Fálkinn - 02.05.1966, Blaðsíða 22
HANN STÆKKAR OG
NÝ TÆKNI
RÆÐUR STÆRÐ
OG LÖGUN
Brjóstaaðgerðir: árum saman
hefur læknum verið ljós sú
mikla sálfræðilega þýðing, sem
barmur konunnar hefur fyrir
hana — hann er henni tákn um
yndisþokka hennar og kven-
leika — og árum saman hafa
þeir Ieitað betri aðferða til
þess að fegra útlínur brjóst-
anna. Ensk blaðakona skrifar
hér um nýjustu uppgötvanir,
sem gerðar hafa verið í
mammaplasty.
„Þegar kona missir brjóstin,
finnst henni hún hafa verið
vönuð.“ Maðurinn, sem lét sér
þessi orð um munn fara og
trúir þeim statt og stöðugt er
fegrunarskurðlæknir. í tíu ár
hefur hann framkvæmt skurð-
aðgerðir til minnkunar, stækk-
unar eða fegrunar á konubrjóst-
um.
Meðal sjúklinga hans eru
mæður, sem hafa haft mörg
börn á brjósti, og brjóstin
þannig misst fyrri lögun' og
þokka, konur sem hafa aflöguð
og afskræmd brjóst eftir eina
eða fleiri miður vel heppnaðar
skurðaðgerðir og aðrar, sem
hafa lítil og lítt þroskuð brjóst.
Þær komá til þess að fá sér
nýjan barm, sem þær geti
hreyknar haldið sýningu á í
kvöldkjól eða baðfötum og,
það sem venjulega skiptir þær
enn meira máli, þegar þær af-
klæðast frammi fyrir eigin-
mönnum sínum. Vitað er að
sumar konur verða mönnum
sínum algjörlega afhuga vegna
þess að þær skammast sín fyrir
ljót og slapandi brjóst sín.
Skurðlæknirinn bendir á stað-
inn þar sem skurðurinn er
gerður áður en silicone pokinn,
sem hann heldur á í hinni
hendinni er látinn inn.
»
I
22 FÁLKINN