Fálkinn - 23.08.1965, Page 30
ÉG ER SÁ
SEM ÉG ER
Ungur maður yfirgefur heimili sitt og fjölskyldu og
gerist flakkari. Þetta gerist að vísu á hverjum degi,
einhvers staðar í heiminum. En það er ekki hversdags-
legt, að sá sem þetta gerir sé sonur milljónera... og
sonur mesta gamanleikara allra tíma. En þetta er
Mikael Chaplin, sonur þeirra Charlie og Oonu Chaplin,
og í þokkabót dóttursonur hins fræga leikritaskálds,
Eugene O’Neill. Hingað til hefur alltaf ríkt þögn og
launung um líf og lifnaðarhætti Mikaels, og þannig
eru aðstæðurnar, þegar við ætlum að rannsaka hans
líf og hans umhverfi. Og árangurinn er ekki aðeins
skýrsla, heldur kannski fyrst og fremst röksemdafærsla
fyrir því, hversu erfitt það er, að vera sonur listamanns,
sem allur heimurinn þekkir.
Það er hálf klukkustund til miðnættis. Það er hlýtt
í Lundúnum þetta kvöld, hinn 7. ágúst 1964. Bítnikk-
arnir ganga fram og aftur um Hyde Park. En einn þeirra
kveður með þeim orðum, að hann ætli að skreppa út
í Marble Arch.
Við Marble Arch er hin fræga vatnsþró, þar sem
ferðamenn eru vanir að kasta smámynt, og óska sér
einhvers um leið. Og hjá vatnsþrónni er þessi sami
náungi að gera eitthvað. Hann hefur vægast sagt vafa-
samt útlit, — landshornaflakkari til hálfs, bítill til hálfs
og sítt óásjálegt hárið fellur niður á herðarnar. Rólegur
stingur hann hendinni öðru hverju niður í þróna. Og
hann er fiskinn: 123 penny, 24 hálfpenny, 1 franki, 2
beliskir smápeningar og 1 amerískt cent. Samtals gera
þetta um það bil 100 krónur íslenzkar.
— Megum við fá að sjá vegabréf yðar?
Náunginn deplar ekki einu sinni augunum, en með
votri hendi leitar hann í vasa sínum.
— Chaplin, Mikael, fæddur ..
— Þetta . .. þetta er þá sonur Charlie!
Þarna var hann sem sagt gripinn, og það var farið
með hann á lögreglustöðina. Þar skýrir hann frá því,
að hann er svarti sauðurinn í fjölskyldunni, og að hann
vilji ekki skulda föður sínum nokkurn skapaðan hlut.
— Ég er frjáls og án framtíðaráætlana. Faðir minn
verður^ að skilja, að ég ætla að lifa lífinu eftir eigin
höfði. Ég vil ekki lifa undir hans áhrifum.
Og hvort sem það er af meðaumkvun eða einhverju
öðru, þá sleppti dómarinn honum í þetta skipti.
Samtal við Mikael.
Þegar Mikael var heimsóttur sat hann á gólfinu heima
hjá sér, með fæturna í kross eins og skraddari á borði
sínu. íbúð hans er nokkra kílómetra frá Kensington
Road, en einmitt þaðan lagði faðir hans einu sinni af
stað, til þes að sigra heiminn. Þakið og veggirnir eru
skítugir og nærri fallnir og það vantar helming glugga-
tjaldanna. Það er mikið drasl í íbúðinni, og gólfteppið
er mjög blettótt.
30 FÁLKINN
hlutverki
sem sonur Chaplins og dóttursonur O'NeilI.
Hann hefur yfirgefið heimili sitt og vill lifa
sjálfstœðu lífi. Og kannski finnur hann hlut-
verk við sitt hœfi í dag, — sem leikari.
Mikael 11 ára með foreldrum sínum. Þetta var um það leyti
sem hann Iék í fyrstu kvikmynd sinni.
Mikael og Patrika í Lundúnum: Og því meir, sem fólk gagn-
rýnir útlit mitt. því meiri löngun fæ ég til þess að vera þannig.