Fálkinn - 23.08.1965, Page 22
MEÐ SCAIMIA VABIS I EINNI
STRIKLOTIi FRA NESKAIJPSTAÐ
AÐ var dumbungur og þoka niður í miðjar hlíðar,
þegar við lögðum af stað frá Neskaupstað um fimm-
leytið á laugardag, og kýrnar á Skorrastað stóðu í einum
hnapp við hliðið, og auðvitað þurfti ein að skera sig út úr
og renna fyrir bílinn, sem kom á sextíu kílómetra hraða,
en hemlarnir sviku ekki, þeir punktuðu á staðnum, og
beljan var ofurlítið skömmustuleg, þegar hún forðaði sér.
Fyrirtækið, sem á bílinn heitir Viggó h.f. skrásett í
Neskaupstað og aðaleigandinn og bifreiðarstjórinn í þess-
ari ferð heitir líka Viggó nánar tiltekið Sigfinnsson,
tuttugu og fjögurra ára gamall Norðfirðingur, sem stund-
að hefur vöruflutninga í nokkur ár.
Bíllinn er Scania Vabis, stór og sterkur og léttur í
akstri. Viggó h.f. á annan flutningabíl Mercedes Benz,
sem Ólafur nokkur Ingimundarson, fyrrverandi rútubíl-
stjóri ekur.
„Hafnarbyggingin nýja hér á Norðfirði gaf mér start-
ið,“ segir Viggó, „ég hafði ekið fyrir Birgi Runólfsson
á Siglufirði og var orðinn kunnugur bransanum, þegar
mér datt í hug að hefja flutninga sjálfur. Ég hafði bara
einn bíl til að byrja með og setti mér frá upphafi að
lofa ekki öðru en því, sem ég var alveg öruggur með
að geta staðið við. Hugsaði sem svo, að oft væri betra
að fá hlutinn seint, ef hægt væri að treysta því, heldur
en að eiga vilyrði fyrir honum snemma og geta ekki
treyst á það. Nú og fyrsta sumarið eða i hitteðfyrra var
kappnógur akstur og þetta gekk ágætlega. Segja má
kannski, að gashylkin hafi átt þar sinn stóra þátt. Þeir
notuðu nefnilega mikinn súr við hafnarbygginguna, og
gashylkin er bezti flutningur, sem maður fær, því þau
verður að flytja fram og til baka.“
Það er rúmt og þægilegt í bílhúsinu, þar er aðeins einn
stóll fyrir utan bifreiðarstjórastólinn, en bekkur fyrir
aftan, þar sem hægt er að sofa. því í rauninni er ætlast
til þess, að á þessum bílum séu tveir bílstjórar, sem aki
til skiptis. Viggó hefur samt látið sig hafa það að vera
einn og kastar sér bara útaf einhvers staðar á leiðinni.
Við ökum upp að síldarbræðslunni á Eskifirði, og Viggó
gefur sig á tal við verksmiðjustjórann. Þegar hann kem-
ur aftur upp í bílinn segir hann:
„Síldarbræðslurnar hér á Norðfirði eru mínir beztu
kúnnar, og nú fæ ég bara lista til að útrétta eftir rétt
eins og mjólkurbílstjórarnir í gamla daga.“
Það er mikil umferð á leiðinni upp á Héraðið og alls
22
FALKINN