Fálkinn - 14.03.1966, Qupperneq 10
MEfl KÁTU
FÓLKI
TTÉR í borginni hefur um 18 ára skeið starfað félagsskapur
■tl sem kallað hefur sig Kátt fólk. Eftir l»ví sem við bezt
vitum á þetta nafn vel við. Við litum inn á skemmtun hjá þeim
í febrúar og þar virtust allir vera kátir og skemmtilegir.
Eftir því sem við fengum upplýst er tilgangur félagsins að
gefa félagsmönnum kost á góðum og ódýrum skemmtunum.
Félagið heldur að minnsta kosti þrjár skemmtanir á ári, í nóvem-
ber, febrúar og apríl. Samkomugestir mæta á samkvæmisklæðn-
aði og allar skemmtanir eru vínlausar. Þeir sem mæta of seint
verða að gjöra svo vel og troða upp með eitthvert númer. Á
þessum skemmtunum sjá félagsmenn sjálfir um öll skemmti-
atriði. En við skulum ekki hafa þennan formála lengri heldur
snúa okkur að myndunum.
Mynd 1: Og hér horfir fólk á og virðist skemmta sér vel.
Mynd 2 og 4: Eitt af skemmtiatriðunum var að nokkur pör voru
látin snúa bökuni saman, þannig áttu þau að dansa, og svo spil-
aði hljómsveitin polka. Þessum gekk hvað bezt í polkanum.
Mynd 3: Vinsælasta skemmtiatriðið var að Iáta einn karlmanninn
finna eiginkonuna. Það var bundið fyrir augu hans síðan mynd-
uðu sex konur hring á dansgólfinu og blindinginn var settur í
þann hring. Þau brögð voru í tafli að fyrst í stað var eiginkonan
ekki með í hringnum. Hér er Sigurður Runólfsson að leita fyrir
sér. Hann lét ekki villa um fyrir sér og leysti þessa þraut vel
af hendi enda þaulvanur að leita, bæði sem lögregluvarðstjóri
og leitarstjóri Flugbjörgunarsveitarinnar.
Mynd 5: Hér er mynd af borðhaldinu. Talið frá vinstri: Guðrún
Árnadóttir, Jónheiður Nielsdóttir, Hulda Þorgeirsdóttir, Kristjana
Jónsdóttir, Marteinn Kristinsson, Gunnar Guðjónsson, Pétur
Hannesson og Hafliði Jónsson en hann er formaður félagsis.
10
FÁLKINN