Fálkinn - 21.03.1966, Page 10
PAÐ eru nú rúmlega 60 ár
síðan menn fundu stærsta
demant allra tíma. Ekki
er unnt að útiloka þann
möguleika, að aðra demanta,
álíka stóra sé að finna í iðrum
jarðar, en nútíma aðferðir við
námuvinnslu eru svo harðhent-
ar, að litlar líkur eru til, að
þeir verði nokkru sinni upp-
götvaðir. Því mun hin fræga
„Stjarna Afríku“ sennilega
halda sínum sessi í sögunni
sem stærsti demantur verald-
ar.
Demanturinn vóg 3.24,75
karöt, þegar hann var skorinn
út úr veggnum á nýopnaðri
námu í hinu suður-afriska fylki
Transvaal. Aldrei höfðu slik
undur sézt áður. Demantskurð-
armaður í Amsterdam velti
steininum fyrir sér í hálft ár
áður en hann dirfðist að leggja
til atlögu við hann. En þegar
hann ætlaði að fara að slípa
fyrsta flötinn, steinleið yfir
hann af geðshræringu.
Steinarnir úr þessum risa-
gimsteini prýða nú brezku
ríkisskartgripina og eru taldir
svo verðmætir, að vörður er
hafður um þá dag og nótt.
Sólin var í þann veginn að
ganga til viðar yfir víðfeðm-
um sléttum Transvaal kvöld
eitt árið 1905, þegar verkstjór-
inn við hina nýju Premier
námu, Freddy Wells, fór sína
venjulegu eftirlitsferð. Hann sá
glampa á eitthvað í einum
námuveggnum og athugaði það
nánar. Sólin speglaðist í ein-
hverju í blágráum klettaveggn-
um. Það ljómaði eins og risa-
vaxin eldfluga, og Wells tók
fram hníf sinn skjálfandi hönd-
um og fór að grafa í kringum
þennan skínandi hlut. Augna-
bliki seinna hélt hann á hinum '
stóra steini í lófa sínum.
Cullinan-demanturinn var svo
stór, að þegar hann hafði ver-
ið skorinn í marga hluta, vó
einn hlutinn 530 karöt og var
fjórum sinnum stærri en nokk-
ur annar demantur, sem áður
hafði fundizt. Heimurinn var
furðulostinn yfir þessum fundi
og íbúarnir í Cullinan eru ekki