttvísi. Á miðju sviðinu situr
leikstjórinn, Lars' Runsted og skipar
fyrir. Aðalsöngvararnir, Ingeborg
Kjellegren og Guðmundur Guðjónsson,
standa innar á sviðinu og syngja. Hún
segir honum, að hann sé frjáls ferða
sinna og hún hafi látið allt sitt til þess
að svo megi verða. Hún hafi heitið
hálfbróður hans eiginorði, en tekið inn
eitur af því hún elskaði trúbadorinn.
stuttu máli sagt: Fjallar óperan um ást-
ir. En það er ekki efnið, sem skiptir
máli í óperunni heldur söngurinn. Og
þeir sem unna söng, munu vissulega
ekki verða fyrir vonbrigðum, þarna
munu, Svala Nielsen, Erlingur Vigfús-
son, Jón sigurbjörnsson og síðast en
ekki sízt Guðmundur Jónsson, syngja.
— Við eigum að vera bræður, Guð-
mundur Jónsson og ég, sagði Guðmund-
ur Guðjónsson við okkur, er við náðum
tali af honum milli atriða.
— Er þetta ekki fyrsta hlutverk þitt
í óperu hér á landi?
— Jú, en ég var búinn undir það að
syngja hlutverk hertogans í Rigoletto
hér á sínum tíma. Og svo söng ég auð-
vitað í Árósum, fyrir skömmu.
— Hljómsveitarstjórinn er ekki kom-
inn?
— Nei, leikstjórinn er aðallega að
æfa með okkur hreyfingarnar. og mað-
ur er bókstaflega lurkum laminn.
★
B^RNe/ GoogÆ
. and • .