Fálkinn - 02.05.1966, Síða 6
Fálkinn
16. tbl. — 39. árg. — 2. maí 1966
EFIMI
SVARTHÖFÐI SEGIR ..................... 6—7
ALLT OG SUMT .......................... 8—9
ÆVINTÝRI HOFFMANNS í ÞJÓÐLEIKHÚSINU,
texti og myndir eftir Steinunni S. Briem og
Rúnar Gunnarsson ..................... 10—13
LÍF OG HEILSA eftir Ófeig J. Ófeigsson lækni 13
UPPHAF ÆVISKEIÐS, fróðlegar myndir um
fyrstu ár ævinnar .................... 14—17
BRENNIMERKT, ný sænsk framhaldssaga eftir
Erik Norlander ....................... 18—20
VALDAMENNIRNIR ERU MANNLEGIR EINS
OG AÐRIR, grein um ensku forsætisráðherra-
frúna .................................... 21
HANN FEGRAR OG STÆKKAR KONUBRJÓST,
frásögn af enskum lækni sem hefur getið sér
mikla frægð .......................... 22—23
f SVIÐSLJÓSINU ......................... 24—25
ÞEGAR LÆKNIRINN BRÁST, frásögn af konu
sem var með læknisáhald innan í sér í meira
en ár ................................ 26—27
SENDIBRÉF ÚR FORTÍÐINNI eftir Jón Helgason 28—31
ARFUR ÁN ERFINGJA eftir Eric Ambler.. 32—34
STJÖRNUSPÁ ................................ 35
HÁKARLABEITA .............................. 36
BARNASÍÐA ................................. 46
PARÍSARGREIÐSLA ........................... 48
FORSÍÐA: Fyrirsæta: Þórunn Hafstein. Ljósm.: Stúdíó
Guðmundar, Rúnar Gunnarsson.
I nœsta bla3i er œtlunin a3 birta viStal
við Björn Ólafsson konsertmeistara. Onn-
ur merkileg grein er um „Elztu menn í
viSri veröld". nokkra Grúsíumenn, sem
komnir eru á annaS hundraSiS. Anonýmus
skrifar um kynvillu á íslandi, og er þa3
nafnlaust bréf sent blaSinu, sem virSist
vera skrifaS í fullri alvöru.' Smágreinar
eru um Rex Harrison, bikini baSföt og
eyrnalokka. Ekki má heldur gleyma því
a3 í því blaði hefst nýr fastur þáttur:
„FurSur himins og jarðar" og er hann rit-
aður af Hirti Halldórssyni menntaskóla-
kennara. Fyrsti þáttur hans fjallar um
hvers vegna sólarhringurinn er 24 stundir,
þar nœst talar hann um ísaldir og síðan
áfram í þessum dúr. Þá eru auðvitað hinir
föstu þcettir: Svarthöfði segir, Líf og heilsa
og allt og sumt.
Ritstjðri: Sigvaldi Hjálmarsson (áb.). Blaöamenn: Steinunn S.
Briem, Gretar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Hrafn Þórisson. Auglýsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Dtgefandi:
Vikublaöið Fálkinn h.f. Aösetur: Ritstjórn, afgreiösla og auglýs-
ingar: Grettisgötu 8, Reykjavík. Símar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð i lausasölu 30,00 kr. Askrift kostar 90,00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.f.
Prentun meginmáls: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
6
Að falla fyrir kosningar
ÞÁ hafa flokkarnir birt framboðslista sína og einnig Alþýðu-
bandalagsfélag Reykjavíkur, og ekkert er eftir annað en.
birta stefnuskrár ef þær þá fyrirfinnast nokkrar. Menn hefur
sett undarlega hljóða við útkomu aðalskipulags Reykjavíkur,
og víst mun þetta síðasta bragð Sjálfstæðisflokksins verða
andstæðingunum þungt í skauti. Þeir verða að minnsta kosti
að borga 1380 krónur fyrir bókina í stað bláu bókanna fyrr-
um, sem ekki kostuðu neitt og urðu lítið annað en loforðin.
Töluverðar breytingar hafa orðið á framboðslistum hér í
Reykjavík, og þó einna mestar hjá Alþýðubandalagsfélaginu.
Þeir menn sem helga sig stjórnmálastörfum að einhverju
marki hér á landi búa við þau undarlegu örlög að falla stund-
um fyrir kosningar. Oftast hendir þetta vegna þess, að hið
sviplausa lið stjórnmálamanna er svo laust við alla tinda, að
sumir einstaklingar gleymast á flatneskjunni og ná aldrei
til byggða eftir það. Enginn syrgir þá sem týnast, af því
þeir hafa enga sögu átt, hvorki góða né vonda, og hópurinn
á þingi er of lokað stéttarfélag, til að nokkur trúi því að þar
hafi menn meiningar eftir flokkum. Níutíu prósent af þjóð-
inni vita ekki einu sinni hvað áttatíu prósent þingmanna
heita, og varðar ekki um hvort þeir eru lifandi eða dauðir.
Bezt og ódýrast væri að púsluspilið væri leikið eftir reglum
almenningshlutafélaga. Stæði þá forsætisráðherra upp og til-
kynnti að þrjátíu þúsund atkvæði segðu já, þegar Eysteinn
stæði upp og segði að sautján þúsund segðu nei, og þess á
milli mætti nota þingsali sem hvíldarheimili handa þeim sem
hafa skrifað og talað sig heilsulausa vegna þess að þeir gengu
með þingmanninn í maganum í hálfan mannsaldur.
Fjárráðin koma að austan
r ÐUR hefur verið bent á það, að aumlegasta pólitíska starf-
ið væri að sitja í borgarstjórn Reykjavíkur. Samt hefur
margur maðurinn kosið að falla sér til dómsáfellis við tilraun-
ir til að komast þangað. Eins og við mátti búast gekk erfið-
lega að raða í efstu sætin á lista Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur. Þegar Brynjólfur Bjarnason lýsti furðu sinni
á fundinum í Lídó yfir því viðhorfi manna, að vilja tvístra
Sósíalistafélaginu til inngöngu í Alþýðubandalagsfélagið þegar
lYlýr flokkur
Elskulegi Fálki!
Mikið er ég hneyksluð á sjón-
varpsáhugamönnum að hafa
ekki manndóm og reisn til að
bjóða fram til borgarstjórnar-
kosninga. Svoleiðis framboð
hefði sannarlega sýnt bessum
vesælu og hálfvolgu pólitíkus-
um, sem eru dauðhræddir við
nokkra dreissuga stráka í Há-
skólanum, að allur almenning-
ur þolir ekki þokukennda
flóttaafstöðu í þýðingarmiklum
málum sem varða beina hags-
muni mikils hluta þjóðarinnar.
En það er ekki öll nótt úti
enn. Það eru alþingiskosning-
ar á næsta ári.
Húsmðöir úr Hlíöunum.
Svar:
Hér er vissulega lireyft at-
hyglisveröu máli og athuganðX
fyrir rétta aöila aö taka það
til gaumgæfilegrar íhugunar.
Hitt er svo annaö mál, hvort
öllum líkar eins vel viö hug-
myndina, en auövitaö tökum
viö ekki afstööu sem blaö fyrir.
alla fjölskylduna.
Skriffinnska
Fálki minn góður!
Það er auðvitað að bera I
bakkafullan lækinn að skrifa
um skriffinnskuna á öllum
sviðum hér á Islandi. En núna
upp á síðkastið hefur mér
blöskrað hvað eftir annað, hve
mikið er hægt að hafa af eyðu-
blöðum og alls konar leyfum
FALKINN