Fálkinn - 02.05.1966, Side 2
Óli litli er í strætisvagn-
inum með pabba sínum.
— Ertu hræddur við stóra
hundinn, sem hleypur þarna?
spyr Óli.
— Nei, ekki er ég það
drengur minn, svarar hinn.
— En ertu hræddur við
rottur og mýs?
— Nei, það er engin
ástæða til að vera hræddur
við þær.
— Jæja. Ertu þá ekki
hræddur við neitt nema
hana mömmu?
Feðgarnir fóru úr vagnin-
um á næstu biðstöð.
—v—
— Heyrið þér þjónn,
hvernig stendur á að ég fæ
svona lítinn matarskammt í
dag. Sá sem ég fékk í gær
var helmingi stærri
— Hvar sátuð þér þá?
— Þarna út við gluggann.
— Já, gestirnir við glugga-
borðin fá alltaf stóra
skammta. Það er gert til að
auglýsa veitingahúsið í
gluggunum.
—v—
Kennarinn er að útskýra
blóðrásina fyrir nemendun-
um í bekknum: — Ef ég
stend á höfði sígur blóðið
að höfðinu á mér og safnast
þar fyrir. En hvers vegna
safnast blóðið ekki fyrir í
fótunum þegar ég stend?
— Af því að fæturnir eru
ekki eins tómir og hausinn,
svarar Óli litli.
Við hattabúðargluggann.
Hún: — Hvaða hatt lízt
þér bezt á?
Hann. — Þann sem þú
hefur á höfðinu.
—v—
Palli: — Ég átti að kaupa
flibba handa honum pabba
mínum.
Búðarþjónn: — Svona
flibba.
Palli: — Nei, hreinan
eins og ég er með?
— Ef ég ætti að gegna
lækninum mundi ég svelta í
heilan mánuð.
— Hvað vill hann láta þig
gera?
— Borga reiknlnginn.
ÞAÐ VITA MARGIR EN EKKI ALLIR
að Cortina hefur ýmist gírskiptingu í gólfi' eða á stýri
að Cortina er fáanleg með sjálfskiptingu
að hægt er að velja um tveggja og fjögurra
dyra ásamt Station
að loftræstikerfið er frábært
að Cortina hefur diskahemla að framan
að Cortina ER fimm manna bíll
að hvernig sem á það er litið, þá borgar það sig, að kaupa Cortina.
< 1 IMBDÐIfl KR. KRISTJÁN SUÐURLANDSBRAUT S 2 SOI • SÍMI II H.F. 3 53 00